bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

3G nettenging í gegnum símann
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=33804
Page 1 of 1

Author:  Kristjan [ Thu 18. Dec 2008 00:28 ]
Post subject:  3G nettenging í gegnum símann

Ég er í þessum rituðum orðum tengdur við netið í gegnum símann minn í fartölvunni.

Umræddur sími er 3G Sony Ericsson Z770i, ég er með 50mb símaflakks áskrift.

Hvað dugar það í mikið flakk haldiði? Þarf ég að vera hræddur við að fara yfir 50 mb?

PC suite og network í Vista segir að ég sé tengdur með GPRS, er það 3G systemið?

Tengingin segir 112 kbps sem mér finnst nú heldur hægvirkt.

Er þetta eðlilegt fyrir símann, nær maður betri tengingu með netpung?

Author:  Aron Andrew [ Thu 18. Dec 2008 00:38 ]
Post subject: 

Ég á 3g pung frá Nova, borga 2k á mán og má nota 5gb á mán. Hraðinn sem er gefinn upp er 5mb/s, virkar mjög flott og hratt td. við að surfa youtube og svona allskonar streeming síður, horfði td. á ROC á streemsíðu uppí bústað í gegnum 3g.

Sorrý ekki alveg svar við þinni spurningu, en bara svona smá um punginn :wink:

*edit* GPRS er ekki 3g

Author:  Steini B [ Thu 18. Dec 2008 00:42 ]
Post subject: 

Held að það sé einmitt best að vera með 3g pung...

Author:  Kristjan [ Thu 18. Dec 2008 00:43 ]
Post subject: 

Fuuuck, ég er ekki í 3G sambandi hérna, fæ þá sweet reikning fyrir þessum 3 mb sem ég er búinn að nota.

Author:  Steini B [ Thu 18. Dec 2008 00:44 ]
Post subject: 

Kristjan wrote:
Fuuuck, ég er ekki í 3G sambandi hérna, fæ þá sweet reikning fyrir þessum 3 mb sem ég er búinn að nota.

Það er rukkað það sama hvort sem þú ert á GPRS eða 3G

Bara spurning hvernig það er með þegar maður er með svona áskrift eins og þú ert með...


Efað það er rukkað aukalega þá ætti það að vera 600kr.
(200kr mb)

Author:  Angelic0- [ Thu 18. Dec 2008 05:20 ]
Post subject: 

GPRS er gagnaflutningsmátinn, 3G er tengingin...

Author:  Einarsss [ Thu 18. Dec 2008 08:42 ]
Post subject: 

Angelic0- wrote:
GPRS er gagnaflutningsmátinn, 3G er tengingin...


what he said,

3g er snilld samt ... synca lappann og símann í gegnum bluetooth uppí bústað hjá tengdó og vera á netinu á nokkuð hröðu neti :P verst að það tæmir rafhlöðuna hratt á símanum

Author:  Kwóti [ Thu 18. Dec 2008 18:19 ]
Post subject: 

er með 3g iphone
alger unun að surfa youtube eða googlmaps á góðum hraða

Author:  Kristjan [ Thu 18. Dec 2008 19:21 ]
Post subject: 

einarsss wrote:
Angelic0- wrote:
GPRS er gagnaflutningsmátinn, 3G er tengingin...


what he said,

3g er snilld samt ... synca lappann og símann í gegnum bluetooth uppí bústað hjá tengdó og vera á netinu á nokkuð hröðu neti :P verst að það tæmir rafhlöðuna hratt á símanum


Já það er ansi hratt að tæma hana, en fínt þegar maður hefur hleðslutæki, eða usb snúruna til að hlaða.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/