Page 1 of 1

skoðun erlendis

PostPosted: Tue 16. Dec 2008 00:37
by Bjarki
rak augun í þetta:

Er hægt að láta skoða ökutækið erlendis?

Ef ökutæki sem skráð er hér á landi er í notkun erlendis skal færa það til skoðunar hjá viðurkenndri skoðunarstöð innan EES. Eigandi ökutækisins skal senda staðfestingu og niðurstöðu skoðunarinnar til Umferðarstofu svo komist sé hjá álagningu vanrækslugjalds.


http://www.us.is/id/1000329

virkilega gott að hafa þetta svona á prenti fyrir þá okkur sem eiga bíla á erlendri grundu.

spurning hvort maður fái akstursheimild til að hafa í framglugganum ef skoðunin er runnin út þegar maður tekur út númerin.

PostPosted: Tue 16. Dec 2008 00:46
by bimmer
Já þetta er gott mál - Sveinki er búinn að skoða þetta og það er
víst auðvelt mál að láta skoða úti.

PostPosted: Tue 16. Dec 2008 00:57
by Stanky
Ég var einhverntímann búinn að segja þetta hérna áður, í þræðinum hans Sveinbjörns gamla.

PostPosted: Tue 16. Dec 2008 00:59
by Bjarki
Stanky wrote:Ég var einhverntímann búinn að segja þetta hérna áður, í þræðinum hans Sveinbjörns gamla.


já sveinbjörn hringdi útaf þessu og það leiddi til sömu niðurstöðu.

PostPosted: Tue 16. Dec 2008 13:28
by Alpina
Oooooog ég skrifa eins og hinir og segi .....

ferð á löggiltan skoðunarstað,, færð alla pappíra og/eða lætur faxa til Íslands gögnin,,

viðkomandi er svo send gögn um að bíllinn sé skoðaður osfrv,,

færð sendan miðan ... :lol:

PostPosted: Tue 16. Dec 2008 13:39
by Giz
:D

Þetta gleður mitt litla hjarta óskaplega, kærar þakkir. Hafði leitað mér svara við þessu en aldrei fengið fullnaðarsvar.

G

Re: skoðun erlendis

PostPosted: Sat 18. Apr 2009 15:25
by Bjarki
það líður að þessari skoðun,

Datt allt í einu í hug.....hvað segir þýskur skoðunarmaður þegar hann sér svona:

Image

þetta er örugglega glæpur í Þýskalandi!!!

það gengur vonandi að útskýra þetta hérna heima.

Re: skoðun erlendis

PostPosted: Sat 18. Apr 2009 15:31
by fart
EU er ekki vilta vestrið, hlutir þurfa að vera TUV, ekki eins og á klakanum

Re: skoðun erlendis

PostPosted: Sat 18. Apr 2009 16:46
by Alpina
Bjarki wrote:það líður að þessari skoðun,

Datt allt í einu í hug.....hvað segir þýskur skoðunarmaður þegar hann sér svona:

Image

þetta er örugglega glæpur í Þýskalandi!!!

það gengur vonandi að útskýra þetta hérna heima.


Talar við http://www.us.is og færð vottun um að CATALYSATOR ,, sé ekki skylda á Íslandi .. á bílum framleiddum fyrir ......((95 held ég að sé viðmiðunin))

Re: skoðun erlendis

PostPosted: Sat 18. Apr 2009 18:59
by Axel Jóhann
Ég fékk samt þær upplýsingar frá skoðunarmanni hérna í eyjum að ef bíllinn kemur með þessu orginal þarf þetta að vera til staðar.

Re: skoðun erlendis

PostPosted: Sat 18. Apr 2009 20:21
by Alpina
Axel Jóhann wrote:Ég fékk samt þær upplýsingar frá skoðunarmanni hérna í eyjum að ef bíllinn kemur með þessu orginal þarf þetta að vera til staðar.


það er ekki rétt,,,

Ef hvarfakúturinn fer þá er mönnum EKKI skylt að kaupa slíkt ef þetta er eldri árg. bíl

Re: skoðun erlendis

PostPosted: Sun 19. Apr 2009 08:19
by gardara
Alpina wrote:
Axel Jóhann wrote:Ég fékk samt þær upplýsingar frá skoðunarmanni hérna í eyjum að ef bíllinn kemur með þessu orginal þarf þetta að vera til staðar.


það er ekki rétt,,,

Ef hvarfakúturinn fer þá er mönnum EKKI skylt að kaupa slíkt ef þetta er eldri árg. bíl


Ég slepp allavega í gegnum skoðun án athugasemda varðandi hvarfakútaleysi á mínum 9/1994 bíl.