bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Gott málefni fyrir jólin
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=33610
Page 1 of 5

Author:  Kristjan [ Tue 09. Dec 2008 19:58 ]
Post subject:  Gott málefni fyrir jólin

Hvernig væri ef kraftsmenn myndu taka sig saman um að styrkja eitthvað gott málefni í nafni klúbbsins. Safna saman dósamat fyrir mæðrastyrksnefnd eða föt fyrir rauðakrossinn eða eitthvað. Endilega komið með hugmyndir ef ykkur lýst vel á þetta.

:wink:

Það eru örugglega margir hérna sem hafa hugsað sér að gera eitthvað gott svona fyrir jólin en ekki hafið sig útí það, en með sameiginlegu átaki þá gætum við gert einhverjum gott.

Eru ekki allir sammála um það?

Author:  arnibjorn [ Tue 09. Dec 2008 20:07 ]
Post subject: 

Sammála, ég er alltaf til í að gera góðverk :)

Author:  elli [ Tue 09. Dec 2008 20:12 ]
Post subject: 

Góð hugmynd :D

Author:  Stebbtronic [ Tue 09. Dec 2008 20:14 ]
Post subject: 

Þetta er snilldar hugmynd... styð þetta 8)

Author:  Dóri- [ Tue 09. Dec 2008 21:20 ]
Post subject: 

Styð þetta :!:

Author:  Kristjan [ Tue 09. Dec 2008 21:56 ]
Post subject: 

Einhverjar additional hugmyndir?

Hvernig væri best að framkvæma þetta...

Author:  Axel Jóhann [ Tue 09. Dec 2008 22:00 ]
Post subject: 

Enn að leggja eitthvað inná reikning og gefa svo? :)

Author:  Dóri- [ Wed 10. Dec 2008 00:07 ]
Post subject: 

Axel Jóhann wrote:
Enn að leggja eitthvað inná reikning og gefa svo? :)


Hehe ef að það væri svo góð tíð :lol:

Author:  arnibjorn [ Wed 10. Dec 2008 00:08 ]
Post subject: 

Hvaða málefni koma eiginlega til greina?

Verð að viðurkenna að ég er ekki mikið inní svona málum :oops:

Author:  BjarkiHS [ Wed 10. Dec 2008 00:38 ]
Post subject: 

http://visir.is/article/20081209/LIFID01/806356889/-1

:santa:

Author:  Kristjan [ Wed 10. Dec 2008 01:03 ]
Post subject: 

BjarkiHS wrote:


Alls ekki vitlaust, en með fjárframlög þá myndi ég nú segja að það þarf ekki stóra peningagjöf frá hverjum meðlimi, margt smátt gerir eitt stórt.

Sumir hérna geta til dæmis sleppt því að kaupa sér kippu af bjór (Axelhósthóststeinibhóst) og gefið andvirði hennar í sjóð sem einhver af stjórnendunum myndi halda utanum.

Þetta er bara hugmynd.

Author:  KristoferK [ Wed 10. Dec 2008 02:21 ]
Post subject: 

Kristjan wrote:
BjarkiHS wrote:


Alls ekki vitlaust, en með fjárframlög þá myndi ég nú segja að það þarf ekki stóra peningagjöf frá hverjum meðlimi, margt smátt gerir eitt stórt.

Sumir hérna geta til dæmis sleppt því að kaupa sér kippu af bjór (Axelhósthóststeinibhóst) og gefið andvirði hennar í sjóð sem einhver af stjórnendunum myndi halda utanum.

Þetta er bara hugmynd.


Gefið bara andvirði kippunnar í sjóð og kaupið svo aukalega kippu í ríkinu til að fagna því að þið voruð að styrkja gott málefni og láta vel af ykkur leiða :D

Ég ætla að gera það :)

Author:  Eggert [ Wed 10. Dec 2008 09:28 ]
Post subject: 

Nú þarf bara einhver að taka af skarið og plana þetta. Ég er tilbúinn að taka þátt fyrir allt að 5k þrátt fyrir að vera blankur skólastrákur á LÍN :santa:

Author:  Djofullinn [ Wed 10. Dec 2008 10:06 ]
Post subject: 

Líst mjög vel á þetta :)

Author:  bErio [ Wed 10. Dec 2008 10:17 ]
Post subject: 

Halda fjáröflun?
Hljómar það kannski ílla?

Page 1 of 5 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/