Page 1 of 1
Varðandi tryggingar á mótorhjólum

Posted:
Sat 06. Dec 2008 02:09
by IceDev
Sælir
Ég fékk að vita fáránlegasta kjaftæði í dag
Þrátt fyrir að ég sé búinn að leggja inn plöturnar af mótorhjóli mínu, þá eru þeir enn að rukka fyrir það
Ég fór því upp í tryggingafyrirtækið og spurði hvað málið væri varðandi þetta kjaftæði. Þeir sögðu mér þá að þetta væri nýr tryggingarstuðull hjá þeim að þeir tryggðu s.s allt árið þrátt fyrir innlaggningar og væru þess vegna að bjóða upp á "ódýrari" tryggingar og greiða yrði tryggingar þrátt fyrir innlagningu númera
Sbr. árstrygging upp á 80 þúsund í stað 400. Hinsvegar með 400 þúsund trygginguna borgar maður bara per mánuð sem maður notar hjólið
Mér finnst þetta fáránlegt system, sérstaklega í ljósi þess að ég er ekki einusinni með bifhjólapróf og því verður það ekkert notað fyrr en næsta sumar
Þannig að ég spyr ykkur bifhjólamenn, hvað gerið þið til að láta ekki taka ykkur í skraufþurran bossalinginn?
Djöfulsins tryggingafélög
Re: Varðandi tryggingar á mótorhjólum

Posted:
Sat 06. Dec 2008 02:15
by E55FFFan
farðu með hjólið á bílasölu, þá geturðu fengið þá til að votta það að hjólið se ekki í notkun
felaginn minn komst upp með það allavega í hálft ár
þá áttu að fá þetta hálfa ár endurgreitt eða eitthvað í þá áttina

Posted:
Sat 06. Dec 2008 04:55
by Svessi
Ég óska eftir því að fá að vita hvaða tryggingarfélag þetta er svo maður geti forðast það.
Og afhverju þarf alltaf að vera svona mikið vesen í kringum allt í sambandi við tryggingar hér heima.
Veit t.d. í Þýskalandi, ef þú villt leggja bílnum þínum í einhvern tíma, þá bara legguru honum, hefur hann samt á númerum en lætur trygginarfégið þitt vita og ekkert mál, bíllinn stendur bara á númerinum og þú borgar engar tryggingar. Hinsvegar ef þú myndir nota bílinn þá eru ströng viðurlög við því.

Posted:
Sat 06. Dec 2008 05:02
by IceDev
Vörður
Fínir í bílatryggingum samt
Er með 530d á kaskó á 85k á ári

Posted:
Sat 06. Dec 2008 06:05
by Dóri-
IceDev wrote:Vörður

Fínir í bílatryggingum samt
Er með 530d á kaskó á 85k á ári
TM er með sama kjaftæðið, færði mig yfir í vörð, fékk þar geggjaðan díl í tryggingar en ég er oft að skipta um bíla og díllinn hefur alltaf versnað og versnað!!!

Posted:
Sat 06. Dec 2008 12:10
by Jónas
Var með racer tryggðan hjá TM og eftir smá bras fékk ég árið á 50kall án kaskó.
Annars var mér boðið að borga einhvern ákveðin pening á mánuði og þá mátti ég taka númerin af etc.. en hjólaárið er orðið svo langt (tók smá túr í miðjum nóvember!

) að það borgaði sig ekki.
Annars er þetta algjört kjaftæði, fyndið þegar að kanar eru að kvarta yfir því að borga 300$ fyrir árið með kaskó


Posted:
Sat 06. Dec 2008 12:12
by Axel Jóhann
Ég er nú hjá sjóva og ég er að borga 60k rúman fyrir F-150 og kaskó.


Posted:
Sat 06. Dec 2008 13:33
by Kristjan
Axel Jóhann wrote:Ég er nú hjá sjóva og ég er að borga 60k rúman fyrir F-150 og kaskó.

Þú býrð líka í Eyjum, þarf maður ekki að vera meiriháttar óheppinn til að lenda í tjóni þar?

Posted:
Sat 06. Dec 2008 14:10
by Turbo-
ég er að borga 54þús á ári fyrir mr2 með kaskó og 45kall í eigináhættu

Posted:
Sat 06. Dec 2008 15:23
by Jónas
Af hverju í fjáranum eru menn að tala um bílatryggingar hérna?

Posted:
Sat 06. Dec 2008 18:07
by Thrullerinn
Kristjan wrote:Axel Jóhann wrote:Ég er nú hjá sjóva og ég er að borga 60k rúman fyrir F-150 og kaskó.

Þú býrð líka í Eyjum, þarf maður ekki að vera meiriháttar óheppinn til að lenda í tjóni þar?
Seldi bróðir þinn þér þessa tryggingu því þetta er mjög lágt!

Posted:
Sat 06. Dec 2008 23:37
by Vargur
Í þessum tilfellum er ágætt trikk að hafa eigendaskipti á hjólinu, skrá það td. á vin sinn eða ættingja sem hafa ekki sama heimilisfang og maður sjálfur. Leggja inn númerið um leið og maður fer með eigendaskiptin og fá svo trygginguna endurgreidda vegna sölunnar.
Næsta vor tryggir maður hjólið á nafni ættingjans og skráir það svo aftur á sig um haustið og leikur sama leikinn.
Kostar bara kostnað við ein eigendaskipti á ári.