bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Porsche Boxster S í safnið.
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=33367
Page 1 of 3

Author:  Porsche-Ísland [ Sun 30. Nov 2008 03:17 ]
Post subject:  Porsche Boxster S í safnið.

Jæja þá kom að því að blæjubíll komst í safnið.

Eftir vinnu í dag var haldið í smá Roadtrip til Stykkishólms og náðum þar í Boxster S árgerð 2002.
Þessi bíll var fluttir inn í byrjun árs og náði að telja nokkra kílómetra áður en það kveiknaði í honum.
Varð smá eldsvoði í vélarsalnum, en sem betur fer hljóp eigandinn mjög hratt inn í næstu búð og fékk lánað slökkvi tæki.
Sem hann reif niður af veggnum með festingu og öllu. Náði hann að slökkva í honum, en soggreinin, sem er úr plasti bráðnaði og nokkir aðrir hlutir sviðnuðu.
Var það til þess að VÍS borgaði hann út og setti síðan á uppboð.
Sá sem að keypti hann þar eyddi síðan slatta í að laga hann og var hann nærri því búinn þegar ég eignast hann núna.
Eftir er smá samsettning og frágangur.
Eitthvað sem maður ætti að redda fyrir vorið.
En aftur að bílnum. Þetta er sem sagt Boxster S árgerð 2002.
Vélin er 3,2 lítrar 6 cyl. boxer og skilar 250 hestöfl. Búið er að setja í hann flækjur og nýtt púst, sem á að gefa eitthvað. Gírkassinn er 6 gíra.
Útlitsbreyting er að það eru komnir GT3 sílsar og framstuðari.
Felgur eru 18 tommur.
Ekki eru fyrirhugðaðar neinar breytingar á bílnum en lofa samt ekki að standa við það.
Þannig að núna á ég sem sagt orðið:
Porsche 924 x 3, einn af þeim er Turbo
Porsche 944 Turbo S
Porsche Boxster S
Og ekki má gleyma mínum trygga Audi A6 Quattro Avant sem skilar mér í vinnuna á hverjum degi.


Image

Image
Image
Image
Image
Image

Author:  bimmer [ Sun 30. Nov 2008 03:53 ]
Post subject: 

Flottur þessi - sílsarnir, stuðarinn og spoilerinn eru alveg að gera sig.

Author:  Angelic0- [ Sun 30. Nov 2008 05:45 ]
Post subject: 

til sölu :?:, ég veit um dömu sem að langar í akkúrat þennan :!:

Author:  maxel [ Sun 30. Nov 2008 05:48 ]
Post subject: 

Boxter maður er ég ekki... veit ekki hvort það séu góðu myndirnar eða útlitspakkinn.
Til hamingju með þennan ;)

Author:  Geysir [ Sun 30. Nov 2008 07:06 ]
Post subject: 

Þessi er BARA flottur :shock:

Author:  Danni [ Sun 30. Nov 2008 08:07 ]
Post subject: 

Til hamingju. Hann er mjög flottur þessi ;)

Author:  Einarsss [ Sun 30. Nov 2008 11:52 ]
Post subject: 

Flottur, til hamingju með þennan dóri 8)

Author:  Alpina [ Sun 30. Nov 2008 12:14 ]
Post subject: 

:shock: :shock: :shock:

ENGU LÍKT


ps... velkominn í team be :D

Author:  Kristjan [ Sun 30. Nov 2008 12:15 ]
Post subject: 

maxel wrote:
Boxter maður er ég ekki... veit ekki hvort það séu góðu myndirnar eða útlitspakkinn.
Til hamingju með þennan ;)


Boxster, og þú ættir að prófa svona bíl, ég hef bæði prufað venjulegan og S bíl sem var reyndar alveg 100 hestöflum kraftmeiri en venjulegi og þvílíkur bíll.

Author:  Alpina [ Sun 30. Nov 2008 12:23 ]
Post subject: 

Kristjan wrote:

Boxster, og þú ættir að prófa svona bíl, ég hef bæði prufað venjulegan og S bíl sem var reyndar alveg 100 hestöflum kraftmeiri en venjulegi og þvílíkur bíll.


SVARTHÖFÐI með 3 innannborðs var samt öflugri en sá bíll :lol:

((ps reyndar 1/2 Ferdinand ,, M119 er sá mótor frá M-B sem skilur sig frá öllum þeirra vélum að því leiti að hann er oem 928 design ))

td E60 AMG er M119

M117 sem er í W126 og // W124 HAMMER er með twincam 4v heddum frá AMG

þetta sést best á blokkinni

ps.. smá offtopic :wink:

Author:  Alpina [ Sun 30. Nov 2008 12:23 ]
Post subject: 

Kristjan wrote:
maxel wrote:
Boxter maður er ég ekki... veit ekki hvort það séu góðu myndirnar eða útlitspakkinn.
Til hamingju með þennan ;)


Boxster, og þú ættir að prófa svona bíl, ég hef bæði prufað venjulegan og S bíl sem var reyndar alveg 100 hestöflum kraftmeiri en venjulegi og þvílíkur bíll.


reyndar ekki meira en tæp 50 ps öflugri

Author:  Kristjan [ Sun 30. Nov 2008 13:28 ]
Post subject: 

Var bíllinn hans Brynjars ekki bara eitthvað um 205 hö?

Ég man það ekki alveg nákvæmlega, en Boxster S bíllinn sem ég ók var 2007 módel, 295 hö.

Author:  Alpina [ Sun 30. Nov 2008 13:29 ]
Post subject: 

Kristjan wrote:
Var bíllinn hans Brynjars ekki bara eitthvað um 205 hö?

Ég man það ekki alveg nákvæmlega, en Boxster S bíllinn sem ég ók var 2007 módel, 295 hö.


B 205
Bs 252 ??

Author:  íbbi_ [ Sun 30. Nov 2008 14:07 ]
Post subject: 

2007 bíllinn gæti verið eitthvað öðruvísi, en ég var með 2002model minnir mig af S bíl í smá tíma og hann var eitthvað á milli 250 og 260 minnir mig

Author:  Alpina [ Sun 30. Nov 2008 14:09 ]
Post subject: 

íbbi_ wrote:
2007 bíllinn gæti verið eitthvað öðruvísi, en ég var með 2002model minnir mig af S bíl í smá tíma og hann var eitthvað á milli 250 og 260 minnir mig


Þetta þrusu vinnur 8)

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/