bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Fundur í háskólabíói. https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=33254 |
Page 1 of 1 |
Author: | krullih [ Mon 24. Nov 2008 22:07 ] |
Post subject: | Fundur í háskólabíói. |
Hrikalega flottur fundur, loksins gátu ráðherrar séð sig færan um að mæta og fá "venjulegt" fólk í andlitið. Held að þessi fundur hafi skilað töluvert meira en fjölmiðlar vorar síðustu vikurnar í einu sessjoni. |
Author: | ömmudriver [ Mon 24. Nov 2008 22:31 ] |
Post subject: | Re: Fundur í háskólabíói. |
krullih wrote: Hrikalega flottur fundur, loksins gátu ráðherrar séð sig færan um að mæta og fá "venjulegt" fólk í andlitið.
Held að þessi fundur hafi skilað töluvert meira en fjölmiðlar vorar síðustu vikurnar í einu sessjoni. Já ég er sammála, alveg frábær fundur og ég hefði mætt hefði ég munað eftir honum ![]() En er ég einn um það að finnast Geiri bara bulla þegar hann talar?? |
Author: | Bjarkih [ Mon 24. Nov 2008 22:34 ] |
Post subject: | |
Nei, hann er nú ekki týpan sem gefur hrein og bein svör sem fólk getur skilið. Enda ekta pólitíkus, veit ekki hvað já og nei er... |
Author: | bragi1 [ Tue 25. Nov 2008 00:11 ] |
Post subject: | |
Enda fannst mér frábært hjá fundarstjóra að ráðherrarnir ættu að svara spurningunum, ekki halda pólitíska ræðu. |
Author: | thisman [ Tue 25. Nov 2008 09:19 ] |
Post subject: | |
Bjarkih wrote: Nei, hann er nú ekki týpan sem gefur hrein og bein svör sem fólk getur skilið. Enda ekta pólitíkus, veit ekki hvað já og nei er...
Ég verð nú bara að benda á að hann svaraði einfaldlega "Já" við fyrstu spurningunni sem hann fékk sem var hvort hann myndi styðja opið prófkjör og almennt svaraði hann merkilega beint. Helst síðasta svarið hans sem var dálítið loðið en heilt yfir bara fín frammistaða hjá kallinum. |
Author: | Phoenix [ Tue 25. Nov 2008 12:32 ] |
Post subject: | |
Ágætur fundur en það sem stakk mig var að hinir aumingjarnir þ.e. stjórnarandstaðan var ekkert að hafa fyrir því að láta sjá sig þótt það væru frátekin sæti fyrir þá þarna fyrir aftan ![]() Sýnir sig bara hversu skítlegt eðli stjórnmálamanna almennt á íslandi er. |
Author: | gunnar [ Tue 25. Nov 2008 14:37 ] |
Post subject: | |
Af hverju ætli Dabbi hafi ekki mætt ? ![]() ![]() |
Author: | grettir [ Tue 25. Nov 2008 15:41 ] |
Post subject: | |
http://www.dv.is/frettir/2008/11/25/geir-folk-var-bara-ad-fa-utras/ dv.is wrote: Þegar blaðamenn náðu tali af Geir eftir ríkisstjórnarfundinn í morgun kannaðist hann ekki við átök á borgarafundinum. „Þetta var ekki átakfundur gagnvart okkur. Fólk var bara að fá útrás og tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum að. Auðvitað var bara lítill hluti fundarmanna sem fékk orðið en hinir gátu tjáð sig með því að klappa og standa upp,“ sagði Geir.
Ég spyr nú bara, var Geir ekki örugglega á fundinum? Eða var hann sofandi eins og þegar Steingrímur þurfti að dangla í öxlina á honum í þinginu í gær ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |