bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Einhverjir lögfræðingar á kraftinum? https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=33235 |
Page 1 of 1 |
Author: | Kristjan [ Mon 24. Nov 2008 02:32 ] |
Post subject: | Einhverjir lögfræðingar á kraftinum? |
Mig langar að fræðast um fyrningu á líkamsárás. Er hægt að leita réttar síns ef viðkomandi brotaþoli var undir lögaldri en er nú um tvítugt? Meira en tíu ár eru liðin frá árásinni. Er þetta fyrnt? |
Author: | E55FFFan [ Mon 24. Nov 2008 02:39 ] |
Post subject: | Re: Einhverjir lögfræðingar á kraftinum? |
er það ekki bara þessi 3 vikna regla? ég held það, ekki nema um heimilisofbeldi eða nauðgun se að ræða |
Author: | Kristjan [ Mon 24. Nov 2008 02:58 ] |
Post subject: | Re: Einhverjir lögfræðingar á kraftinum? |
E55FFFan wrote: er það ekki bara þessi 3 vikna regla?
ég held það, ekki nema um heimilisofbeldi eða nauðgun se að ræða Um hvað ertu að tala? 3 vikna regla?? |
Author: | E55FFFan [ Mon 24. Nov 2008 03:16 ] |
Post subject: | Re: Einhverjir lögfræðingar á kraftinum? |
Kristjan wrote: E55FFFan wrote: er það ekki bara þessi 3 vikna regla? ég held það, ekki nema um heimilisofbeldi eða nauðgun se að ræða Um hvað ertu að tala? 3 vikna regla?? vow vow, las ekki nógu vel ég var að tala um að maður hefur 3 vikur til þess að kæra fyrir líkamsárás. |
Author: | Saxi [ Mon 24. Nov 2008 08:15 ] |
Post subject: | |
Kíktu í kafla XI almennra hegningalaga. Þar er fjallað um fyrningu sakar, brottfall viðurlaga og uppreist æru. IX. kafli. [Fyrning sakar, brottfall viðurlaga og uppreist æru.]1) 1)L. 20/1981, 3. gr. 80. gr. [Sakir fyrnast samkvæmt ákvæðum 81. og 82. gr. Á það einnig við um brot samkvæmt sérrefsilögum, nema þar sé annan veg mælt.]1) 1)L. 20/1981, 4. gr. 81. gr. [Sök fyrnist á þeim tíma, er hér segir: 1. Á 2 árum, þegar ekki liggur þyngri refsing við broti en 1 árs fangelsi eða refsing sú, sem til er unnið, fer ekki fram úr sektum. 2. Á 5 árum, þegar ekki liggur þyngri refsing við broti en 4 ára fangelsi. 3. Á 10 árum, þegar ekki liggur þyngri refsing við broti en 10 ára fangelsi. 4. [Á 15 árum, þegar þyngsta refsing við broti er meira en 10 ára tímabundið fangelsi.]1) [Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. fyrnist sök vegna brota samkvæmt ákvæðum 194. gr., 1. mgr. 200. gr. og 1. mgr. 201. gr. ekki þegar brot er framið gagnvart barni undir 18 ára aldri.]2) [Fyrningarfrestur vegna brota, sem fólgin eru í því að komast undan greiðslu á tollum, sköttum eða öðrum gjöldum til hins opinbera, er aldrei skemmri en 5 ár.]1) Nú gerist maður sekur um háttsemi, sem varðar við fleiri en eitt refsiákvæði, og skal þá miða fyrningarfrest brotanna við það ákvæði, er geymir þyngst refsimörk.]3) 217. gr. [Hver, sem gerist sekur um líkamsárás, enda sé hún ekki svo mikil sem í 218. gr. segir, skal sæta sektum eða [fangelsi allt að 6 mánuðum],1) en fangelsi allt að 1 ári, ef háttsemin er sérstaklega vítaverð. Málssókn er opinber út af broti samkvæmt 1. mgr., og skal mál eigi höfðað nema almenningshagsmunir krefjist þess.]2) 1)L. 82/1998, 110. gr. 2)L. 20/1981, 10. gr. 218. gr. [Hafi maður með vísvitandi líkamsárás valdið öðrum manni tjóni á líkama eða heilbrigði, og þessar afleiðingar árásarinnar verða taldar honum til sakar vegna ásetnings eða gáleysis, þá varðar það …1) fangelsi allt að 3 árum, eða sektum, ef sérstakar málsbætur eru. Nú hlýst stórfellt líkams- eða heilsutjón af árás eða brot er sérstaklega hættulegt vegna þeirrar aðferðar, þ. á m. tækja, sem notuð eru, svo og þegar sá, er sætir líkamsárás, hlýtur bana af atlögu, og varðar brot þá fangelsi allt að 16 árum.]2) |
Author: | Þórir [ Mon 24. Nov 2008 17:07 ] |
Post subject: | My 2 cents |
Sælir. Í fyrsta lagi vil ég benda mönnum á að varast að vera að gefa ráð þegar þeir vita etv. ekki fyllilega um hvað þeir eru að ræða. Stutta svarið er eflaust að málið fyrnist á tveimur árum, ef þetta er minniháttar líkamsárás, skv.217 gr. hgl. Síðan vandast málið og etv. er þetta meiriháttar líkamsárás, skv.218 gr. Þannig er í raun ekkert einfalt svar við þessu. Varðandi það hvort hægt sé að kæra ef gerandi var undir lögaldri er ekki alveg hægt að svara því, þar skiptir máli hvort viðkomandi var orðinn 15 ára, eða ekki, vegna þess að við erum óskahæf undir 15 ára aldri. Ef það er málið er ekkert hægt að gera, það er ekki hægt að bíða eftir að einstaklingur nái 15 ára aldri til að sækja hann til saka, ef hann er ósakhæfur þegar brotið á sér stað gildir það. Svo má líka velta því upp hvort bótaréttur sé til staðar. Það er etv. eitthvað sem þú þarft að ræða um við lögmann. Kv. Þórir |
Author: | Saxi [ Mon 24. Nov 2008 18:01 ] |
Post subject: | Re: My 2 cents |
Þórir wrote: Sælir. Í fyrsta lagi vil ég benda mönnum á að varast að vera að gefa ráð þegar þeir vita etv. ekki fyllilega um hvað þeir eru að ræða. Stutta svarið er eflaust að málið fyrnist á tveimur árum, ef þetta er minniháttar líkamsárás, skv.217 gr. hgl. Síðan vandast málið og etv. er þetta meiriháttar líkamsárás, skv.218 gr. Þannig er í raun ekkert einfalt svar við þessu. Varðandi það hvort hægt sé að kæra ef gerandi var undir lögaldri er ekki alveg hægt að svara því, þar skiptir máli hvort viðkomandi var orðinn 15 ára, eða ekki, vegna þess að við erum óskahæf undir 15 ára aldri. Ef það er málið er ekkert hægt að gera, það er ekki hægt að bíða eftir að einstaklingur nái 15 ára aldri til að sækja hann til saka, ef hann er ósakhæfur þegar brotið á sér stað gildir það. Svo má líka velta því upp hvort bótaréttur sé til staðar. Það er etv. eitthvað sem þú þarft að ræða um við lögmann. Kv. Þórir Kristjan wrote: Mig langar að fræðast um fyrningu á líkamsárás.
Er hægt að leita réttar síns ef viðkomandi brotaþoli var undir lögaldri en er nú um tvítugt? Meira en tíu ár eru liðin frá árásinni. Er þetta fyrnt? Þórir athugaðu að Kristján nefnir hvergi geranda í sínum spurningu heldur brotaþola. Aldur hans skiptir ekki máli hvað fyrningu varðar nema ef um er að ræða kynferðisbrot. Alveg rétt að það er ekki auðvelt að gefa einhlýtt svar við þessari spurningu með þeim upplýsingum sem gefnar eru en það er hægt að glöggva sig á þessu í þessum lagagreinum sem ég nefni. Kveðja |
Author: | Þórir [ Tue 25. Nov 2008 19:51 ] |
Post subject: | Re: My 2 cents |
Saxi wrote: Þórir wrote: Sælir. Í fyrsta lagi vil ég benda mönnum á að varast að vera að gefa ráð þegar þeir vita etv. ekki fyllilega um hvað þeir eru að ræða. Stutta svarið er eflaust að málið fyrnist á tveimur árum, ef þetta er minniháttar líkamsárás, skv.217 gr. hgl. Síðan vandast málið og etv. er þetta meiriháttar líkamsárás, skv.218 gr. Þannig er í raun ekkert einfalt svar við þessu. Varðandi það hvort hægt sé að kæra ef gerandi var undir lögaldri er ekki alveg hægt að svara því, þar skiptir máli hvort viðkomandi var orðinn 15 ára, eða ekki, vegna þess að við erum óskahæf undir 15 ára aldri. Ef það er málið er ekkert hægt að gera, það er ekki hægt að bíða eftir að einstaklingur nái 15 ára aldri til að sækja hann til saka, ef hann er ósakhæfur þegar brotið á sér stað gildir það. Svo má líka velta því upp hvort bótaréttur sé til staðar. Það er etv. eitthvað sem þú þarft að ræða um við lögmann. Kv. Þórir Kristjan wrote: Mig langar að fræðast um fyrningu á líkamsárás. Er hægt að leita réttar síns ef viðkomandi brotaþoli var undir lögaldri en er nú um tvítugt? Meira en tíu ár eru liðin frá árásinni. Er þetta fyrnt? Þórir athugaðu að Kristján nefnir hvergi geranda í sínum spurningu heldur brotaþola. Aldur hans skiptir ekki máli hvað fyrningu varðar nema ef um er að ræða kynferðisbrot. Alveg rétt að það er ekki auðvelt að gefa einhlýtt svar við þessari spurningu með þeim upplýsingum sem gefnar eru en það er hægt að glöggva sig á þessu í þessum lagagreinum sem ég nefni. Kveðja Laukrétt. Enda svar þitt gott. Alltaf best að lesa greinarnar sjálfar. Kv Þórir |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |