bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Síminn, TAL, Vodafone?
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=33227
Page 1 of 2

Author:  Bjarkih [ Sun 23. Nov 2008 19:38 ]
Post subject:  Síminn, TAL, Vodafone?

Nú er maður að spá í að skipta um þjónustu aðila þar sem mér finnst síminn vera farinn að vera full dýr. Ég er með heimasíma, gemsa og netið hjá símanum og svo er verið að bjóða manni ágætis verð eins og t.d. hjá TAL. Það sem ég er að velta fyrir mér er hvort það sé þess virði að skipta uppá áreiðanleika og þjónustu að gera. Einhver hérna sem hefur samanburð?

Author:  maxel [ Sun 23. Nov 2008 19:48 ]
Post subject: 

Overall held ég að Vodafone sé best.
Við erum hjá Símanum... glatað fyrirtæki og mætti halda að þeir séu að reyna það.
Finnst tal vera svo mikil bóla eitthvað...

Author:  Jónas Þór [ Sun 23. Nov 2008 20:02 ]
Post subject: 

tal er víst með verðin en ekki þjónustuna, hef allavega verið að heyra það.
annars er ég nokkuð sáttur hjá vodafone þó að verðin hjá tal séu heillandi

Author:  Einarsss [ Sun 23. Nov 2008 20:40 ]
Post subject: 

sáttur með símann, hef ekki lent í slæmri þjónustu og er tilbúinn að borga aðeins meira á mánuði fyrir örugga og stabíla þjónustu.

2x gsm, TV over adsl, heimasími, stærsti netpakkinn


hef verið hjá símanum síðan 1999

Author:  Helgi M [ Sun 23. Nov 2008 23:44 ]
Post subject: 

einarsss wrote:
sáttur með símann, hef ekki lent í slæmri þjónustu og er tilbúinn að borga aðeins meira á mánuði fyrir örugga og stabíla þjónustu.

2x gsm, TV over adsl, heimasími, stærsti netpakkinn


hef verið hjá símanum síðan 1999


Væri ekki verra að heyra hvaða díl þú ert með á þessu, okkur öðrum til samanburðar :)

Author:  Einarsss [ Mon 24. Nov 2008 08:49 ]
Post subject: 

bara normal verðin, það eru engir sér afslættir hjá símanum nema maður sé öryrki eða gamalmenni.

Author:  Zatz [ Mon 24. Nov 2008 08:51 ]
Post subject:  TTT

ekki fara yfir í tal bara mjög léleg þjónusta :x

ég fór yfir í tal eginlega bara fyrir bónusvodió og þeir eru að hætta með það þannig að þetta er alveg pointless ég fékk að bíða í 2 mánuði þangað til að ég var virkur hjá tal.. hringdi svona 10 sinnum og fékk altaf sama svar .. já þetta verður skoðað og verður virkt fyrir þig næstu dag.

siminn er solid og vodafone eru bara fínir

Author:  ice5339 [ Mon 24. Nov 2008 09:51 ]
Post subject: 

Tal er bara með úber úber lélega þjónustu, ég hef ekki fengið jafn slæma þjónustu í mörg ár.

Varðandi netið þá fannst mér Hive(Tal) vera ok stabilt, en þjónustan :(

Varðandi GSM, ég nota hann mikið og reikningurinn hjá mér lækkaði það mikið við að fara til Nova, að hann borgar alveg upp netið og margt fleira með sparnaðinum.

Author:  Misdo [ Mon 24. Nov 2008 10:24 ]
Post subject: 

ég er með Tal og ég hef aldrei þurft að standa í einhverju veseni hjá þeim
þannig ég er sáttur með þá

Author:  gstuning [ Mon 24. Nov 2008 10:30 ]
Post subject: 

einarsss wrote:
sáttur með símann, hef ekki lent í slæmri þjónustu og er tilbúinn að borga aðeins meira á mánuði fyrir örugga og stabíla þjónustu.

2x gsm, TV over adsl, heimasími, stærsti netpakkinn


hef verið hjá símanum síðan 1999


Ég var í því sama,
aldrei vesen hjá símanum frá því ég byrjaði með ADSL , þegar það kom fyrst og módem á undann því.
GSM líka, aldrei EITT issue með eða heimasíma.

Það getur verið alveg þess virði að skoða internet þjónustu sem er local,
líklega mikið betri þjónusta og viðbragð.

Og mánaðar kostnað þarf að skoða frá öllum sjónarhornum, hringja í önnur kerfi, hámark á download, ókeypis símtöl í einhverja ákveðna og svona, bara það að fá nokkur ókeypis númer gætu verið númerin sem er næstum eingöngu hringt í , t.d

Author:  Hreiðar [ Mon 24. Nov 2008 10:39 ]
Post subject: 

Ég skipti yfir í NOVA frá símanum og er ég alveg heví sáttur þar!

Author:  Bjarkih [ Mon 24. Nov 2008 16:37 ]
Post subject: 

Þeir hjá TAL voru eitthvað að tala um að það væri allavega 10kr ódýrara per mínútu að hringja í Nova hjá þeim en símanum. Annars er það ADSL sjónvarpið og netið sem þarf að vera í góðu lagi.

Author:  Einarsss [ Mon 24. Nov 2008 16:47 ]
Post subject: 

Bjarkih wrote:
Þeir hjá TAL voru eitthvað að tala um að það væri allavega 10kr ódýrara per mínútu að hringja í Nova hjá þeim en símanum. Annars er það ADSL sjónvarpið og netið sem þarf að vera í góðu lagi.



færð btw ekki adsl sjónvarpið ef þú ert með tengingu hjá vodafone ... ef þú varst ekki búinn að átta þig á því

Author:  Einsii [ Mon 24. Nov 2008 16:47 ]
Post subject: 

Hata vodafone.. ég var með síma frá þeim fyrir nokkrum árum og það kom sennilega ekki einn reikningur réttur frá þeim og bara bras að redda því.
Við erum með Vodafone línu hér í vinnuni og á næsta borði er önnur verslun með símann. Við erum tölvulausir vegna bilana hjá Vodafone ekki sjaldnar en einusinni í mánuði, Og einn daginn var kerfið úti þegar ég mætti klukkan 8 og kom ekki inn fyrren rúmlega 5 seinnipartinn. Ekki gott fyrir verslun þar sem öll tölvuvinnsla er í gegnum netið.

En þeir á næsta borði hafa ekki mist úr mínútu af netsambandi og það er alltaf allt inni hjá þeim þó svo vodafone væli alltaf um að það sé ljósleiðari í sundur. Þeir eru þá allavega pottþétt tveir hér í grendinni, annar settur saman með frönskum rennilás og hinn venjulegur.
Já búðirnar eru báðar búnar að vera opnar í næstum tvo ár núna þannig að þetta er vel reynt.

Svo var ég með einhvern og1 pakka fyrir einhverju síðan en ég get bara ekki tjáð mig um hvað var að þar því ég man það ekki :) .. En ég man þó það að það var eitthvað að.

Úff.. ég verð bara pirraður við að skrifa þetta... ](*,)

Author:  Einsii [ Mon 24. Nov 2008 16:48 ]
Post subject: 

einarsss wrote:
Bjarkih wrote:
Þeir hjá TAL voru eitthvað að tala um að það væri allavega 10kr ódýrara per mínútu að hringja í Nova hjá þeim en símanum. Annars er það ADSL sjónvarpið og netið sem þarf að vera í góðu lagi.



færð btw ekki adsl sjónvarpið ef þú ert með tengingu hjá vodafone ... ef þú varst ekki búinn að átta þig á því

http://www.vodafone.is/sjonvarp

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/