bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Læti í bænum https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=33207 |
Page 1 of 1 |
Author: | Bjarkih [ Sat 22. Nov 2008 17:43 ] |
Post subject: | Læti í bænum |
Það þarf nú töluvert til að íslendingar láti svona þannig að fólk er greinilega orðið mjög pirrað. http://visir.is/article/20081122/FRETTIR01/517727350/-1 Fjölmennur hópur mótmælenda réðst fyrir stundu inn í anddyri lögreglustöðvarinnar við Hlemm og tók sér stöðu þær. Í aðgerðunum var hurð brotin niður og í framhaldinu beitti lögreglan piparúða gegn mótmælendunum sem eru rúmlega 100 samkvæmt heimildum Vísis. Lögreglumenn hafa nú raðað sér upp gráir fyrir járnum og varna fólki inngöngu í lögreglustöðina. Að auki hafa rúður verið brotnar í lögreglustöðinni. Fólkið er að mótmæla handtöku piltsins sem dró Bónusfánann að húni á Alþingishúsinu fyrir tveimur vikum og hefur verið fjallað um hér á Vísi í dag. |
Author: | Schulii [ Sat 22. Nov 2008 17:55 ] |
Post subject: | |
Ég skil ekkert í lögreglunni að leyfa fólkinu ekki að brjótast inní lögreglustöðina og ná í fanga!! Þvílík ósvífni, Björn Bjarnsason ætti að segja af sér!! |
Author: | elli [ Sat 22. Nov 2008 18:01 ] |
Post subject: | |
Ætli þetta endi ekki með því að þeir fá noska herinn til að aðstoða sig á næstu vikum. Það virðist vera málið núna að fá noska aðstoð bæði á sviði hernaðar og peninga. Þó gætu ráðamenn landsins endanlega riðið landanum í rassgatið og fengið breska herinn til að berja okkur niður ![]() Það myndi örugglega vekja kátínu ![]() |
Author: | Bjarkih [ Sat 22. Nov 2008 18:04 ] |
Post subject: | |
Það sem ég er nú að spá í er hvaða lög hann braut með þessu sem varðar fangelsisvist ![]() Quote: " út með Hauk, inn með Geir".
|
Author: | E55FFFan [ Sat 22. Nov 2008 18:20 ] |
Post subject: | |
elli wrote: Ætli þetta endi ekki með því að þeir fá noska herinn til að aðstoða sig á næstu vikum. Það virðist vera málið núna að fá noska aðstoð bæði á sviði hernaðar og peninga.
Þó gætu ráðamenn landsins endanlega riðið landanum í rassgatið og fengið breska herinn til að berja okkur niður ![]() Það myndi örugglega vekja kátínu ![]() já sæll ![]() |
Author: | Logi [ Sun 23. Nov 2008 11:03 ] |
Post subject: | |
Bjarkih wrote: Það sem ég er nú að spá í er hvaða lög hann braut með þessu sem varðar fangelsisvist
![]() Quote: " út með Hauk, inn með Geir". Eins og komið hefur fram í fréttum er þetta með Bónusfánann ekki ástæðan fyrir handtökunni... |
Author: | Phoenix [ Sun 23. Nov 2008 13:04 ] |
Post subject: | |
http://ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item238410/ http://visir.is/article/20081123/FRETTIR01/350550055/-1 ![]() ![]() |
Author: | Bjarkih [ Sun 23. Nov 2008 16:09 ] |
Post subject: | |
Logi wrote: Bjarkih wrote: Það sem ég er nú að spá í er hvaða lög hann braut með þessu sem varðar fangelsisvist ![]() Quote: " út með Hauk, inn með Geir". Eins og komið hefur fram í fréttum er þetta með Bónusfánann ekki ástæðan fyrir handtökunni... En af hverju voru þeir þá ekki löngu búnir að fara heim til hans og handtaka hann??? |
Author: | íbbi_ [ Sun 23. Nov 2008 16:15 ] |
Post subject: | |
ég er ánægður með þetta, sem er slæmt mál, gaman að sjá samtöðuna |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |