Page 1 of 1

Viltu ódýrara bensín?

PostPosted: Tue 18. Nov 2008 14:44
by Mazi!
Viltu ódýrara bensín?
4 kr afsláttur af dælu hjá Skeljungi
3 kr afsláttur af dælu hjá Orkunni, sem skv. öllum könnunum eru alltaf ódýrastir!
Ekki bara ódýrara bensín heldur líka:
15% - 20% afsláttur af smurþjónustu og dekkjum (nokkrir smuraðilar og stöðvar)
15% afsláttur af vörum hjá Stillingu
Kortið er staðgreiðslukort frá Skeljungi, með því er hægt að greiða beint á dælu (kortið er tengt debetreikningi). Kortið er sent á heimilsfangið þitt og það eina sem þú þarft að gera er að fara á www.skeljungur.is og virkja kortið!
Hrikalega einfalt!
Ef þú vilt lækka kostnaðinn er þetta sérstakt tilboð fyrir BMW kraftinn. Sendu línu á mazi@e30.is með þessum upplýsingum, til þess að fá bensínkort sent heim:
- Nafn
- Heimilisfang
- Kennitala
- Tékkaábyrgðanúmer (númer aftan á debetkortinu við hliðina á myndinni – 10 stafa númer, fyrst 4 stafir svo 6 stafir)
- Gildistími kortsins
- Gerð korts (Maestro eða VISA Electron)

PostPosted: Tue 18. Nov 2008 14:47
by Einarsss

PostPosted: Tue 18. Nov 2008 14:53
by Mazi!
Sko... fyrir það fyrsta er þráðurinn hér að ofan rúmlega 2 ára gamall.

Þar að auki er þar verið að miða við afslátt af verðlista, sem er alltaf hæsta verð. Ef menn skoða verðlistann og skoða síðan verð á dælu má glögglega sjá að 4 kr afsláttur af dælu er töluvert meira en 10 kr afsláttur af verðlista.

Um að gera að skoða hlutina í réttu samhengi strákar mínir

Takk samt fyrir góða ábendingu!

PostPosted: Tue 18. Nov 2008 15:04
by UnnarÓ
Mazi! wrote:Sko... fyrir það fyrsta er þráðurinn hér að ofan rúmlega 2 ára gamall.

Þar að auki er þar verið að miða við afslátt af verðlista, sem er alltaf hæsta verð. Ef menn skoða verðlistann og skoða síðan verð á dælu má glögglega sjá að 4 kr afsláttur af dælu er töluvert meira en 10 kr afsláttur af verðlista.

Um að gera að skoða hlutina í réttu samhengi strákar mínir

Takk samt fyrir góða ábendingu!

Hvaða „verðlista“ ertu að tala um sem er svona mikið hærri heldur en dæluverð?

PostPosted: Tue 18. Nov 2008 15:08
by Aron Andrew
UnnarÓ wrote:
Mazi! wrote:Sko... fyrir það fyrsta er þráðurinn hér að ofan rúmlega 2 ára gamall.

Þar að auki er þar verið að miða við afslátt af verðlista, sem er alltaf hæsta verð. Ef menn skoða verðlistann og skoða síðan verð á dælu má glögglega sjá að 4 kr afsláttur af dælu er töluvert meira en 10 kr afsláttur af verðlista.

Um að gera að skoða hlutina í réttu samhengi strákar mínir

Takk samt fyrir góða ábendingu!

Hvaða „verðlista“ ertu að tala um sem er svona mikið hærri heldur en dæluverð?


Þjónustuverð, það er verðlista verðið.

PostPosted: Tue 18. Nov 2008 15:27
by Mazi!
þarna má finna nýjasta verðlista Skeljungs fyrir eldsneyti: http://skeljungur.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=1235

PostPosted: Tue 18. Nov 2008 21:29
by KFC
Það er ný hægt að fá mun betri afslátt en þessa ef maður er með réttu samböndin :wink:

PostPosted: Wed 19. Nov 2008 08:03
by Viggóhelgi
KFC wrote:Það er ný hægt að fá mun betri afslátt en þessa ef maður er með réttu samböndin :wink:



jarí jarí jarí ég er KFC og er benzín kóngurinn?!!?!!? :D

hættu að monta þig og hjálpaðu til og gefðu öðrum með þéR? :)

PostPosted: Wed 19. Nov 2008 09:41
by JonHrafn
Fullt verð 159.9

Orkan fitjar 153,1

Með gamla kortinu er maður að fá vökvan á 149.9 sem er 1,8kr dýrara en ódýrasta almenna verðið hjá orkunni, Kænan í hafnafirði. ( 148.1)

Staðgreiðslu kortið í hafnafirði myndi selja manni vökvan á 145.1kr?

PostPosted: Wed 19. Nov 2008 11:35
by Vargur
Ef þú vilt lækka kostnaðinn er þetta sérstakt tilboð fyrir BMW kraftinn.


Er þetta ekki bara sama tilboð og allir fá ?

PostPosted: Wed 19. Nov 2008 14:47
by Mazi!
JonHrafn: Já það er kórrétt! 145.1 kr fyrir lítrann í HFJ!
Hér er svo hægt að skoða verð á hverri dælu fyrir sig: www.gsmbensin.is