bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Pirraður.... tryggingarfélög = böl. https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=33015 |
Page 1 of 1 |
Author: | krullih [ Wed 12. Nov 2008 20:11 ] |
Post subject: | Pirraður.... tryggingarfélög = böl. |
Falsar auglýsingar og vitleysa einkennir þessa dagana fyrirtæki landsins. Auglýstur er 30% afsláttur af vöru eftir að hún var hækkuð um 50% 2 vikum áður. Auglýstur er 50% afsláttur af vöru sem hafði aldrei haft "fyrra verð" Elísabet, dóttir TM auglýsir að ef ég sagði "nei, kommon!" seinast þegar ég opnaði reikning frá tryggingunum þá ætti ég að fara til hennar. Seinast opnaði ég reikning frá Elísabetu, og sagði "já sæll!" eftir stutta umræðu yfir lambakjöti með ora baunum (áfram ísland!) þá kom í ljós að ég er að borga sama iðgjald og tengdó, sem einnig er hjá elísabetu. Tengdó borgar s.s 9800kr (ca. man ekki nákvæma tölu) hann keyrir um á fully loaded Volvo XC90 sem að ég held sé ca 2 tonn á þyngd og metinn (ekki eins og það sé til tala í dag yfir það) á ca 4 milljónir í iðgjaldasamningnum. Ég og frúin, eru á kreppubíl - Yaris 1.0 sparíbauk sem er þar að auki 3 dyra (eða fleka, riiiisa hurðar) Bíllinn er metinn á eina milljón í samningi. Hvernig í fjandanum geta menn réttlætt svona ? Þess má geta að eigin áhætta á tjóni og fleira er allt í takt hjá okkur báðum. ABSÚRD. |
Author: | Kristjan [ Wed 12. Nov 2008 20:14 ] |
Post subject: | |
Hvað ertu gamall? Það er frekar mikill factor í þessu. |
Author: | krullih [ Wed 12. Nov 2008 20:17 ] |
Post subject: | |
Stærsti faktorinn er kannski að tengdapabbi er skráður fyrir báðum bílum - hann er tjónlaus 44ish karl. |
Author: | sh4rk [ Wed 12. Nov 2008 20:25 ] |
Post subject: | |
9800kall á mánuði kommon, ég er að borga 75kall á ári fyrir 2 bíla sem gera 6250 á mánuði svona í grófum dráttum |
Author: | srr [ Wed 12. Nov 2008 20:33 ] |
Post subject: | |
sh4rk wrote: 9800kall á mánuði kommon, ég er að borga 75kall á ári fyrir 2 bíla sem gera 6250 á mánuði svona í grófum dráttum
Er ekki einn af þeim skráður fornbíll ? Ég er að borga um 80.000 kr hjá Verði fyrir mína tvo bíla ![]() Þar af er einn á fornbílatryggingu, sem er ekki nema 21.500 kr á ári. |
Author: | sh4rk [ Wed 12. Nov 2008 20:49 ] |
Post subject: | |
jú annar er fórnbíll |
Author: | Axel Jóhann [ Wed 12. Nov 2008 21:33 ] |
Post subject: | |
Ég er að borga á mánuði af F-150 pikkanum mínum sem er 2,7 tonn að eiginþyngd og metinn á 3,5 millur 67.000kall á ári eða 6700 kall á mánuði. ![]() |
Author: | Grétar G. [ Wed 12. Nov 2008 23:02 ] |
Post subject: | |
Axel Jóhann wrote: Ég er að borga á mánuði af F-150 pikkanum mínum sem er 2,7 tonn að eiginþyngd og metinn á 3,5 millur 67.000kall á ári eða 6700 kall á mánuði.
![]() Eru bara 10 mánuðir í árinu hjá þér ? ![]() |
Author: | Lindemann [ Wed 12. Nov 2008 23:09 ] |
Post subject: | |
Axel Jóhann wrote: Ég er að borga á mánuði af F-150 pikkanum mínum sem er 2,7 tonn að eiginþyngd og metinn á 3,5 millur 67.000kall á ári eða 6700 kall á mánuði.
![]() Þú ert líka á landsbyggðinni og flokkast í lægri áhættuflokk en við sem erum með lögheimili á höfuðborgarsvæðinu. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |