bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Gjaldeyrir.
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=32918
Page 1 of 1

Author:  JonFreyr [ Fri 07. Nov 2008 18:44 ]
Post subject:  Gjaldeyrir.

Get útvegað gjaldeyri fyrir þá sem þurfa, veit að það er vesen að fá evrur þarna heima. Ég ætla mér ekki að blóðmjólka fólk og vildi bara athuga með áhugann fyrir þessu. Ég kem heim til Íslands um jólin og get auðveldlega verslað Evrur hérna úti og tekið með mér heim þann 21. desember. Þetta færi fram á raungengi dags "pöntunar" og ekkert öðruvísi, þeir sem vilja skoða gengið hjá mér í DK geta farið inn á http://www.valutakurser.dk og reiknað fyrir sjálfa sig.
Þeir sem vilja skoða þetta verða hins vegar að greiða sendingarkostnað á milli bankanna, svokallað millifærslugjald. Mönnum er frjálst að nýta sér Moneygram, Western Union eða sinn eigin banka. Þetta er hins vegar engin fyrirtækjaþjónusta, þetta er í boði fyrir Kraftsmeðlimi, nána vini þeirra eða fjölskyldur.


Ég veit að menn geta svindlað með farmiðann sinn hjá bankanum og farið nokkrum sinnum og verslað gjaldeyri. En þar sem að ég er í aðstöðu til að aðstoða þá fannst mér kjörið að koma þessu á framfæri :)

Annars bara góða helgi 8)

Author:  E55FFFan [ Fri 07. Nov 2008 18:51 ]
Post subject:  Re: Gjaldeyrir.

fallega af þer gert :)

Author:  JonFreyr [ Fri 07. Nov 2008 18:56 ]
Post subject: 

Takk Yoda :lol:

Author:  ömmudriver [ Fri 07. Nov 2008 20:25 ]
Post subject: 

Jón Freyr er svo mikill öðlingur enda af suðurnesjunum :wink:


Shiiiiii............ég fer út til Tenerife þann 22. Des :shock: 8)

Author:  Djofullinn [ Fri 07. Nov 2008 20:50 ]
Post subject: 

Hvað í fjandanum er Belöb? :P[/list]

Author:  JonFreyr [ Fri 07. Nov 2008 21:30 ]
Post subject: 

Belöb er upphæð :) og ég vill ekkert endilega meina að ég sé öðlingur og þá síst af öllu vegna tengsla minna við Suðurnesin. Skítapleis :lol: en þeir sem hafa áhuga mega svo gjarnan senda mér póst á tvillingefar@gmail.com .

Author:  HAMAR [ Fri 07. Nov 2008 21:38 ]
Post subject: 

Eru til íslenskar krónur í dönskum bönkum ?

Author:  JonFreyr [ Sat 08. Nov 2008 07:30 ]
Post subject: 

Ég hef allavega ekki lent í veseni með að senda krónur heim :)

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/