bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Frásögn frá Finnlandi
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=32848
Page 1 of 1

Author:  Bjarkih [ Tue 04. Nov 2008 21:23 ]
Post subject:  Frásögn frá Finnlandi

Ef menn eru að tala um kreppu á Íslandi þá er kannski fróðlegt að heyra frásögn af því hvernig þetta var í Finnlandi í þeirra kreppu, skuggalega margt sameiginlegt varðandi orsakirnar hjá þeim og okkur. Viðtalið byrjar þegar ca. 3/4 af upptökunni eru búnir: http://dagskra.ruv.is/streaming/ras1/?file=4416184

Author:  Zyklus [ Tue 04. Nov 2008 22:08 ]
Post subject: 

Athyglisvert viðtal.

Hér verður strax að hreinsa allan skít úr stjórnkerfinu, fá hæft fólk til starfa og ekki gera sömu mistök og Finnar gerðu.

En ef fólk heldur að við séum í kreppu núna þá er þetta bara rétt svo byrjunin.

Eins og hún segir í viðtalinu, við erum bara rétt dottin fram af bjargbrúninni, farin 5 metra niður af 5000.

Author:  Alpina [ Tue 04. Nov 2008 22:10 ]
Post subject: 

Zyklus wrote:
Athyglisvert viðtal.

Hér verður strax að hreinsa allan skít úr stjórnkerfinu, fá hæft fólk til starfa og ekki gera sömu mistök og Finnar gerðu.

En ef fólk heldur að við séum í kreppu núna þá er þetta bara rétt svo byrjunin.

Eins og hún segir í viðtalinu, við erum bara rétt dottin fram af bjargbrúninni, farin 5 metra niður af 5000.

Algerlega sammála

Author:  bebecar [ Wed 05. Nov 2008 07:32 ]
Post subject: 

Þetta virkar ekki - ertu nokkuð með annan link á þetta?

Author:  Geirinn [ Wed 05. Nov 2008 10:33 ]
Post subject: 

Alpina wrote:
Zyklus wrote:
Athyglisvert viðtal.

Hér verður strax að hreinsa allan skít úr stjórnkerfinu, fá hæft fólk til starfa og ekki gera sömu mistök og Finnar gerðu.

En ef fólk heldur að við séum í kreppu núna þá er þetta bara rétt svo byrjunin.

Eins og hún segir í viðtalinu, við erum bara rétt dottin fram af bjargbrúninni, farin 5 metra niður af 5000.

Algerlega sammála

.... jubb... passiði peningana ykkar... nú er spurning um að nota þá en eyða þeim ekki.

Author:  Bjarkih [ Wed 05. Nov 2008 16:58 ]
Post subject: 

bebecar wrote:
Þetta virkar ekki - ertu nokkuð með annan link á þetta?

Virkar fínt hjá mér, þessi þáttur var á rás 1 kl 11 þriðjudaginn 4. nóv. Ef það virkar ekki þá var þetta viðtal endurtekið á rás2 eftir hádegi sama dag.

Author:  Bjarkih [ Wed 05. Nov 2008 21:39 ]
Post subject: 

Var á fundi áðan með henni Sigurbjörgu sem talað er við í þessari klippu. Og eftir að hafa heyrt ýtarlegri frásögn af því hvernig þetta var þá segi ég bara það að ef ekkert gerist strax þá er eins gott að flytja bara strax í burtu. Það eru komin yfir 15 ár síðan kreppan skall á hjá þeim og þó margt gangi vel þá er margt sem ekki er komið í lag. Lærdómurinn sem við getur dregið af reynslu finnana er að það versta sem hægt er að gera er að panicka og gera ekki neitt Sem er nákvæmlega það sem stjórnvöld virðast vera að gera. Og þar sem við erum svo fá hér á Íslandi þá verður eitthvað að gerast innan 2-3 mánaða annars er allt farið á rassgatið. Það eru meira að segja yfirgnæfandi líkur á því að 80-90% fyrirtækja á Íslandi verði komin í tæknilegt (bókhaldslegt) gjaldþrot fyrir áramót með þessu áframhaldi og 95% sjávarútvegsfyrirtækja.

Author:  Alpina [ Wed 05. Nov 2008 21:41 ]
Post subject: 

Bjarkih wrote:

Þetta er álika lýsing og 1402 :shock: :shock: :shock:

Author:  sh4rk [ Wed 05. Nov 2008 22:02 ]
Post subject: 

Það stefnir allt í óefni ef það verður ekkert gripið inní

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/