bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Sjaldnar í skoðun https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=32816 |
Page 1 of 2 |
Author: | bimmer [ Mon 03. Nov 2008 15:36 ] |
Post subject: | Sjaldnar í skoðun |
Hvað segja menn um þetta? Gott eða slæmt? http://t24.is/?gluggi=grein&tegund=frett&id=4125 |
Author: | Berteh [ Mon 03. Nov 2008 15:39 ] |
Post subject: | |
Slæmt, það eru svooo margir sem hugsa svo illa um bílana sína og er skoðun það eina sem skikkar suma að gera við þá ![]() |
Author: | Thrullerinn [ Mon 03. Nov 2008 15:57 ] |
Post subject: | |
Minnkar álag á verkstæðum í það minnsta, þetta er í raun slæm hugmynd.. |
Author: | Kristjan [ Mon 03. Nov 2008 16:18 ] |
Post subject: | |
Berteh wrote: Slæmt, það eru svooo margir sem hugsa svo illa um bílana sína og er skoðun það eina sem skikkar suma að gera við þá
![]() x2 |
Author: | arnibjorn [ Mon 03. Nov 2008 16:20 ] |
Post subject: | |
Gott fyrir E30 eigendur ![]() |
Author: | Eggert [ Mon 03. Nov 2008 16:23 ] |
Post subject: | |
Sammála því, ekki góð hugmynd. Það eru þegar margir sem trassa að fara með bílana sína í skoðun í langan tíma, og sumir komast upp með í rauninni að fara með þá annað hvort ár ef þeir fara nógu seint og það nær yfir áramót. Og á meðalbílnum er yfirleitt eitthvað sem þarf að fixa, hvort sem það sé smávægilegt eða ekki, og þetta í raun kemur í veg fyrir að fólk sé að keyra um á biluðum eða óöruggum bílum. Fólk mun örugglega trassa t.d. bremsuviðhald með þessari reglugerð, og þá er spurning hvort það muni eitthvað hafa áhrif á tjóntíðnina. |
Author: | ValliFudd [ Mon 03. Nov 2008 16:37 ] |
Post subject: | |
Mömmu var "sleppt í gegn" á handónýtum dekkjum og fl.. Heimskulegt.. Ég fer með bílinn í skoðun til að vita hvort eitthvað sé að honum. Þeir sjá allskonar hluti sem ég hef ekki hugmynd um og þetta er staður sem ég treysti til þess að láta mig vita af svoleiðis hlutum svo ég drepi mig ekki í umferðinni.. Eða aðrir drepi mig. Það þarf að vera hægt að treysta því að bíllinn á eftir manni sé með bremsur.. En svo sér maður jú þessa lúða í umferðinni með 04 miða o.s.frv... Og ekki líður mér vel nálægt svoleiðis bíl á 90 á Sæbraut.. Anything can happen... |
Author: | Bjarki [ Mon 03. Nov 2008 17:22 ] |
Post subject: | |
gott fyrir ábyrga bíleigendur ekki nema þegar þeir óábyrgu valda slysum bitna á okkur. Ef skoðunarmenn fara eftir reglum og horfa ekki framhjá hlutum og menn fá sekt ef þeir fara ekki í skoðun á réttum tíma þá held ég að þetta sé bara gott. Ég er á bíl með endurskoðun 11 síðan í fyrra og það er ekkert vesen ennþá. Bíllinn hefur ekki fengið gilda skoðun í nokkur ár. Þetta get ég ekki gert m.v. nýjar reglur öðruvísi en að fá sekt. |
Author: | Alpina [ Mon 03. Nov 2008 18:02 ] |
Post subject: | |
Þetta er bæði og ![]() |
Author: | Geirinn [ Mon 03. Nov 2008 21:43 ] |
Post subject: | |
Verður til þess að fleiri bílum er fargað... hægt að líta á það sem góðan og slæman hlut. |
Author: | IvanAnders [ Mon 03. Nov 2008 23:04 ] |
Post subject: | |
Algjör steypa!!! Þar sem ég vinn við þjónustuskoðanir og viðgerðir á bílum, get ég sagt ykkur að svo virðist vera, að ekkert sé sárara fyrir meðalíslendinginn en að eyða peningum í viðhald á bílum!!! Einnig er sú gerð fólks sem að skilur bara engan veginn að það sé ekki nóg að setja bara bensín á bílinn og keyra svo! Þetta er oft fólk sem að hefur átt og "rekið" bíla áratugum saman, en verður alltaf jafn hissa þegar að bremsuklossar klárast t.d. Bara um kvöldmatarleytið í dag var ég að skoða Aygo dós fyrir fimmtuga konu sem ég þekki. "byrjaði að koma eitthvað hljóð frá bremsunum um daginn....." Klossarnir voru svo búnir að einn klossinn hafði yfirgefið bifreiðina, dælan rústað disknum, og diskurinn rústað dælunni... Einnig hafði glóheitt málmsvarfið fokið með hliðinni á bílnum, og brennt sig inní lakkið á honum! Þetta er ekki eitthvað sem að gerist á einum degi! Þessi bíll er árgerð 2006 og þarf ekki að fara í skoðun fyrr en á næsta ári! Fólki veitir ekkert af ársskoðun! Annars verða ansi mörg vafasöm ökutæki á götunum ![]() |
Author: | Schulii [ Mon 03. Nov 2008 23:08 ] |
Post subject: | |
IvanAnders wrote: Algjör steypa!!!
Þar sem ég vinn við þjónustuskoðanir og viðgerðir á bílum, get ég sagt ykkur að svo virðist vera, að ekkert sé sárara fyrir meðalíslendinginn en að eyða peningum í viðhald á bílum!!! Einnig er sú gerð fólks sem að skilur bara engan veginn að það sé ekki nóg að setja bara bensín á bílinn og keyra svo! Þetta er oft fólk sem að hefur átt og "rekið" bíla áratugum saman, en verður alltaf jafn hissa þegar að bremsuklossar klárast t.d. Bara um kvöldmatarleytið í dag var ég að skoða Aygo dós fyrir fimmtuga konu sem ég þekki. "byrjaði að koma eitthvað hljóð frá bremsunum um daginn....." Klossarnir voru svo búnir að einn klossinn hafði yfirgefið bifreiðina, dælan rústað disknum, og diskurinn rústað dælunni... Einnig hafði glóheitt málmsvarfið fokið með hliðinni á bílnum, og brennt sig inní lakkið á honum! Þetta er ekki eitthvað sem að gerist á einum degi! Þessi bíll er árgerð 2006 og þarf ekki að fara í skoðun fyrr en á næsta ári! Fólki veitir ekkert af ársskoðun! Annars verða ansi mörg vafasöm ökutæki á götunum ![]() Shit!! ![]() |
Author: | Berteh [ Tue 04. Nov 2008 09:35 ] |
Post subject: | |
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/1 ... _okutaekj/ |
Author: | Geirinn [ Tue 04. Nov 2008 12:46 ] |
Post subject: | |
Hvað segiði, hvenær þarf maður að tussast með bílinn í skoðun, endar á 7 ![]() |
Author: | ValliFudd [ Tue 04. Nov 2008 14:55 ] |
Post subject: | |
Geirinn wrote: Hvað segiði, hvenær þarf maður að tussast með bílinn í skoðun, endar á 7
![]() úbbs.. 15 þús króna sekt ![]() 2 mánuðir framyfir = 15 þús í sekt.. 50% afsl ef borgað er innan viss tíma.. tók gildi 1. okt ![]() http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item234998/ |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |