bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

mótmæli næsu helgi
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=32796
Page 1 of 2

Author:  doddi_kef [ Sat 01. Nov 2008 20:37 ]
Post subject:  mótmæli næsu helgi

bara svona áður en ég birja þá er ég með les og skrif blindu.

en allavega þá var mér að detta það í hug þar sem ég er nú búin að missa vinnuna og gét ekki samið neit um bílalánið mitt eins og sumir hér kanski líka. Væri ekki bara sniðugt að mæta næstu helgi með bílana... og skilja þá bara eftir fyrir utan alþíngis húsið eða seðlabánkan. Líma svo á gluggan davíð þú mátt hirða kaggan ég gét ekki borgað af honum.
Ég er með konu og barn og gét ekki borgað 86 þúsund krónur á mánuði með 50 þúsund króna leigu og svo borga triggingar upp á 120 þúsund fyrir árið,það eru öruglega eikkurir verra settir en ég hérna og vil ég bara benda þeim á að eikkvað verðum við að géra það er ekki hægt að láta man borga 870 þúsund af bíl sem stendur svo bara í 3.4 miljónum en stóð í 3.09 m þegar maður keifti hann

Author:  Angelic0- [ Sat 01. Nov 2008 21:25 ]
Post subject: 

væri náttúrulega rosalegt að mæta bara með bílaflota og planta fyrir utan alþingishúsið og sýna þeim fjöldann af því sem að er að gerast...

en þannig er það nú bara orðið í dag að Lögreglan er orðin vel græjuð fyrir svona... nú er ég kominn með þær samsæriskenningar að Bjössi "klikkhaus" Bjarnarson hafi vitað að þetta væri í vændum og þessvegna væri búið að græja til rafbyssur og slík tól :P

Author:  Xavant [ Sat 01. Nov 2008 21:49 ]
Post subject: 

sprengja bara alþingishúsið ásammt öllum þessum hálvitum :!:

Author:  . [ Sat 01. Nov 2008 22:03 ]
Post subject: 

svarta manninum verður ekki haldi niðri mikið lengur! við verðum að gera uppreizn!

Author:  Xavant [ Sat 01. Nov 2008 22:20 ]
Post subject: 

. wrote:
svarta manninum verður ekki haldi niðri mikið lengur! við verðum að gera uppreizn!

I'm game !

Author:  doddi_kef [ Sun 02. Nov 2008 00:04 ]
Post subject: 

Þegar fidel caestro gérði uppreisn þá var hann bara út í skógi.
Nú segi ég eins og hann hefur eflaust sagt þá

Ég mun ekki standa og láta traðka á mér og mínum,þér og þínum heldur mun ég rísa upp og traðka á þeim sem gérðu okkur þetta,það er komin tími á biltingu!

Author:  Angelic0- [ Sun 02. Nov 2008 08:43 ]
Post subject:  Re: já

doddi_kef wrote:
Þegar fidel caestro gérði uppreisn þá var hann bara út í skógi.
Nú segi ég eins og hann hefur eflaust sagt þá

Ég mun ekki standa og láta traðka á mér og mínum,þér og þínum heldur mun ég rísa upp og traðka á þeim sem gérðu okkur þetta,það er komin tími á biltingu!

Ég verð bara að vera sammála Dodda hérna...

Þetta er þreytt ástand :!:

Author:  zazou [ Sun 02. Nov 2008 09:45 ]
Post subject: 

. wrote:
svarta manninum verður ekki haldi niðri mikið lengur! við verðum að gera uppreizn!

Westurhliðin, virðing, frumskógurinn er gegnheill.

Reyndar ekki slæm hugmynd að skilja lánabílana bara eftir, einn á eftir öðrum þarna niðri í miðbæ :twisted:

Eða bara fyrir framan höfuð-/starfsstöðvar fyrirtækjanna sem þessir gúndar vinna hjá. Henda lyklinum inn um póstlúguna.

Author:  Alpina [ Sun 02. Nov 2008 11:40 ]
Post subject: 

zazou wrote:
. wrote:
svarta manninum verður ekki haldi niðri mikið lengur! við verðum að gera uppreizn!

Westurhliðin, virðing, frumskógurinn er gegnheill.

Reyndar ekki slæm hugmynd að skilja lánabílana bara eftir, einn á eftir öðrum þarna niðri í miðbæ :twisted:

Eða bara fyrir framan höfuð-/starfsstöðvar fyrirtækjanna sem þessir gúndar vinna hjá. Henda lyklinum inn um póstlúguna.

Tel að þessi ummæli hjá þér Brynjar ómi af beiskju sökum þeirra stöðu er þú ert í v/ X5 :?

Author:  bebecar [ Sun 02. Nov 2008 11:49 ]
Post subject: 

Það er náttúrulega ekki gaman að sitja uppi með bíla sem manni langar kannski ekki til að eiga og það er fjandakornið eiginlega ekki hægt að gera eitt eða neitt í því um þessar mundir.

Mun skárra að sitja uppi með almennilega bíla auðvitað :lol:

Author:  Schulii [ Sun 02. Nov 2008 12:43 ]
Post subject: 

Jájá, væri rosaflott að mæta með bílana og allt það. Verulegt vandamál á ferðinni enginn neitar því.. en hvað svo?? ..hvað er það sem þið haldið að ráðamenn geti gert?? Borgað bílana fyrir ykkur? Eða skattborgarar? Ríkið er ÉG!!!!!!! og VIÐ!!!!!!!!

Varðandi mótmælin að fyrr skal ég svelta heldur en að fara í mótmæli og stilla mér upp fyrir aftan borderline retard eins og Sturla Jónsson.

Ef það eiga að vera alvöru mótmæli, þá eiga alvöru menn að standa fyrir þeim, með alvöru lausnir!

Author:  Alpina [ Sun 02. Nov 2008 12:47 ]
Post subject: 

Schulii wrote:

:clap: :clap: :clap: :clap: :clap: :clap:

Author:  gunnar [ Sun 02. Nov 2008 13:24 ]
Post subject: 

Schulii wrote:
Jájá, væri rosaflott að mæta með bílana og allt það. Verulegt vandamál á ferðinni enginn neitar því.. en hvað svo?? ..hvað er það sem þið haldið að ráðamenn geti gert?? Borgað bílana fyrir ykkur? Eða skattborgarar? Ríkið er ÉG!!!!!!! og VIÐ!!!!!!!!

Varðandi mótmælin að fyrr skal ég svelta heldur en að fara í mótmæli og stilla mér upp fyrir aftan borderline retard eins og Sturla Jónsson.

Ef það eiga að vera alvöru mótmæli, þá eiga alvöru menn að standa fyrir þeim, með alvöru lausnir!

Sammála þessu, sérstaklega með Sturlaða manninn.. Myndi ekki koma nálægt neinum atburði sem þessi maður er bendlaður við.

Author:  Danni [ Sun 02. Nov 2008 13:42 ]
Post subject: 

Já þetta er leiðindarástand en þeir sem tóku gengislán tóku bara þessa áhættu (ég þar með talinn).

Þó að ég er alveg drullupissed að það er milljón meira ákvílandi á bílnum sem mig langar ekkert til að eiga lengur (evanda) og afborganir alveg sky high þá er ég ekki að fara að gera neitt úr því. Bara svekk staða, ég hefið átt að hugsa út í hverjar afleiðingarnar gætu orðið þegar ég tók við þessu láni. Sem ég reyndar gerði en bjóst ekki alveg við svona slæmu ástandi :shock:

En ég er sem betur fer ennþá með vinnu (7,9,13) og vona bara það besta að ég missi hana ekki því þá er ég djúpum skít...

Author:  Schulii [ Sun 02. Nov 2008 13:46 ]
Post subject: 

Ég vill taka það fram að það hlakkar EKKERT í mér yfir því að fólk sé í vandræðum með dýru bílana sína. Mér finnst þetta hörmulegt að fjölskyldufólk skuli vera í svona miklum vandræðum. Hinsvegar hefur mér fundist lausnarleiðirnar bera keim af móðursýki og taugaveiklun.

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/