bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Löggan með viðbragðsáætlun vegna kreppunnar https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=32613 |
Page 1 of 1 |
Author: | Tommi Camaro [ Thu 23. Oct 2008 19:28 ] |
Post subject: | Löggan með viðbragðsáætlun vegna kreppunnar |
http://visir.is/article/20081023/FRETTIR01/610259037/-1 Lögreglan hefur tilbúna viðbragðsáætlun komi til múgæsings eða annars ófriðar vegna efnahagsástandsins. Reiði í samfélaginu hefur orðið til þess að öryggisgæsla í kringum ráðamenn og einstaka menn í viðskipta- og bankaheiminum hefur verið efld. Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn, segir að sér komi á óvart hve lítil breyting hefur orðið á daglegu lífi fólks, sem standi virðist ríkja ró og friður. Hann er þó viðbúin því að ýmislegt kunni að breytast þegar fleiri missa vinnu sína og harðna fer Lögreglan hefur þegar sett saman viðbragðsáætlun, fari svo að gamanið kárni. Fréttastofa Stöðvar 2 hefur heimildir fyrir því að sérstök öryggisgæsla hafi verið við heimili fyrrverandi háttsetts bankastarfsmanns um það leyti sem bankarnir fóru í þrot, auk þess sem gæsla hefur verið efld í kringum helstu ráðamenn þjóðarinnar að undanförnu. Vel má álykta að hert öryggisgæsla sé til marks um að talsverð undirliggjandi ólga sé í samfélaginu. |
Author: | Lindemann [ Thu 23. Oct 2008 20:01 ] |
Post subject: | |
þeir mættu nú kannski frekar fara að æfa sig á hengingarhnútunum til að geta hengt þessi fífl sem fara á þessum tímum útí það að brjótast inn og stela annara manna eigum.......... ![]() skítt með einhverja viðbragðsáætlun. |
Author: | Einarsss [ Thu 23. Oct 2008 21:08 ] |
Post subject: | |
þeir ættu amk að geta ráðið eitthvað decent fólk í lögregluna nú þegar atvinnuleysið fer hækkandi |
Author: | Stanky [ Thu 23. Oct 2008 23:18 ] |
Post subject: | |
Spurning hvort svona frétt sé ekki "múgæsing" útaf fyrir sig? Afhverju héldu þeir þessu leyndu? Annars er gott að undirbúa þetta - það getur allt gerst á þessum tímum.... |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |