bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Vera jákvæður í dag !!
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=32477
Page 1 of 3

Author:  20"Tommi [ Thu 16. Oct 2008 11:51 ]
Post subject:  Vera jákvæður í dag !!

Mæli með þvi að menn verði jákvæðir í dag og ekkert kreppu tal .

Þeir sem ekki fóru ílla út úr þessu kjaftæði verðum að vera jákvæð þvi þeir sem eiga erfitt í dag þurfa smá jákvæðni í líf sitt og er það undir okkur komið að géfa þeim það .

Það kémur sumar eftir þetta haust og munið þetta eru bara peningar sem koma og fara (betra er þegar þeir koma)...
Með jákvæðni og góðum áætlunum
mun okkur takast að komast út úr þessu og ég er sannfærður um það að við verðum fyrrst allra landa til að komast aftur á flug.

Í sumar held ég örugglega ,var ísland valið besta landið til að búa í af einhverri stofnun í EU ....ísland var best í heimi ,er það kanski ekki núna akkúrat í augnablikinu en verður það aftur það gét ég lofað ykkur.!!

Einn svakalega jákvæður.
:D

Author:  íbbi_ [ Thu 16. Oct 2008 13:04 ]
Post subject: 

nákvæmlega, ég var búinn að vera svo neikvæður og þunglyndur yfir þessu að það var farið að skyggja á allt annað..

þjappið ykkur saman við þá sem þið viljið hafa ykkur næst, og spáið í því sem skiptir máli, maður var löngu hættur að sjá það,

þetta er vondir tímar, sem fylgir fullt af góðum hlutum, maður þarf bara að sjá það.

maður ræður engu um áframhaldið.. þetta er bara bolti sem er byrjaður að rúlla og hann kemur við hjá okkur flestum

Author:  Hannsi [ Thu 16. Oct 2008 14:03 ]
Post subject: 

Ég held að ég sé eini maðurinn sem ég veit um sem er ekkert að stressa sig yfir þessu ástandi :lol:

Ef ég get ekki stjórnað því sem er að gerast ætla ég ekki að vera þungur og fúll yfir því.

Author:  Schulii [ Thu 16. Oct 2008 14:39 ]
Post subject: 

Við erum búin að búa á nánast óbyggilegri eyju í 1100 ár. 98% af þeim tíma höfum við búið við erfiðar aðstæður (semsagt ekki síðustu 20 ár :lol: ) og við munum vera ótrúlega fljót að aðlagast nýjum aðstæðum.

Þegar erlendar stofnanir eru að segja hversu lengi við munum vera að vinna okkur uppúr þessu hyldýpi eru þeir að miðað við venjulegt fólk. Við erum ekki venjulegt fólk. Heimsbyggðin mun undrast mjög á því hversu fljót við verðum að snúa taflinu við.

Við erum stútfullt land af viðskiptafræðingum, hagfræðingum, verkfræðingum, fjármálaverkfræðingum, hjúkrunarfræðingum og fólki með mikla reynslu sem nánast allt á það sameiginlegt að vera harðduglegt. Með allar þessar náttúruauðlindir, mannauð og óbilandi þrjósku í að reyna að hafa það notalegt munum við setja enn eitt heimsmetið. Heimsmet í að vera fljót að laga efnahagskerfið. Einfaldlega með því að færa mínusinn yfir jafnaðarmerkið og breyta honum þannig í plús! Allt á mettíma!!!!

Author:  srr [ Thu 16. Oct 2008 14:44 ]
Post subject: 

Það er verið að koma til móts við mjög marga þessa dagana...

1. Lýsing og aðrir hafa boðist til að fresta greiðslum af bílalánum í erlendri mynt um nokkra mánuði á meðan ástandið róast.
2. Íbúðalánasjóður býður upp á greiðslufrystingu á meðan fólk er að vinna úr vanskilum.
3. Búið að lækka stýrivexti svo vextir fara lækkandi á ýmsum lánamöguleikum.

Algjör óþarfi að vera svartsýnn, það er verið að gera allt sem hægt er til að laga ástandið dag frá degi :wink:

Author:  ///M [ Thu 16. Oct 2008 14:48 ]
Post subject: 

Schulii wrote:
Við erum búin að búa á nánast óbyggilegri eyju í 1100 ár. 98% af þeim tíma höfum við búið við erfiðar aðstæður (semsagt ekki síðustu 20 ár :lol: ) og við munum vera ótrúlega fljót að aðlagast nýjum aðstæðum.

Þegar erlendar stofnanir eru að segja hversu lengi við munum vera að vinna okkur uppúr þessu hyldýpi eru þeir að miðað við venjulegt fólk. Við erum ekki venjulegt fólk. Heimsbyggðin mun undrast mjög á því hversu fljót við verðum að snúa taflinu við.

Við erum stútfullt land af viðskiptafræðingum, hagfræðingum, verkfræðingum, fjármálaverkfræðingum, hjúkrunarfræðingum og fólki með mikla reynslu sem nánast allt á það sameiginlegt að vera harðduglegt. Með allar þessar náttúruauðlindir, mannauð og óbilandi þrjósku í að reyna að hafa það notalegt munum við setja enn eitt heimsmetið. Heimsmet í að vera fljót að laga efnahagskerfið. Einfaldlega með því að færa mínusinn yfir jafnaðarmerkið og breyta honum þannig í plús! Allt á mettíma!!!!


Verður spennandi að sjá.. en við erum klárlega ekki með mikla reynslu miðað við löndin í kringum okkur :)

Author:  íbbi_ [ Thu 16. Oct 2008 15:29 ]
Post subject: 

lýsing og félagar bjóða bara þeim sem eru ekki og hafa ekki komist í banskil síðustu 12 mánuði frystingu.. HAHA einmitt. þeir sem eru með allt í standi þurfa mest á þessu að halda, einmitt

Author:  Angelic0- [ Thu 16. Oct 2008 15:33 ]
Post subject: 

íbbi_ wrote:
lýsing og félagar bjóða bara þeim sem eru ekki og hafa ekki komist í banskil síðustu 12 mánuði frystingu.. HAHA einmitt. þeir sem eru með allt í standi þurfa mest á þessu að halda, einmitt


Glitnir býður uppá að lengja lánin eins langt og hægt er... en þá verður líka að stytta þau aftur þegar að ástandið róast....

Ég er mikið að pæla í að nýta mér þennan möguleika..

Author:  ///MR HUNG [ Fri 17. Oct 2008 09:31 ]
Post subject: 

Þetta eru nú bara peningar,Þeir koma og fara og andskotinn hafi það ef þeir koma svo ekki aftur bara :lol:

Author:  Sezar [ Fri 17. Oct 2008 14:10 ]
Post subject: 

///MR HUNG wrote:
Þetta eru nú bara peningar,Þeir koma og fara og andskotinn hafi það ef þeir koma svo ekki aftur bara :lol:


Það sem fer upp, kemur alltaf niður aftur..............................vona ég :wink:

Author:  Alpina [ Fri 17. Oct 2008 18:45 ]
Post subject: 

Sezar wrote:
///MR HUNG wrote:
Þetta eru nú bara peningar,Þeir koma og fara og andskotinn hafi það ef þeir koma svo ekki aftur bara :lol:


Það sem fer upp, kemur alltaf niður aftur..............................vona ég :wink:


Þetta er ég alltaf að segja sponna ....... en hann vill vera í hæðstu hæðum ..sem oftast

Author:  Sezar [ Fri 17. Oct 2008 20:49 ]
Post subject: 

Alpina wrote:
Sezar wrote:
///MR HUNG wrote:
Þetta eru nú bara peningar,Þeir koma og fara og andskotinn hafi það ef þeir koma svo ekki aftur bara :lol:


Það sem fer upp, kemur alltaf niður aftur..............................vona ég :wink:


Þetta er ég alltaf að segja sponna ....... en hann vill vera í hæðstu hæðum ..sem oftast


Sponni hefur nú aldeilis komið þér í klípu á sinni lífsleið :D

Author:  Alpina [ Fri 17. Oct 2008 21:15 ]
Post subject: 

Sezar wrote:
Alpina wrote:
Sezar wrote:
///MR HUNG wrote:
Þetta eru nú bara peningar,Þeir koma og fara og andskotinn hafi það ef þeir koma svo ekki aftur bara :lol:


Það sem fer upp, kemur alltaf niður aftur..............................vona ég :wink:


Þetta er ég alltaf að segja sponna ....... en hann vill vera í hæðstu hæðum ..sem oftast


Sponni hefur nú aldeilis komið þér í klípu á sinni lífsleið :D



Já....... en eftir samtal okkar í dag þá er gott að brosa út í annað og horfa á björtuhliðina ,,,

ekki -->> lengi getur vont versnað :lol: :wink: :wink: :wink: :wink: :wink:

Author:  ///M [ Sat 18. Oct 2008 01:50 ]
Post subject: 

Ísland á eftir að vera ömurlegt í mörg mörg ár... ég kíki kannski í heimsókn 2018! Þýðir ekkert að væla, svona er þetta bara. Þeir sem eru búnir að lifa hátt og ekki átt efni á því eru að draga alla með sér í ömurlegheit og þunglyndi.

Við erum að tala um stráka sem eru að bóna bíla eða vinna á bensínstöð með fleiri tuga miljóna í lán á bakinu... eðlilegt? nei... gengur þetta til lengdar? nei... komið að skuldardögum? JÁ. Hverjir þurfa að borga???

Það eru einhverjir bæði hérna á bmwkrafti og á l2c sem er að monta sig af "kreppu bílunum" sínum, margir hverjir sem eiga ekki krónu í draslinu og eru að monta sig af því.. sorry en ég verð að spryja hvað í andskotanum er að ykkur? var ykkur hennt í gólfið þegar þið voruð krakkar eða tróð einhver slönguni upp í sparigatið gegn ykkar vilja? Eruð þið í alvörunni að gera grín að stöðunni sem er kominn upp? Haldið þið að þetta verði fyndið þegar það er komið 70% verðbólga, já eða þegar ísland verður gjaldþrota og eitthvað annað land tekur við þrotabúinu.. eins og til dæmis rússa kannski? ætlið þið þá ennþá að brosa yfir vesældinni sem þið eruð búnin að taka þátt í?

Það sem fólk þarf að hafa í huga er að þú getur tapað vinnuni, life savings, pension funds og svo framvegis.... en það sem stendur uppúr ÞÚ TAPAR ALDREI SKULDUM!

Ég er klárlega með sæma í liði þegar ég horfi upp á ykkur aumingjana sem hafið eytt peningum sem þig ekki eigið. Til helvítis með ykkur :!: afi minn og amma, mamma, pabbi, ég, bræður mínir og systur erum að borga undir ykkur... Ég vona að karma taki ykkur í þurt rassgatið. Það er eitt að taka hóflegt lán til að kaupa hús, jafnvel til að kaupa drauma bílinn... en að skulda meira en þú nokkurntíman getur borgað... setjið þetta upp í excel... þetta gengur ekki upp.

Hart? já... þannig er heimur sem við búum í... það er ekkert gefins, það eru engin ókeypis RÖNN.


Vælið eins og þið getið, það er ekki að fara að hjálpa.

Author:  E55FFFan [ Sat 18. Oct 2008 02:18 ]
Post subject: 

var ekki verið að tala um góða skapið :?

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/