það verður nú að viðurkennast að þetta er mjög áhugaverður bíll,
það er svo annað mál að það verður að viðurkennast að nýja corvettan er búinn að drulla rækilega yfir þá sem útá hana hafa sett, bara orginal corvette er orðinnn gífurlega öflugt apparat, og get ég vottað það sjálfur að bílar eins og E60 M5 eru ekki svo hraðskreiðir þegar þeir mæta C6, (dæmið sem ég vísa í var 05 m5 vs 05 corvette ls2)
nýja orginal vettan er 430hö og 1500kg, sem eru hlutföll í lagi,
Z06 bíllinn er eflaust eitthvað það mesta sjokk sem bílaheimurinn hefur fengið á sig að undaförnu, gagngrýnendur eins og tiff needel og J Clarkson hafa báðir talað um að þetta sé einhevr hraðskreiðasti bíll á braut sem völ er á, fyrir brot af því sem flestir álíka bílar kosta,
dæmi um hversu öflug á flestum sviðum Z06 bíllinn er í orginal formi,
1400kg/500hö<-- swiing
1.2G+
1:22 top gear brautin
undir 11.5 kvartmiluna stock,
ástæðan fyrir þessu er síðan ekki svo flókin, Z06 er ekkert nema C6R sem er búið að döbba upp fyrir götuna, ég horfði á þátt á discovery um hönnun Z06, og þar var sýnt svart á hvítu hversu mikið þeir notuðu C6R bílin og kappakstrana sem hún tekur þátt í til að þróa z06 bílin,
en þar liggur einmitt helsti munurinn á z06 og C6, þetta er í raunini alls ekki sami bíllinn, það er annað chassis í þessum bílum. m.a er mótorinn í Z06 á öðrum stað, bæði aftar og neðar, auk þess sem þeir nota önnur efni í grindina og flr, Z06 er með chassis beint úr C6R kappaksturbílnum,
þetta fer líka ekki framhjá þeim sem keyra þessa bíla, handlingið aflið og samanlögð afköst bílsins eru mögnuð, en hann er engu "dannaðari" heldur en meðan kappasktursbíll nánast, varla samræðuhæft vegna hávaða, engin miskun í fjöðrun og svo framvegis, auk þess sem evrópumbúum fannst innrétingin hálf beisin.. steypt í mót úr sirka 5 playmobile köllum.. myndi maður halda allavega,
þessvegna fannst manni forvitnilegt að sjá þegar þeir kynntu ZR1 bílin, fyrir mér var það nokkuð ljóst að þessi bíll hlyti að verða algjört masterpiece eða þvílíkt flopp,
það sem maður fékk strax að vita var,
600hp+
C6R/Z06 chassis
100.000$+
ég fór sjálfur að íhuga hvort þetta væri ekki of mikið afl fyrir bíl sem á að höndla vel.. og vera afturdrifinn,
þá fann ég einhverstaðar viðtal við einn af höfuð hönnuðum ZR1 og Z06 og hafði hann eitthvað á þennan veginn að segja,
Zr1 á ekki bara að vera "hraðskreiðasta" vettan, heldur sú besta, hann gaf í skyn að ekki væri endilegt að Zr1 myndi elta Z06 í gegnum þröngar beygjur, heldur mætti lýta á þetta eins og t.d porsche 997 GT3 og Turbo, Zr1 bíllinn myndi koma með hluti eins leðurklædd mælaborð og mun vandaðari íhluti en áður hafa sést í Corvette, og er augljóslega stíluð meira inn á evrópumarkað, einnig var eitt atriði sem Z06 þjáðist af, en það var lift á miklum hraða, sem útskýrir kittið á Zr1,
svo kom að því að bíllinn var frumsýndur, 1500kg, 638hö, electro/magnetic demparar, fully leather innréting og i.m.o bara mjög smekklegt útlit,
nú var ég hinsvegar að ljúka að lesa tvo reynsluakstra á græjuni og ég veðr að segja að þetta er farið að lýta nokkuð vel út, báðir blaðamenn tala um að hröðunin sé ein sú mesta sem þeir hafa orðið vitni af í fjöldaframleiddum bíl ever.. ólíkt því sem maður hélt þá er búið aðuppfæra stýrisganginn í Zr1 og´s.k blaðamani búið að fjarlægja þá litlu galla sem hægt var að finna að Z06(sem fékk þetta upditeí leiðini btw)
uppgefnar tölur frá GM eru svipaðar og jafnvel lægi en menn hafa verið að ná á Z06 bílin, en eins og með Z06 og venjulega C6 þá eru uppgefnir tímar á þeim töluvert norðanmeginn við það sem raunverulega er,
uppgefin stats á Zr1 er m.a
1/4m 11.3@131mph<-- (ATH Bugatti veyron 10.8@139)
top spead 205mph
0-100mph 7.0sec
0-60 3.4sec
1.05-skidpad
7.2x nurnburg
bíllinn er ekki kominn í framleiðslu, en blaðamenn hafa verið að prufa sýnishorn af því sem koma skal, og flestar greinar sem maður les koma inn á hversu hræddir ökumennirnir voru við bílin, bíllinn mun víst vera s.k tilfinningu jafn snar og ör í beygjum og Z06, en í mun fágaðari umbúðum og jú.. eins furðulegt og það er.. á allt öðru leveli afl-lega séð..
það sem hinsvegar virðist eiga að aðskilja Zr1 að mestu leyti er frágangur og gæði, tæknideild GM hefur víst svitnað vel yfir fjöðrunarkerfinu, en bíllinn á að verða þægilegur til langferða t.d um evrópu, uppgefin eyðsla er 20mpg, sem GM claimar að sé eyðslugrennsti 600hp bíllinn á markaðinum.. (jei!!)
ég held reyndar að Z06 verði ennþá berserkurinn í corvettu famelíuni, hrá brútal.. og ódýr,
en þessi Zr1 hinsvegar virðist ætla verða með einum mest spennandi sportbíl sem kanin hefur gefið frá sér held ég,
og hvað finnst svo ykkur..
