Quote:
Í fréttunum var einhver kona að væla yfir því að hún hefði keypt köttinn í sekknum. Eða klámmynd í Grease hulstri hjá Góða hirðinum nánar tiltekið. Fyrir þá sem hafa verið á tunglinu síðustu daga og því misst af dramastorminum, þá keypti þessi kona notaða vídeóspólu í kaótískri skranverslun, tók svarta ómerkta spóluna úr hulstrinu og henti henni óskoðaðri í tækið fyrir framan börnin sín og var svo alveg steinhissa og bálreið yfir að fá ekki akkúrat það sem hún borgaði 50 kall fyrir. Venjulega er ekki orðum eyðandi á svona heimsku en núna er ég búinn að vera að sjá væl um þessa hóflega verðlögðu klámmynd í fjölmiðlum í marga daga og mér er nóg boðið.
Hvað vill þessi kona eiginlega? Hver er tilgangurinn með því að ólmast í fjölmiðlum yfir þessum tittlingaskít í marga daga og troða sér loks í aðalfréttatíma stöðvar tvö með vælið? Heldur hún að ekkert merkilegra sé að gerast í heiminum? Vill hún fá fimmtíu kallinn sinn aftur? Á góði hirðirinn að splæsa í áfallahjálp fyrir börnin hennar af því þau sáu rassgatið á einhverjum pervert í nokkrar sekúndur í stað hökuskarðsins á John Travolta? Vill hún fá opinbera afsökunarbeiðni? Eða loforð um að starfsfólk Góða hirðisins horfi hér eftir persónulega á hverja einustu spólu af þeim hundruðum sem þeir selja vikulega svo að foreldrar þurfi örugglega ekki að taka neina ábyrgð á ruslinu sem þeir mata börnin sín á? Þá fyrst færi verðið á kláminu í Góða hirðinum að nálgast það sem gengur og gerist á hinum almenna markaði.
Ég myndi skilja þetta drama ef hún hefði keypt sér klámmynd í dónabúð á mörg þúsund krónur og fundið Grease í hulstrinu. Þá fyrst væri ástæða til að rjúka kveinandi í fjölmiðla!
[quote]
Ýmislegt sem ýmsa víst
að ýmsu leyti kætir
öðrum seint af sómi hlýst
og síst þá nokkuð bætir.
Gæta skyldi ávallt að
svo enginn framar gráti
hvort rangan hlut á rangan stað
rekkar skakkir láti.
Fundist hefur filma blá
á frekar gráu svæði
eg skal greina ykkur frá
atburðum í kvæði.
Kynntur senn til sögu er
suddalegur maður
í kjallara hann kúrir ber
konum forsómaður.
Með langan búk og ljótar tær
lófa sveittum veldur
sá er ekki konum kær
og Kristi varla heldur.
Manninn forðast meyjarljós
því maðurinn er ljótur
Auk þess lyktar eins fjós
annálaður þrjótur.
Fór í bæinn fauti hress
þótt félagsskapinn skorti
og varð sér úti um VHS
víst í Kolaporti.
Önnur spólan ágæt var
engum neitt til vansa
hvar amerískir unglingar
ærslast, syngja, dansa.
Kvikmynd þessi kallast Grease
(Kvoða á vorri tungu)
Þéttur gaur og þokkadís
þar um lífið sungu.
Travolta þar trampar Jón
tjúttar sér og ekur.
Gaman er að sjá þá sjón
er sveifluna hann tekur.
Níu tonna nafnið ber
nett þó Ólivía
þekkileg og þrýstin er
þessi glæsipía.
Syngja þau um sumarást
en svo er kominn vetur
og þurfa nú við það að kljást
að þekkjast ekki betur.
Sagan endar síðan vel
sældar bíður ævi.
Mynd þessa ég mæta tel
og mjög við barna hæfi.
Aðra kvikmynd kauði seinn
keypti, sýnu verri
um brussur tvær og bikar einn
brosti í kampinn perri.
Hér má líta tussur tvær
til- mjög -kippilegar
alveg berar eru þær
óðara og þegar.
Hristir önnur hold um stund
hin þá slummar þessa.
Sennilega er seima grund
svona mikil lessa.
Lítið virðist leiðast það
lofnargyðju hinni
tunga hvorrar tekur bað
í túla hinnar inni.
Færist síðan fjör í leik
(frá því skal nú grobba)
nú er ekki nóg með sleik
nú skal huga að klobba.
Lipur tunga lepja veit
(ljúft er kvenna atið)
ekki bara í unaðsreit;
einnig rassagatið.
Þar var meira færst í fang
(fer nú stöng að lafa)
nokkuð slæman niðurgang
nektarínur hafa.
Finnur dísin drykkjarmál
og dregur upp að búki
síðan fyllir svanni skál
af seigfljótandi kúki.
Hin þá glasið hirti keik
og hella í sig plagði
líkt og væri saurinn sjeik
með súkkulaðibragði.
Stöllu sinni stakk þá að
steinsmugunnar kosti
fagnandi hún þáði það,
þefaði og brosti.
Lyfti glyðran glasi því
gul- með -brúnum dropa
prúð og frjálsleg fasi í
fékk sér vænan sopa.
Tæmdi brussan bikar þann
- byrjun var á stefi -
oní maga ógeð rann
en eitthvað lak úr nefi.
Í glasið því næst hafði hrund
hægðafruss með láði.
ekki hrjáði hringa grund
hægðateppa að ráði.
Stöllu rétti kvoðuker
kvenna- jókst þá -gaman
finna þóttust smettis smér
og smurðu sig í framan.
Áfram héldu lufsur leik
laxerandi bossa
ylvolgt kraumar meltumeik
meðal blautra kossa.
Okkar maður unir sér
undir þessu showi
brosandi úr fötum fer
finnur holdið lófi.
Fullnægður er fraukum með
fauti undir sólu:
aldrei hafð'ann áður séð
aðra betri spólu.
Þykir nú ef görn ei gýs
gaman nokkurs virði
og ákveður að gefa Grease
góðum ruslahirði.
Hendir spólu í hylki þá
handstrokkaður dóni
mynd er hulstri utan á
af Ólavíu og Jóni.
Afglöp gerir aulinn stór
sem eigi þykja fyndin;
berlega í boxið fór
bollasúpumyndin.
Hirðir þakkar höfðings gjöf
hampar vorum fóla,
vart mun hafa í hillu töf
hér er vinsæl spóla.
Einstæð kona, beygð og blönk
berst á Hirðis slóðir
illa haldin, kramin, krönk
krakkaskara móðir.
Á höfði svanna hárið rís
hissa og ánægð gónir;
uppí hillu gamla Grease
gæðafimlan trónir!
Litla gleði lífið ann
löngum mínum krökkum.
en nú skal lofa lausnarann
loks til einhvers hlökkum.
Þegar konan kemur heim
krakkaskarinn gargar
en mamma otar mynd að þeim
og mælir: „Litlu vargar:
Nú skuluð þið nokkuð sjá
nú verðið þið hissa:
Hér er mynd sem enginn má
í æsku sinni af missa.
Eitt sinn var ég þrettan, þá,
þótt'ég rjóð í kinnum
þá fékk ég þessa filmu að sjá
fjögurhundruð sinnum!