bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Gleymdi bílnum sínum!
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=32070
Page 1 of 1

Author:  Axel Jóhann [ Wed 24. Sep 2008 12:19 ]
Post subject:  Gleymdi bílnum sínum!

Ég sprakk úr hlátri þegar ég horfði á fréttir í gær.


Quote:
Ung kona á Akureyri, Halldóra Arnórsdóttir, sem býr ein í einbýlishúsi við Eyrarveg vaknaði upp við vondan draum um kl. 4:30 í morgun, þegar innbrotsþjófur með vasaljós í hönd, stóð við rúmgaflinn í svefnherbergi hennar.

Fram kemur á vefnum, að Halldóra öskraði á manninn þegar hún varð hans vör og brá honum svo mikið að hann öskraði á móti og hljóp út úr húsinu.

„Ég stökk fram úr rúminu og öskraði á eftir manninum sem hljóp niður Eyrarveginn og hringdi svo á lögregluna," sagði Halldóra í samtali við Vikudag. Lögreglan hafði fljótlega hendur í hári mannsins, sem hafði skilið bíl sinn eftir fyrir utan hús Halldóru með lyklunum í.

Halldóra segir að þetta hafi verið óhugnanleg lífsreynsla en maðurinn, sem var svartklæddur og með húfu eða hettu á höfðinu, hafði náð að teygja sig inn um glugga í læsingu á bakhurð og þannig komist inn í húsið. "




http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/20 ... nn_a_gafl/

Author:  Mánisnær [ Wed 24. Sep 2008 13:34 ]
Post subject: 

hahaha sé þetta alveg fyrir mér:lol:

Author:  Bjarkih [ Wed 24. Sep 2008 16:59 ]
Post subject: 

Besta er að stöð2 gleymdi að blurra númerið þegar fréttakonan stóð framan við bílinn og sagði fréttina :lol:

Author:  Dóri- [ Wed 24. Sep 2008 18:36 ]
Post subject: 

Bjarkih wrote:
Besta er að stöð2 gleymdi að blurra númerið þegar fréttakonan stóð framan við bílinn og sagði fréttina :lol:


Og mamma gæjans alveg brjál!

Author:  Alpina [ Wed 24. Sep 2008 18:37 ]
Post subject: 

Dóri- wrote:
Bjarkih wrote:
Besta er að stöð2 gleymdi að blurra númerið þegar fréttakonan stóð framan við bílinn og sagði fréttina :lol:


Og mamma gæjans alveg brjál!




SO WHAT :shock:

Author:  Dóri- [ Wed 24. Sep 2008 18:46 ]
Post subject: 

Alpina wrote:
Dóri- wrote:
Bjarkih wrote:
Besta er að stöð2 gleymdi að blurra númerið þegar fréttakonan stóð framan við bílinn og sagði fréttina :lol:


Og mamma gæjans alveg brjál!




SO WHAT :shock:


bíllinn hennar :lol:

Author:  Axel Jóhann [ Wed 24. Sep 2008 20:25 ]
Post subject: 

Dóri- wrote:
Alpina wrote:
Dóri- wrote:
Bjarkih wrote:
Besta er að stöð2 gleymdi að blurra númerið þegar fréttakonan stóð framan við bílinn og sagði fréttina :lol:


Og mamma gæjans alveg brjál!




SO WHAT :shock:


bíllinn hennar :lol:






BWAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA!

Author:  Brútus [ Wed 24. Sep 2008 21:05 ]
Post subject: 

Djöfuls undirheimahundur hefur þessi innbrotsþjófur verið . . . úff . .
Farandi í ránsferðir á bílnum hennar mömmu sinnar :D :D
of gott.

Author:  shadow [ Fri 26. Sep 2008 00:15 ]
Post subject: 

:lol: of fyndið

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/