bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Lögregla neitar sök í 10-11 máli
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=32038
Page 1 of 1

Author:  Tommi Camaro [ Mon 22. Sep 2008 18:50 ]
Post subject:  Lögregla neitar sök í 10-11 máli

http://visir.is/article/20080922/FRETTI ... /FRONTPAGE
Lögreglumaður, sem ákærður hefur verið fyrir að hafa tekið ungan pilt kverkataki í verslun 10-11 í Grímsbæ í lok maí, neitar sök í málinu.

Ákæra ríkissaksóknara á hendur honum var þingfest í dag. Málið vakti mikla athygli enda sáust myndir af atvikinu á myndbandavefnum YouTube. Þar sést lögreglumaðurinn ráðast á piltinn eftir að hafa beðið hann um að tæma vasa sína.

Lögregluyfirvöld á höfuðborgarsvæðinu ákváðu í kjölfar þess að málið kom upp að lögreglumaðurinn skyldi ekki sinna störfum á meðan Ríkislögreglustjóri tæki ákvörðun um hvort vísa bæri manninum frá störfum á meðan á rannsókn ríkissaksóknara stæði.

Maðurinn kom hins vegar aftur til starfa í sumar og er enn við störf að sögn Guðmundar Guðjónssonar hjá Ríkislögreglustjóra. Honum verður ekki vikið úr starfi að svo stöddu.

Aðalmeðferð í málinu verður 10. október.


Image

Author:  Tommi Camaro [ Mon 22. Sep 2008 18:52 ]
Post subject: 

Vona að þessi löggu mann fái bara vinnu hjá 10-11, sem kassa pappakassi.

Author:  Freyr Gauti [ Mon 22. Sep 2008 19:08 ]
Post subject: 

Haha hvernig er hægt að neita sök í þessu máli þegar að það til myndband. Hefði líklega komið betur út að játa sök og byðjast afsökunar.

Author:  IngóJP [ Mon 22. Sep 2008 19:13 ]
Post subject: 

Myndbandið er ekki lengur til :lol:

En þó eru til vitni

Author:  Freyr Gauti [ Mon 22. Sep 2008 19:17 ]
Post subject: 

IngóJP wrote:
Myndbandið er ekki lengur til :lol:

En þó eru til vitni


Ég var að horfa á tvær mismunandi útgáfur af þessu myndbandi á youtube, eða dugir farsímamyndbandið ekki?

Author:  Mánisnær [ Mon 22. Sep 2008 19:50 ]
Post subject: 

Hverskonar pappakassi neitar sök þegar svona gífurlega sterk sönnunargögn eru til staðar?

Author:  krullih [ Mon 22. Sep 2008 19:57 ]
Post subject: 

Get nú ekki sagt hvort maður sé pappakassi eða ekki - en hann virðist vera að fara frekar ótroðnar slóðir í að neita ásökunum í þessu máli - borðleggjandi að hann gerði þetta.

Author:  gardara [ Mon 22. Sep 2008 20:27 ]
Post subject: 

Hvert er heimurinn farinn! Þegar myndbandsupptökur ekki nægileg sönnunargögn!

Author:  Schulii [ Mon 22. Sep 2008 20:31 ]
Post subject: 

Er hann ekki að meina að hann neitar sök að þetta hafi verið tilhæfulaust harðræði?

Hann er ekki svo vitlaus að neita að þetta hafi verið hann og þetta hafi átt sér stað heldur að þetta hafi ekki verið réttlætanlegt. Ekki að það sé endilega eitthvað miklu betra heldur að málið snýst um það.

Author:  Tommi Camaro [ Tue 23. Sep 2008 11:40 ]
Post subject: 

Schulii wrote:
Er hann ekki að meina að hann neitar sök að þetta hafi verið tilhæfulaust harðræði?

Hann er ekki svo vitlaus að neita að þetta hafi verið hann og þetta hafi átt sér stað heldur að þetta hafi ekki verið réttlætanlegt. Ekki að það sé endilega eitthvað miklu betra heldur að málið snýst um það.

leikur að orðum

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/