bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Death Magnetic
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=31879
Page 1 of 1

Author:  Bjarkih [ Sun 14. Sep 2008 23:26 ]
Post subject:  Death Magnetic

Hvernig finnst mönnum nýji Metallica diskurinn? Mér finnst allavega það sem ég er búinn að hlusta á vera framför frá því sem kom síðast út með þeim.

Author:  Djofullinn [ Sun 14. Sep 2008 23:30 ]
Post subject: 

Mikil framför. Fínn diskur.
En Hetfield er farinn að syngja svo leiðinlega, semja ógeðslega boring laglínur og textarnir eru líka hálf þunnir.
Líka svolítið verið að stæla gamla stöffið á köflum.

Author:  totihs [ Sun 14. Sep 2008 23:30 ]
Post subject: 

Það var reyndar annar þráður um þetta hérna en what the hell...

Hann er snilld. Svo algjörlega miklu betri en st. anger að það er ekki hægt að líkja þeim saman!

Það er svolítill Load fílingur í honum sem er kannski bara alveg í lagi. Væri eflaust bjánalegt að sjá þá spila einhvern reiðan trash metal.
Ef það vantar eitthvað upp á þá eru það helst sólóin. Þau er ekkert slæm bara ekkert eftirminnileg.

Author:  totihs [ Sun 14. Sep 2008 23:37 ]
Post subject: 

Djofullinn wrote:
Líka svolítið verið að stæla gamla stöffið á köflum.

Þetta er reyndar alveg hárrétt. Þeir eru klárlega ekki að semja neitt sambærilegt og gamla stöffið. Svolítið eins og þeir hafi valið einhver riff af justice, reynt að búa til eitthvað sambærilegt og troðið þeim svo inn í einhver lög sem meikuðu það ekki á load.

Útkomann er samt alls ekkert svo slæm en alls ekkert líkt því sem kom fyrir 1990.

Author:  birkire [ Sun 14. Sep 2008 23:38 ]
Post subject: 

Er að blastann núna, endalaust hægt að renna honum í gegn. Mjög góður í heildina en aldrei neitt sem stendur uppúr. Allavega kom hann þokkalega á óvart !

Author:  pallorri [ Sun 14. Sep 2008 23:41 ]
Post subject: 

Mér finnst persónulega gamla dótið þeirra betra en er sammála um að þetta er ágætisframför frá St.Anger sem mér fannst hrikalega leiðinlegur. :)

Author:  Brútus [ Sun 14. Sep 2008 23:44 ]
Post subject: 

Það var frekar fyndið að þegar að diskurinn lak á netið og ekki var búið að gefa hann út var verið að spila hann í Herragarðinum í Smáralind þegar að ég var að skoða föt þar.
Fannst mjög fyndið að spila óútkominn disk bara sísvona.
Mjög óviðeigandi tónlist í þokkabót :D

Annars þá er maður bara að heyra gott af þessum disk.
Eins og afgreiðslumaðurinn sagði að þessi diskur væri svona í svipuðum flokki og seinustu lögin á one plötunni.
Veit ekki hversu mikið sens það meikar.

Author:  Jón Ragnar [ Sun 14. Sep 2008 23:52 ]
Post subject: 

Brútus wrote:
Annars þá er maður bara að heyra gott af þessum disk.
Eins og afgreiðslumaðurinn sagði að þessi diskur væri svona í svipuðum flokki og seinustu lögin á one plötunni.
Veit ekki hversu mikið sens það meikar.

Meira svona ...And Justice For All!!!

Author:  Turbo- [ Mon 15. Sep 2008 00:43 ]
Post subject: 

rosalegur diskur
hlakka til að fá boxið mitt, Limited Edition 8)
Image
Image

Author:  Turbo- [ Mon 15. Sep 2008 01:04 ]
Post subject: 

Brútus wrote:
Það var frekar fyndið að þegar að diskurinn lak á netið og ekki var búið að gefa hann út var verið að spila hann í Herragarðinum í Smáralind þegar að ég var að skoða föt þar.
Fannst mjög fyndið að spila óútkominn disk bara sísvona.
Mjög óviðeigandi tónlist í þokkabót :D

hann lak nú ekkert þeir buðu upp á hann í 129kb/s sem eru ömurleg gæði bara til að leyfa fólki að fá preview.

Author:  Brútus [ Mon 15. Sep 2008 01:12 ]
Post subject: 

Turbo- wrote:
Brútus wrote:
Það var frekar fyndið að þegar að diskurinn lak á netið og ekki var búið að gefa hann út var verið að spila hann í Herragarðinum í Smáralind þegar að ég var að skoða föt þar.
Fannst mjög fyndið að spila óútkominn disk bara sísvona.
Mjög óviðeigandi tónlist í þokkabót :D

hann lak nú ekkert þeir buðu upp á hann í 129kb/s sem eru ömurleg gæði bara til að leyfa fólki að fá preview.

Ekki rétt hjá þér.
Hann lak á netið áður en þeir buðu hann á 129.

Author:  Turbo- [ Mon 15. Sep 2008 01:14 ]

nújæja þeir buðu hana allavegana á mission metallica í 2 eða 3 daga fyrir svona 2 vikum síðan, skiptir svosem ekki máli, klárlega besta bandið í brasanum

Author:  Bjarkih [ Mon 15. Sep 2008 22:19 ]
Post subject: 

Djofullinn wrote:
Mikil framför. Fínn diskur.
En Hetfield er farinn að syngja svo leiðinlega, semja ógeðslega boring laglínur og textarnir eru líka hálf þunnir.
Líka svolítið verið að stæla gamla stöffið á köflum.

Las gagnrýni um hann í mogganum á laugardaginn og hún var frekar jákvæð. Varðandi textana þá sagði gagnrýnandin að það að hlusta á heavy metal út af textanum væri svona svipað og að fara á fótbolta leik til að horfa á hornfánan :lol:

Author:  Stanky [ Tue 16. Sep 2008 09:36 ]
Post subject: 

Bjarkih wrote:
Djofullinn wrote:
Mikil framför. Fínn diskur.
En Hetfield er farinn að syngja svo leiðinlega, semja ógeðslega boring laglínur og textarnir eru líka hálf þunnir.
Líka svolítið verið að stæla gamla stöffið á köflum.

Las gagnrýni um hann í mogganum á laugardaginn og hún var frekar jákvæð. Varðandi textana þá sagði gagnrýnandin að það að hlusta á heavy metal út af textanum væri svona svipað og að fara á fótbolta leik til að horfa á hornfánan :lol:

Nú hlusta ég frekar mikið á raftónlist (Minimal, techno, drum n bass, electronic og svo framvegis... bara ekki trance)

Ég hef í ófá skipti fengið að heyra það frá öðrum tónlistarunnendum að þetta sé bara sami 5 sekúdna takturinn aftur og aftur og aftur.

Tilhvers að hafa texta ef hann er til einskis?

Ef þið hlustið á rokklag, takið í burtu textann, þá er það alveg jafn endurtekningalegt og raftónlist.

Hver helduru að nenni að hlusta á ný riff í sama lagi endalaust?

Það er svona svolítið einsog að hlusta á Aphex Twin.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/