bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Alonso til BMW?
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=31713
Page 1 of 1

Author:  elli [ Sun 07. Sep 2008 23:19 ]
Post subject:  Alonso til BMW?

Æji ekki þetta, geta þeir nú ekki fundið einhvern annan.
http://mbl.is/mm/sport/formula/2008/09/07/bmw_sagt_hafa_radid_alonso/

Allavegana er ég ekki hrifnn :cry:
Hann er auðvitað ágætis driver og allt það en bara svo fjandi mikill vælukjói!

Author:  Einarsss [ Mon 08. Sep 2008 08:13 ]
Post subject: 

ónei ... alonso er svo mikill leiðindagaur ... alveg þoldi ég ekki þegar hann fór til mclaren

Author:  fart [ Mon 08. Sep 2008 09:24 ]
Post subject: 

Mér lýst vel á þetta. Alonso er að mínu mati einn svalasti gaurinn í F1.

Author:  HAMAR [ Mon 08. Sep 2008 10:13 ]
Post subject: 

Alonso er fínn,
hann má bara ekki gleyma að hann er að keppa fyrir lið líka,
ekki vera með einhverja stjörnustæla.
Hola, Alonso numero uno, comprende ?

Author:  fart [ Mon 08. Sep 2008 10:50 ]
Post subject: 

HAMAR wrote:
Alonso er fínn,
hann má bara ekki gleyma að hann er að keppa fyrir lið líka,
ekki vera með einhverja stjörnustæla.
Hola, Alonso numero uno, comprende ?


Ég er alveg ósammála. Í gegnum tíðina hafa svölustu kapparnir einmitt verið hrokagikkir.

Nigel Mansel, Schumi, Senna, Villeneuve,

það vantar alveg "ég er bestur" attitjútið og skapið..

Þetta eru allt eintómir "good guys" og krakkar í dag. Það vantar menn með yfirvaraskegg, barta og fokkmerki.

Author:  Kristján Einar [ Mon 08. Sep 2008 14:28 ]
Post subject: 

alonso er bara svo vangefið góður og grimmur, bara gaman að horfa á hann, ekki týpan sem ég held uppá en hann er "ruthless" í brautinni, og það þarftu til að vera bestur.. alonso kubica verður deadly combo en hætta á að það verði annað alonso hamilton ævintýri...

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/