bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
F1 SPA https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=31698 |
Page 1 of 2 |
Author: | bimmer [ Sun 07. Sep 2008 13:36 ] |
Post subject: | F1 SPA |
Meiri geðveikin þarna í lokin!!! Þessi keppni var algjör hátíð eftir leiðindin í Valencia. |
Author: | Einarsss [ Sun 07. Sep 2008 13:38 ] |
Post subject: | |
virkilega spennandi og góð keppni Komu nokkur já!!! og svo nei!!! köll á víxl síðustu hringina ![]() |
Author: | Stanky [ Sun 07. Sep 2008 13:56 ] |
Post subject: | |
Þetta var áhorfanlegt fyrstu 3 hringina og síðustu 7. Bara gott move hjá þarna...gæjanum sem lenti í þriðja að fara á Intermediate dekkin.... vann sig upp úr 7 sæti.... |
Author: | iar [ Sun 07. Sep 2008 14:09 ] |
Post subject: | |
Stanky wrote: Þetta var áhorfanlegt fyrstu 3 hringina og síðustu 7.
Er ekki trikkið þá að horfa á startið á RÚV+ og skipta svo yfir á RÚV. ![]() |
Author: | Stanky [ Sun 07. Sep 2008 14:15 ] |
Post subject: | |
iar wrote: Stanky wrote: Þetta var áhorfanlegt fyrstu 3 hringina og síðustu 7. Er ekki trikkið þá að horfa á startið á RÚV+ og skipta svo yfir á RÚV. ![]() Hehehe.... góður ![]() |
Author: | Alpina [ Sun 07. Sep 2008 14:43 ] |
Post subject: | |
iar wrote: Er ekki trikkið þá að horfa á startið á RÚV+ og skipta svo yfir á RÚV. ![]() jú mæli með því......... þar sem þetta er sýnt á stöð 2 sport ![]() ![]() ![]() |
Author: | Lindemann [ Sun 07. Sep 2008 15:42 ] |
Post subject: | |
haha ingimar hefur sennilega ekkert skilið í því afhverju hann hafi ekkert séð F1 á þessu ári ![]() |
Author: | JOGA [ Sun 07. Sep 2008 16:26 ] |
Post subject: | |
Virkilega spennandi síðustu hringir. Hafði verulega gaman að þessu ![]() |
Author: | Einarsss [ Sun 07. Sep 2008 17:17 ] |
Post subject: | |
meira helvítis ruglið http://mbl.is/mm/sport/formula/2008/09/07/sigur_daemdur_af_hamilton/ ég skil ekki afhverju þeir eru að refsa honum fyrir þetta? Hann hleypti gaurnum framúr sér og tók svo framúr honum. Þetta hefur verið viðtekin venja, og ég man ekki eftir að það hafi verið refsað fyrir þetta áður. En eitt málið sem ferrari kærir og vinnur, án þess að það sé nokkur glóra í |
Author: | Jónas Þór [ Sun 07. Sep 2008 17:21 ] |
Post subject: | |
bara skemmtileg keppni enda ein skemmtilegasta brautin. Svolítið spes ákvörðunin hjá fia að dæma hamilton niður í 3 þar sem að mér fannst raikonen algjörlega klúðra málunum einn sín liðs. En ég er bara sáttur enda algjör anti-mclaren maður ![]() |
Author: | iar [ Sun 07. Sep 2008 19:38 ] |
Post subject: | |
Lindemann wrote: haha ingimar hefur sennilega ekkert skilið í því afhverju hann hafi ekkert séð F1 á þessu ári
![]() AHA! Hlaut eitthvað að vera!! ![]() ![]() ![]() ![]() |
Author: | Kristján Einar [ Sun 07. Sep 2008 20:16 ] |
Post subject: | |
Þetta er algjörlega réttur dómur, það sem Hamilton gerði var kol ólöglegt, það eina sem Mclaren hefur til varnar er að kimi þvingaði hann útaf. Ég hef keyrt þarna sjálfur og þessi beygja er svo rosalega tight að maður kemst varla í gegnum seinasta partinn, þannig að Lewis kemur útur á miklu meiri hraða.. hægt að líkja þessu við að Hamilton hefði slept því að taka beygjuna, verið 5 sek á eftir fyrir beygjuna, og svo tekið framúr inní fyrstu beygju, hann tók ekki framúr neinum á meðan hann var utan brautar en hann stillti upp framúrakstrinum með því, hefði bara átt að bíða hann var hvorteðer sneggri aðilinn. En stærsti looserinn í þessu er Kimi, ef hann hefði nú bara sætt sig við annað sætið og cruisað í mark hefði hann unnið, en er þetta ekki beutyið við sportið! |
Author: | basten [ Mon 08. Sep 2008 12:53 ] |
Post subject: | |
Kristján Einar wrote: Þetta er algjörlega réttur dómur, það sem Hamilton gerði var kol ólöglegt, það eina sem Mclaren hefur til varnar er að kimi þvingaði hann útaf.
Niki Lauda er ekki sammála þér þar sem hann kallar þetta versta dóm í sögu Formúla 1, ekki lítil orð það http://www.mbl.is/mm/sport/formula/2008 ... formulu_1/ Finnst þessi formúla vera farin að snúast meir og meir um Ferrari. Gott blogg um þetta hjá Ásgeiri Ásgeirssyni á Formúlublogginu, set hérna inn færsluna hans og er hún skáletruð: Sú hugsun sækir óþyrmilega á mig að dómarar kappakstursins í Spa hafi farið út á verulega hálan ís með því að dæma sigur af Lewis Hamilton hjá McLaren og afhenda hann Felipe Massa hjá Ferrari. Alla vega finnst mér þeir hafa framið tilræði gegn formúlunni. Gegn kappakstri. Gegn því að tekist sé á í brautinni. Á keppnin bara að vera prósessía? Halarófa, eins og líkfylgd? Bannað er að skera beygju til þess að bæta stöðu sína í keppni í formúlu-1. Ef það gerist í návígi og stöðubreyting á sér stað, þá gefa ökumenn ávinninginn jafnan strax til baka og hleypa keppinautnum fram úr aftur. Eins og í gær. Hamilton hægði ferðina og hleypti Räikkönen fram úr, enda fékk hann til öryggis skipun um það af stjórnborði McLaren. Hamilton hóf fljótt aftur sókn og vann forystuna af Räikkönen við næstu beygju með tilþrifum eins og þau gerast best í formúlunni. Sókndirfska hans hafði verið með þeim hætti - og Ferrarinn ekki eins góður á hörðu dekkjunum og McLarenbíllinn - að mér fannst það ekki spurning hvort, heldur hvenær hann tæki fram úr Räikkönen á þeim hringjum sem eftir voru. Hamilton notfærði sér ekki nálægðina við Räikkönen eftir þverun beygjunnar til að hagnast af kjölsogi hans. Hann var aldrei í því, svo sem sést augljóslega á sjónvarpsupptökum. Hann skellti sér eldsnöggt af vinstri hlið yfir á þá hægri er Räikkönen var kominn fram úr og bremsaði síðan seinna inn í næstu beygju og komst við það fram úr. Þótt keppnisstjórinn Charlie Whiting lýsti þeirri skoðun sinni strax við stjórnendur McLaren að Hamilton hefði farið rétt að og bæri ekki refsing þar sem hann afsalaði sér ávinningnum voru dómararnir því ósammála. En þeir fóru reyndar inn á alveg nýjar brautir. Ákváðu að pæla í því hvort Hamilton hafi samt ekki haft nægan ávinning af atvikinu fyrst hann komst fram úr Räikkönen aftur! Og það var niðurstaða þeirra. Enda reglurnar ekki afdráttarlausar um hvað sé ávinningur og hvað ekki. Nýttu hinir frönsku, belgísku og kenýsku dómarar sér tómarúmið í regluverkinu til að túlka regluna með sínu lagi. Og hleyptu með því öllu í bál og brand. Hér kveður alveg við nýjan tón. Nú er allt í lagi af hafa ávinning af því að skera beygjur, bara ekki of mikinn! Það veit bara enginn hvenær ávinningurinn er of mikill. Nema þessir þrír menn, frá Frakklandi, Belgíu og Kenýa. Vonandi hafa þeir vandað sig vel og hugsað málið rækilega til enda því hugsanlega er ekki hægt að kæra niðurstöðu þeirra! Rétt er að velta því fyrir sér hvers vegna Hamilton skar beygjuna. Sú spurning er fyllilega réttmæt. Niðurstaðan er sú að hann átti ekki annarra kosta völ. Nema láta Räikkönen keyra inn í sig. Hann var kominn rúmlega upp að hlið Ferraribílsins á leið inn í beygjuna. En Räikkönen þvingaði hann einfaldlega út úr henni. Það sést greinilega er atvikið er skoðað. Það er ég búinn að gera margsinnis frá í gær. Ég ætla ekki að segja að Räikkönen hafi haft rangt við með því. Þetta gerist einfaldlega oft í návígi sem þeirra Hamiltons. Og oftast grípa ökumenn þá til gagnráðstafana til að afstýra árekstri. Það gerði Hamilton. Landi Kimi, Heikki Kovalainen, var réttilega sendur aukaferð gegnum bílskúrareinina fyrir svipað framferði snemma í kappakstrinum. Nema sá rakst utan í keppinaut sinn og olli með því afstýranlegum árekstri. Hvað hefðu dómararnir gert ef Hamilton hefði ekki vikið frá er á hann var lokað og þeir Räikkönen skollið saman. Hver hefði þá talist sökudólgur? Räikkönen hugsanlega, samanber Kovaleinen-Webber atvikið. Hefði það ekki verið rökrétt? Það versta við þessa niðurstöðu er að nú fá allar kenningar um að verið sé að hygla Ferrari byr undir vængi á ný. Það lét ekki á sér standa í Spa í gær og í fjölmiðlum um heimsbyggðina alla í morgun. Úr verður málaþras sem tekið getur margar vikur að fá botn í. Og einhver óvissa ríkir um hvort hægt sé að kæra dómaraákvörðun af því tagi sem Hamilton var veitt. Það ágreiningsefni þarf því að leiða fyrst til lykta, áður en tekið er á sjálfri refsingunni. Fáist það samþykkt hef ég ekki mikla trú á að niðurstöðu dómaranna verði raskað. Í langflestum tilvika hefur áfrýjunarréttur Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA) einungis staðfest fyrri ákvarðanir fulltrúa FIA, sem dómararnir í þessu tilviki eru. Endirinn á þessum skemmtilegasta kappakstri ársins er leiður. Farsi í boði dómara sem hætt hafa sér út á vægast sagt afar hálan ís. Kimi Räikkönen hafði sýnt sínar bestu hliðar og ekið sem kóngur í Spa. Hefði verið afar vel að sigri kominn. Og hleypt nýju fjöri í keppnina um heimsmeistaratitilinn. Massa situr aftur á móti upp með sigur í móti þar sem hann kom aldrei við sögu keppninnar um tvö efstu sætin. Ansi innantóm verðlaun það. |
Author: | Kristján Einar [ Mon 08. Sep 2008 14:24 ] |
Post subject: | |
já það er mikið til í þessu, persónulega finnst mér þetta ólöglegt en eins og ég sagði, að vörnin sem mclaren hafa er að kimi þvingaði hann útaf... vafamál, ef ég hefði verið dómari hefði ég ekki viðhafst nema að málið hefði verið kært.. |
Author: | HK RACING [ Mon 08. Sep 2008 18:28 ] |
Post subject: | |
basten wrote: Kristján Einar wrote: Þetta er algjörlega réttur dómur, það sem Hamilton gerði var kol ólöglegt, það eina sem Mclaren hefur til varnar er að kimi þvingaði hann útaf. Niki Lauda er ekki sammála þér þar sem hann kallar þetta versta dóm í sögu Formúla 1, ekki lítil orð það http://www.mbl.is/mm/sport/formula/2008 ... formulu_1/ Finnst þessi formúla vera farin að snúast meir og meir um Ferrari. Gott blogg um þetta hjá Ásgeiri Ásgeirssyni á Formúlublogginu, set hérna inn færsluna hans og er hún skáletruð: Sú hugsun sækir óþyrmilega á mig að dómarar kappakstursins í Spa hafi farið út á verulega hálan ís með því að dæma sigur af Lewis Hamilton hjá McLaren og afhenda hann Felipe Massa hjá Ferrari. Alla vega finnst mér þeir hafa framið tilræði gegn formúlunni. Gegn kappakstri. Gegn því að tekist sé á í brautinni. Á keppnin bara að vera prósessía? Halarófa, eins og líkfylgd? Bannað er að skera beygju til þess að bæta stöðu sína í keppni í formúlu-1. Ef það gerist í návígi og stöðubreyting á sér stað, þá gefa ökumenn ávinninginn jafnan strax til baka og hleypa keppinautnum fram úr aftur. Eins og í gær. Hamilton hægði ferðina og hleypti Räikkönen fram úr, enda fékk hann til öryggis skipun um það af stjórnborði McLaren. Hamilton hóf fljótt aftur sókn og vann forystuna af Räikkönen við næstu beygju með tilþrifum eins og þau gerast best í formúlunni. Sókndirfska hans hafði verið með þeim hætti - og Ferrarinn ekki eins góður á hörðu dekkjunum og McLarenbíllinn - að mér fannst það ekki spurning hvort, heldur hvenær hann tæki fram úr Räikkönen á þeim hringjum sem eftir voru. Hamilton notfærði sér ekki nálægðina við Räikkönen eftir þverun beygjunnar til að hagnast af kjölsogi hans. Hann var aldrei í því, svo sem sést augljóslega á sjónvarpsupptökum. Hann skellti sér eldsnöggt af vinstri hlið yfir á þá hægri er Räikkönen var kominn fram úr og bremsaði síðan seinna inn í næstu beygju og komst við það fram úr. Þótt keppnisstjórinn Charlie Whiting lýsti þeirri skoðun sinni strax við stjórnendur McLaren að Hamilton hefði farið rétt að og bæri ekki refsing þar sem hann afsalaði sér ávinningnum voru dómararnir því ósammála. En þeir fóru reyndar inn á alveg nýjar brautir. Ákváðu að pæla í því hvort Hamilton hafi samt ekki haft nægan ávinning af atvikinu fyrst hann komst fram úr Räikkönen aftur! Og það var niðurstaða þeirra. Enda reglurnar ekki afdráttarlausar um hvað sé ávinningur og hvað ekki. Nýttu hinir frönsku, belgísku og kenýsku dómarar sér tómarúmið í regluverkinu til að túlka regluna með sínu lagi. Og hleyptu með því öllu í bál og brand. Hér kveður alveg við nýjan tón. Nú er allt í lagi af hafa ávinning af því að skera beygjur, bara ekki of mikinn! Það veit bara enginn hvenær ávinningurinn er of mikill. Nema þessir þrír menn, frá Frakklandi, Belgíu og Kenýa. Vonandi hafa þeir vandað sig vel og hugsað málið rækilega til enda því hugsanlega er ekki hægt að kæra niðurstöðu þeirra! Rétt er að velta því fyrir sér hvers vegna Hamilton skar beygjuna. Sú spurning er fyllilega réttmæt. Niðurstaðan er sú að hann átti ekki annarra kosta völ. Nema láta Räikkönen keyra inn í sig. Hann var kominn rúmlega upp að hlið Ferraribílsins á leið inn í beygjuna. En Räikkönen þvingaði hann einfaldlega út úr henni. Það sést greinilega er atvikið er skoðað. Það er ég búinn að gera margsinnis frá í gær. Ég ætla ekki að segja að Räikkönen hafi haft rangt við með því. Þetta gerist einfaldlega oft í návígi sem þeirra Hamiltons. Og oftast grípa ökumenn þá til gagnráðstafana til að afstýra árekstri. Það gerði Hamilton. Landi Kimi, Heikki Kovalainen, var réttilega sendur aukaferð gegnum bílskúrareinina fyrir svipað framferði snemma í kappakstrinum. Nema sá rakst utan í keppinaut sinn og olli með því afstýranlegum árekstri. Hvað hefðu dómararnir gert ef Hamilton hefði ekki vikið frá er á hann var lokað og þeir Räikkönen skollið saman. Hver hefði þá talist sökudólgur? Räikkönen hugsanlega, samanber Kovaleinen-Webber atvikið. Hefði það ekki verið rökrétt? Það versta við þessa niðurstöðu er að nú fá allar kenningar um að verið sé að hygla Ferrari byr undir vængi á ný. Það lét ekki á sér standa í Spa í gær og í fjölmiðlum um heimsbyggðina alla í morgun. Úr verður málaþras sem tekið getur margar vikur að fá botn í. Og einhver óvissa ríkir um hvort hægt sé að kæra dómaraákvörðun af því tagi sem Hamilton var veitt. Það ágreiningsefni þarf því að leiða fyrst til lykta, áður en tekið er á sjálfri refsingunni. Fáist það samþykkt hef ég ekki mikla trú á að niðurstöðu dómaranna verði raskað. Í langflestum tilvika hefur áfrýjunarréttur Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA) einungis staðfest fyrri ákvarðanir fulltrúa FIA, sem dómararnir í þessu tilviki eru. Endirinn á þessum skemmtilegasta kappakstri ársins er leiður. Farsi í boði dómara sem hætt hafa sér út á vægast sagt afar hálan ís. Kimi Räikkönen hafði sýnt sínar bestu hliðar og ekið sem kóngur í Spa. Hefði verið afar vel að sigri kominn. Og hleypt nýju fjöri í keppnina um heimsmeistaratitilinn. Massa situr aftur á móti upp með sigur í móti þar sem hann kom aldrei við sögu keppninnar um tvö efstu sætin. Ansi innantóm verðlaun það. Skítalykt af þessu og ekkert annað. Hilmar(sem taldi sig vita hvernig kappakstur gengi fyrir sig) |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |