bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Reiðhjólabílslys
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=31692
Page 1 of 2

Author:  Brútus [ Sat 06. Sep 2008 21:07 ]
Post subject:  Reiðhjólabílslys

Datt svona í hug að bera þetta undir ykkur hérna.

Vorum að rúnta í gær ég og 2 aðrir félagar. Vorum að taka beygju inn á laugarveginn og þegar að við erum að taka beygjuna þá fáum við hjólreiðamann inn í hliðina á bílnum. Þetta var alveg magnað því að ég sá andlitið á honum skella harkalega í hliðarrúðuna hjá mér og ég var bara nýbúinn að skrúfa hana upp.
Allavega þegar að við förum að ræða málin þá sjáum við að bíllinn er nokkuð vel rispaður á tveimur hurðum. Hjólið var beyglað hjá hjólreiðamanninum og hann hafði verið að reiða stelpu með sér sem að var víst nokkuð illt í löppunum og hann var pissfullur og fann samt eitthvað smá til í líkamanum.
Allavega það var hringt í löggu og við náðum að halda hjólreiðarmanninum eins rólegum og hægt var svona að mestu því að hann var sífellt að reyna að stinga af og hann var fremur ofbeldisfullur þegar að hann var að reyna að ná af okkur hjólinu sínu greyið. Aðallega þó peysutog og einhver kjánaleg hálstök.
Þegar að lögreglan kom þá voru teknar niður skýrslur af okkur og svona menn látnir blása og allt svoleiðis, myndir teknar og slíkt.
Hjólreiðamaðurinn var með kjaft við lögreglunna og fór að segja "gas-gas" brandara til að fylla mælinn alveg :) og hann var færður inn í lögregluvaninn mjög brútalý. Honum var svo sleppt eftir yfirheyrslu í vaninum að skýrslutökum loknum.
Það sem að kom mér á óvart var að þegar að ég spyr lögreglumanninn hvort að það að hjóla undir áhrifum sé lögbrot þá segir hann að það sé ekki lögbrot ef að þú getur hjólað án þess að detta af hjólinu. Fannst þetta vera mjög undarleg staðhæfing.
Viðbrögð hjólreiðamannsins við þessu öllu saman hefði ég viljað eiga til á myndbandi því að þau voru svo ótrúlega mögnuð og sérstaklega þegar að hann fór að tala um að ökumaðurinn hlyti að vera fórnalamb eineltis í æsku og að hann væri mesti vesalingur sem að hann hefði nokkurntímann á ævinni hitt. Talaði mikið um hvað hann hefði örugglega átt ömurlega æsku og slík sorglegheit.

Á þessum stað var merki
Image

*Hvernig ætli tryggingarnar muni taka á þessu og ætli rispurnar á bílnum verði bættar ?

*Hjólreiðamaður er ekki með neina tryggingu og hafa því ekkert á bakvið sig þegar að kemur að því að borga svona skemmdir þannig að mun viðkomandi hjólreiðamaður þurfa að borga þetta úr eigin vasa ?

*Að skemma bíl með hjóli er það ekki bara eins og að skemma bíl með hvaða öðru drasli ? , spítu , hníf , lykli, kisu eða steinum ?

*ekki viss um að bíllinn sé í kaskó en gæti þó verið.

*Forgangur reiðhjóla ? Eru til skýrar reglur um hann ?

*Er ekki lögbrot að hjóla undir áhrifum áfengis ?

Author:  birkire [ Sat 06. Sep 2008 21:40 ]
Post subject: 

Alltaf lendir þú í jafn skrautlegu dóti

Author:  arnibjorn [ Sat 06. Sep 2008 21:46 ]
Post subject: 

Sluppu motturnar alveg í þessum árekstri??

Author:  Brútus [ Sat 06. Sep 2008 21:50 ]
Post subject: 

arnibjorn wrote:
Sluppu motturnar alveg í þessum árekstri??


þær eru í tjónamati uppá TM sko . .
Þetta er tvísýnt . .

Author:  Brútus [ Sat 06. Sep 2008 21:52 ]
Post subject: 

Sko þegar að slysið átti sér stað þá sparkaði ég eitthvað í gólfið í einhverri geðshræringu og þá sko slitnaði smella sem var á mottunni þannig að hún er hálflaus og svona . .það verður allt bara látið ganga í geng um kerfið . .
Svona smellur liggja ekki á lausu.

Author:  gardara [ Sun 07. Sep 2008 01:49 ]
Post subject: 

arnibjorn wrote:
Sluppu motturnar alveg í þessum árekstri??


:lol: :lol:


annars hélt ég nú alltaf að það væri lögbrot að hjóla fullur og jafnframt að vera fullur á hesti og að undir réttum aðstæðum þá væri jafnvel hægt að missa prófið... :roll:

Author:  drolezi [ Sun 07. Sep 2008 02:34 ]
Post subject: 

Það er ekki lögbrot að hjóla fullur ef þú hefur stjórn á hjólinu. Sama gildir um hest. Skondið því að ef þetta er góður hestur þá gengur hann undir þig og heldur jafnvæginu fyrir þig þannig að menn geta orðið vel mökkaðir á hestbaki, sem er klárlega algengt.

Author:  Stevens [ Sun 07. Sep 2008 05:36 ]
Post subject: 

Ég var einu sinni tekinn ölvaður á stolnu reiðhjóli, og lögreglan hafði miklu meiri áhuga á því hvar ég fékk hjólið, en því hversu ölvaður ég var (sem var veeel yfir mörkum)..

En annars held ég að það gildi almenn umferðarlög yfir hjólandi fólk, þannig að þú ættir að vera í rétti þar sem að hann var ölvaður..

Author:  Brútus [ Sun 07. Sep 2008 11:53 ]
Post subject: 

+ það að ef að þú ert hjólandi inn í hliðina á bílaumferð þá hefur þú varla stjórn á hjólinu.
En ég hef samt á tilfinningunni að þetta verði vesen.

Author:  BjarkiHS [ Sun 07. Sep 2008 12:03 ]
Post subject: 

Með öllu réttu, þá á kaskóið þitt að bæta tjónið, og gera endurkröfu á hjólreiðamanninn. Það getur ekki firrt hann bóta rétti að vera ótryggður :?: :?

Author:  Tommi Camaro [ Sun 07. Sep 2008 12:35 ]
Post subject: 

BjarkiHS wrote:
Með öllu réttu, þá á kaskóið þitt að bæta tjónið, og gera endurkröfu á hjólreiðamanninn. Það getur ekki firrt hann bóta rétti að vera ótryggður :?: :?

Word !!!
En þvílíkt drama :roll:

Author:  Axel Jóhann [ Sun 07. Sep 2008 13:29 ]
Post subject: 

Ég var einu sinni fullur á reiðhjóli, það entist ekki lengi, ég hjólaði 5 metra og datt framm fyrir mig með andlitið í götuna. :lol:

Author:  Angelic0- [ Sun 07. Sep 2008 13:36 ]
Post subject: 

Þú ferð í tryggingafélagið þitt, útskýrir fyrir þeim hvað átti sér stað og spyrð þá ráða um hvernig þú eigir að snúa þér í þessum málum :!:

Tók lögreglan myndir á staðnum :?:

Author:  Brútus [ Sun 07. Sep 2008 13:50 ]
Post subject: 

Já . .ég var reyndar ekki ökumaður ég var farþegi.
En annars þá tók löggan myndir af tjóninu.
Svo var stelpan þarna og hjólreiðastrákurinn með mjög mikla óþarfa stæla. Stelpan spurði lögregluþjóninn hvort að hann væri nýbyrjaður því að hann skylfi svo mikið þegar að hann væri að skrifa . . .
Lögreglan var bara :evil:

Author:  FinnurKarls [ Sun 07. Sep 2008 16:52 ]
Post subject: 

ættir þú ekki líka að vera í rétti þar sem hann kemur inní hliðina á þér,, þú ert ekki að keyra á hann

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/