Datt svona í hug að bera þetta undir ykkur hérna.
Vorum að rúnta í gær ég og 2 aðrir félagar. Vorum að taka beygju inn á laugarveginn og þegar að við erum að taka beygjuna þá fáum við hjólreiðamann inn í hliðina á bílnum. Þetta var alveg magnað því að ég sá andlitið á honum skella harkalega í hliðarrúðuna hjá mér og ég var bara nýbúinn að skrúfa hana upp.
Allavega þegar að við förum að ræða málin þá sjáum við að bíllinn er nokkuð vel rispaður á tveimur hurðum. Hjólið var beyglað hjá hjólreiðamanninum og hann hafði verið að reiða stelpu með sér sem að var víst nokkuð illt í löppunum og hann var pissfullur og fann samt eitthvað smá til í líkamanum.
Allavega það var hringt í löggu og við náðum að halda hjólreiðarmanninum eins rólegum og hægt var svona að mestu því að hann var sífellt að reyna að stinga af og hann var fremur ofbeldisfullur þegar að hann var að reyna að ná af okkur hjólinu sínu greyið. Aðallega þó peysutog og einhver kjánaleg hálstök.
Þegar að lögreglan kom þá voru teknar niður skýrslur af okkur og svona menn látnir blása og allt svoleiðis, myndir teknar og slíkt.
Hjólreiðamaðurinn var með kjaft við lögreglunna og fór að segja "gas-gas" brandara til að fylla mælinn alveg

og hann var færður inn í lögregluvaninn mjög brútalý. Honum var svo sleppt eftir yfirheyrslu í vaninum að skýrslutökum loknum.
Það sem að kom mér á óvart var að þegar að ég spyr lögreglumanninn hvort að það að hjóla undir áhrifum sé lögbrot þá segir hann að það sé ekki lögbrot ef að þú getur hjólað án þess að detta af hjólinu. Fannst þetta vera mjög undarleg staðhæfing.
Viðbrögð hjólreiðamannsins við þessu öllu saman hefði ég viljað eiga til á myndbandi því að þau voru svo ótrúlega mögnuð og sérstaklega þegar að hann fór að tala um að ökumaðurinn hlyti að vera fórnalamb eineltis í æsku og að hann væri mesti vesalingur sem að hann hefði nokkurntímann á ævinni hitt. Talaði mikið um hvað hann hefði örugglega átt ömurlega æsku og slík sorglegheit.
Á þessum stað var merki
*Hvernig ætli tryggingarnar muni taka á þessu og ætli rispurnar á bílnum verði bættar ?
*Hjólreiðamaður er ekki með neina tryggingu og hafa því ekkert á bakvið sig þegar að kemur að því að borga svona skemmdir þannig að mun viðkomandi hjólreiðamaður þurfa að borga þetta úr eigin vasa ?
*Að skemma bíl með hjóli er það ekki bara eins og að skemma bíl með hvaða öðru drasli ? , spítu , hníf , lykli, kisu eða steinum ?
*ekki viss um að bíllinn sé í kaskó en gæti þó verið.
*Forgangur reiðhjóla ? Eru til skýrar reglur um hann ?
*Er ekki lögbrot að hjóla undir áhrifum áfengis ?