bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Skoðanakönnun!
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=31625
Page 1 of 3

Author:  Axel Jóhann [ Wed 03. Sep 2008 00:47 ]
Post subject:  Skoðanakönnun!

Jæja, hverjir hérna fá sér, 2-3 bjóra reglulega fyrir svefninn?












Allavega geri ég það mjög oft og sef alveg frábærlega eftir það, best í heimi! :)

Author:  _Halli_ [ Wed 03. Sep 2008 00:51 ]
Post subject: 

Búinn að slátra fimm í kvöld! Var að gera við vatnsleka undir gólfplötunni í aðstöðunni minni, miklu þægilegra að brjóta gólfið þegar maður er búinn með tvo, maður finnur minna fyrir víbringnum :lol:

Svo voru það þrír sem fuku meðan ég var að spjalla við Skúra-Bjarka... maður má ekki vera útundan ef maður er að tala við meginlandið!

Annars er bjórinn rosalega góður svona á kvöldin, maður á auðveldara með að sofna en maður hvílist víst mun minna... þar kemur kaffið til sögunnar :lol:

Author:  Elnino [ Wed 03. Sep 2008 01:37 ]
Post subject: 

ég hef nú ekki vanið mig á það að fá mér bjór fyrir svefninn. En ég fæ mér afturá móti 1-2x í viku bjór í hádeginu, sérstaklega ef það er leiðinlegur tími strax eftir hádegi í skólanum. Þá er maður mun aflappaðri

Author:  Misdo [ Wed 03. Sep 2008 01:57 ]
Post subject: 

drekk nú voðalega lítið að ég hef ekki lagt þann vana á mig

Author:  Axel Jóhann [ Wed 03. Sep 2008 08:43 ]
Post subject: 

Uss, þetta er það besta í heimi. :)

Author:  Lilja [ Wed 03. Sep 2008 08:47 ]
Post subject: 

Þótt þú sofir vel, þá hvílistu í raun minna og safnar meiri streitu. Þá ertu líklegri til að fá þér aftur bjór næsta dag, svo daginn eftir osfrv. Ég myndi ekki mæla með þessu ;)

Author:  Brútus [ Wed 03. Sep 2008 08:57 ]
Post subject: 

Er kannski kominn tími á að sleppa takinu af flöskunni Axel ?

Author:  Einarsss [ Wed 03. Sep 2008 09:10 ]
Post subject: 

Þetta hljómar ekki sem eðlileg drykkjuhegðun af gaur sem er ekki orðinn 20 ára að drekka 2-3 bjóra á hverju kvöldi til að geta sofið betur.

Myndi ráðleggja þér að skoða málið betur og hætta þessu áður en þetta verður nauðsyn en ekki munaður ;)

Ekkert illa meint, vill þér og þinni framtíð vel

Author:  fart [ Wed 03. Sep 2008 09:18 ]
Post subject: 

Svona bjórdrykkja kemst upp í vana. Frekar slæmur ávani IMO.

Það er mjög slæmt fyrir líkaman að setja í sig svona markar kaloríur rétt fyrir svefninn.

Author:  Axel Jóhann [ Wed 03. Sep 2008 09:25 ]
Post subject: 

Nú jæja, það er nú samt ekki það slæmt að ég geri þetta á hverju kvöldi :) Bara svona annað slagið.

Author:  Steini B [ Wed 03. Sep 2008 12:16 ]
Post subject: 

Ég læt það nú bara nægja að drekka um helgar... :)

Author:  Geirinn [ Wed 03. Sep 2008 12:41 ]
Post subject: 

Einn og einn bjór yfir boltanum anyone ?

Author:  JónP [ Wed 03. Sep 2008 12:58 ]
Post subject: 

Geirinn wrote:
Einn og einn bjór yfir boltanum anyone ?


Jebb auðvitað :!:

Author:  Axel Jóhann [ Wed 03. Sep 2008 13:23 ]
Post subject: 

JónP wrote:
Geirinn wrote:
Einn og einn bjór yfir boltanum anyone ?


Jebb auðvitað :!:




Boltaíþróttir eru bara afsökun fyrir bjórdrykkju! :lol:

Author:  IngóJP [ Wed 03. Sep 2008 13:27 ]
Post subject: 

Best að fá sér 1-2 ískalda eftir vinnu :D

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/