bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Ráð til að þyngjast. https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=31607 |
Page 1 of 8 |
Author: | Kristjan [ Mon 01. Sep 2008 23:19 ] |
Post subject: | Ráð til að þyngjast. |
Undanfarið hef ég verið að stríða við veikindi og hef lést slatta og ekki mátti ég við því. Ég var búinn að vera á fullu í ræktinni og náði að bæta á mig smá vöðvamassa, svo mætti litli strákurinn minn á svæðið fyrir 4 mánuðum og vöðvamassinn hvarf útaf því að ég hætti að mæta í ræktina. Vöðvar eru jú eins og rándýrir iðnaðarmenn og ef maður borgar þeim ekki (með því að éta og lyfta) þá eru þeir snöggir að stinga af. Hvað finnst ykkur gott að éta til að þyngjast mikið, ég er núna að háma í mig ís, rjóma, ostakökur og þessháttar... þetta er bara leiðinlegur matur til lengdar og langar mig að fá einhver tips um þyngjandi mat sem er ekki endilega mjólkurbased... endilega komið með einhver góð ráð |
Author: | Dogma [ Mon 01. Sep 2008 23:33 ] |
Post subject: | |
drekka brund,,,, segðu bara engum frá því ![]() |
Author: | IceDev [ Mon 01. Sep 2008 23:37 ] |
Post subject: | |
Éta gainer eins og óður og lyfta með því? Ágætis tillaga |
Author: | Steini B [ Mon 01. Sep 2008 23:37 ] |
Post subject: | |
Það skiptir mig engu hvað ég borða, ég þyngist aldrei Held að það eina sem virkar á mig er bjórinn... Sko þessvegna drekk ég svona mikið af honum... ![]() Annars verður maður að reyna að gefa sér tíma í að prufa ræktina, held að maður hafi bara gott af því... |
Author: | SteiniDJ [ Mon 01. Sep 2008 23:43 ] |
Post subject: | |
Ég spurði lækninn á heimilinu og hann sagði að 'næringaríkur matur' væri bestur. Hvað það er er ég ekki með á hreinu, en hann nefndi t.d. skyr sem er virkilega próteinmikið. Reyndar unnið úr mjólk en það virkar. Svo eru t.d. egg góð, en hinsvegar er mikið um kólestról í þeim. Matur sem inniheldur mikið af Omega-3 fitu er líka góður, til dæmis túnfiskur, lax og silungur. Það er líka gott að borða hnetur, fuglakjöt, kjöt og fisk. Þeir segja að það sé betra að borða 5 - 6 smærri máltíðir á dag heldur en þrjár stórar. |
Author: | Arnarf [ Mon 01. Sep 2008 23:46 ] |
Post subject: | |
Bara borða mikið, ekki flóknara en það Borða á 2 tíma fresti Ef þú ert duglegur í ræktinni, þá ætti matarlystin að STóR AUKAST, svo það er ekkert mál Gainer út í nýmjólk er líka ekki slæmt, með öðrum mat ![]() |
Author: | Kristjan [ Tue 02. Sep 2008 00:00 ] |
Post subject: | |
Steini B wrote: Það skiptir mig engu hvað ég borða, ég þyngist aldrei
Held að það eina sem virkar á mig er bjórinn... Sko þessvegna drekk ég svona mikið af honum... ![]() Annars verður maður að reyna að gefa sér tíma í að prufa ræktina, held að maður hafi bara gott af því... Þetta með að "skiptir engu hvað ég borða bla bla bla" er algjör vitleysa, þú ert örugglega ekki að borða nógu mikið til að byrja með. Bjórinn er heldur ekkert að gera þér gott ef þú ert léttur fyrir. |
Author: | Steini B [ Tue 02. Sep 2008 00:11 ] |
Post subject: | |
Kristjan wrote: Steini B wrote: Það skiptir mig engu hvað ég borða, ég þyngist aldrei Held að það eina sem virkar á mig er bjórinn... Sko þessvegna drekk ég svona mikið af honum... ![]() Annars verður maður að reyna að gefa sér tíma í að prufa ræktina, held að maður hafi bara gott af því... Þetta með að "skiptir engu hvað ég borða bla bla bla" er algjör vitleysa, þú ert örugglega ekki að borða nógu mikið til að byrja með. Bjórinn er heldur ekkert að gera þér gott ef þú ert léttur fyrir. Búinn að prufa það, treystu mér... Ég þarf að éta alveg ótrúlega mikið til þess að ég sjái EINHVERN mun Finnst það ekki borga sig, ódýrara að borða þá bara venjulega og sætta sig við þetta... ![]() |
Author: | Sezar [ Tue 02. Sep 2008 00:19 ] |
Post subject: | |
Steini B wrote: Kristjan wrote: Steini B wrote: Það skiptir mig engu hvað ég borða, ég þyngist aldrei Held að það eina sem virkar á mig er bjórinn... Sko þessvegna drekk ég svona mikið af honum... ![]() Annars verður maður að reyna að gefa sér tíma í að prufa ræktina, held að maður hafi bara gott af því... Þetta með að "skiptir engu hvað ég borða bla bla bla" er algjör vitleysa, þú ert örugglega ekki að borða nógu mikið til að byrja með. Bjórinn er heldur ekkert að gera þér gott ef þú ert léttur fyrir. Búinn að prufa það, treystu mér... Ég þarf að éta alveg ótrúlega mikið til þess að ég sjái EINHVERN mun Finnst það ekki borga sig, ódýrara að borða þá bara venjulega og sætta sig við þetta... ![]() Hvað er málið með ofurbrennsluna í ykkur ![]() ![]() Svo fer maður í ræktina að pumpa 5x í viku til að geta haldið sér slim....og þið étið og étið og spikist ekki neitt ![]() |
Author: | Schulii [ Tue 02. Sep 2008 00:31 ] |
Post subject: | |
Það virkaði EKKERT fyrir mig, sama hvað ég prófaði ![]() Svo eftir 30 ára afmælið byrjar þetta að hrúgast utaná mann, fyrirhafnarlaust ![]() |
Author: | Hannsi [ Tue 02. Sep 2008 10:05 ] |
Post subject: | |
Eins og einhverjir sögðu hérna áðan fá sér gainer. gerir helling fyrir mann |
Author: | Phoenix [ Tue 02. Sep 2008 10:05 ] |
Post subject: | |
þangað til fyrir sirka einu og hálfu ári var ég alltaf étandi, morgunmat, með kaffinu, hádegismatnum, seinna kaffinu, strax eftir vinnu og svo kvöldmat, endað með smá snarli fyrir svefninn. Alltaf var ég 75kg sama hvern fjandan ég var að gera og hvað ég borðaði mikið undanfarið hef ég bara ekki gefið mér tíma í að vera að þessu samfellda áti og er að borða 1-2 á dag og er siginn í rúm 85kg, vöðvarnir enn á sínum stað en við þá bættist þessi myndarlega pabbabumba ![]() |
Author: | Phoenix [ Tue 02. Sep 2008 10:08 ] |
Post subject: | |
Þannig að já ég vil meina að með því að vera alltaf étandi er maður að halda brennslunni í fullum gangi allan daginn og nýtir í raun betur það sem maður þarf en þegar maður er farinn að borða svona sjaldan er líkaminn að safna upp eins og hann mögulega getur og er svo ekkert að nýta það allt saman |
Author: | mattiorn [ Tue 02. Sep 2008 10:13 ] |
Post subject: | |
![]() Mæli með þessum Fá sér eftir workout og áður en þú ferð að sofa, 3 skúbbur í hvert skipti |
Author: | BMWaff [ Tue 02. Sep 2008 11:24 ] |
Post subject: | |
Borða meira en þú brennir.... Borða góðar fitur (td. omega-3) ekki junk foot... Éta 5-6 sinnum á dag í minni skömmtum... Borða próteinríkan mat... Annars myndi ég mæla með að þú talaðir við einkaþjálfara/næringarfræðing... Eða steraboltana í laugum... bara hvað ertu að leita eftir... Fáðu réttar upplýsingar sem henta þér. Það sem hentar mér eða john doe hentar kanzki ekki þér eða þínum lífstíl... |
Page 1 of 8 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |