bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
kaskó og lakk? https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=31375 |
Page 1 of 1 |
Author: | E55FFFan [ Wed 20. Aug 2008 01:48 ] |
Post subject: | kaskó og lakk? |
hefur eitthver reynslu af kaskótryggðu tjóni, hvað þetta tekur langan tíma að renna í gegn og svoleiðis? Edit: dekkar kaskó líka felgur? |
Author: | JonHrafn [ Wed 20. Aug 2008 07:53 ] |
Post subject: | |
Tilkynnir bara tjón til þíns tryggingafélags. Ferð síðan á næsta CABAS?? verkstæði og þeir meta tjónið , panta það sem þarf, gera við bílinn og wolla. Þeir rukka síðan tryggingafélagið. Og já kaskóið dekkar felgurnar líka ef þær skemmdust. |
Author: | Djofullinn [ Wed 20. Aug 2008 10:11 ] |
Post subject: | |
Mundu bara að þú þarft að borga sjálfsábyrgð við hvert tjón, þannig að ef felgurnar skemmdust í öðru tjóni þá þarftu að borga sjálfsábyrgðina tvisvar |
Author: | Höfuðpaurinn [ Wed 20. Aug 2008 10:28 ] |
Post subject: | |
kaskó-ið vildi nú ekkert gera fyrir mig þegar mínum felgum var stolið... og ég kíkti á klausurnar hjá flest öllum tryggingafélögunum eftir það og það var nánast sama klausan allsstaðar. |
Author: | saemi [ Wed 20. Aug 2008 11:07 ] |
Post subject: | |
Höfuðpaurinn wrote: kaskó-ið vildi nú ekkert gera fyrir mig þegar mínum felgum var stolið... og ég kíkti á klausurnar hjá flest öllum tryggingafélögunum eftir það og það var nánast sama klausan allsstaðar.
Stolnar felgur og skemmdar er ekki alveg sama tóbakið....... |
Author: | Höfuðpaurinn [ Wed 20. Aug 2008 13:53 ] |
Post subject: | |
saemi wrote: Stolnar felgur og skemmdar er ekki alveg sama tóbakið.......
satt er það, en dæmi um svona klausu: "Vátrygging bætir ekki: Skemmdir er varða hjól, hjólbarða, fjaðrir, rafgeyma, gler, annað en rúður, svo og tjón vegna stuldar einstakra hluta ökutækisins og skemmdir sem af því stafa." |
Author: | Angelic0- [ Wed 20. Aug 2008 15:37 ] |
Post subject: | |
Höfuðpaurinn wrote: saemi wrote: Stolnar felgur og skemmdar er ekki alveg sama tóbakið....... satt er það, en dæmi um svona klausu: "Vátrygging bætir ekki: Skemmdir er varða hjól, hjólbarða, fjaðrir, rafgeyma, gler, annað en rúður, svo og tjón vegna stuldar einstakra hluta ökutækisins og skemmdir sem af því stafa." Þeir borga ekki heldur undirvagnstjón.... nema boddítjón fylgi með í pakkanum ![]() |
Author: | burgerking [ Thu 21. Aug 2008 13:44 ] |
Post subject: | |
Þeir borga EKKI felgutjón.. veit það af reynslu. |
Author: | Berteh [ Thu 21. Aug 2008 15:23 ] |
Post subject: | |
Þeir borga felgutjón ef boddítjón er með í pakkanum ![]() |
Author: | Viggóhelgi [ Thu 21. Aug 2008 15:30 ] |
Post subject: | |
Ég hef fengið felgutjón bætt... 2 hjólbarða með. einnig undirvagnstjón þar að segja hlíf. |
Author: | burgerking [ Thu 21. Aug 2008 16:31 ] |
Post subject: | |
Vís harðneituðu allavega, og það var boddýtjón með í pakkanum ![]() |
Author: | Höfuðpaurinn [ Thu 21. Aug 2008 16:47 ] |
Post subject: | |
það væri nú gaman að vita hvaða tryggingafélag hefur bætt þessi blessuðu felgutjón hjá ykkur? kannski maður færi sig um set. en er ekki hægt að mistúlka þessa setningu á marga vegu? Quote: "Vátrygging bætir ekki:
Skemmdir er varða hjól, hjólbarða, fjaðrir, rafgeyma, gler, annað en rúður, svo og tjón vegna stuldar einstakra hluta ökutækisins og skemmdir sem af því stafa." tökum sem dæmi, ef bretti er rifið af bílnum og húdd/hurð/stuðari skemmist við það, fær maður þá ekkert bætt?? |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |