bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Bucharest city challenge 2008
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=31370
Page 1 of 2

Author:  Kristján Einar [ Tue 19. Aug 2008 20:26 ]
Post subject:  Bucharest city challenge 2008

Sæl öll sömul!

ákvað að setja inn smá klausu hérna til að sýna ykkur frá brautinni sem ég er að fara að keppa á um helgina,

smá grein af MBL.is
http://mbl.is/mm/sport/formula/2008/08/ ... _bukarest/

Quote:
Búist við 300.000 áhorfendum á formúlu-3 í Búkarest


Næstsíðasta mótshelgi hinnar bresku formúlu-3 fer fram um helgina og keppnisvettvangurinn er ekki beint breskur. Nei, keppt verður á götum Búkarest og ekið kringum höllina miklu sem Nicolae Ceausescu fyrrverandi Rúmeníuforseti reisti sér.

Kristján Einar Kristjánsson heldur á morgun til Búkarest til keppni, en hann hefur undirbúið sig undir keppnina í London síðustu daga.

Ekið verður um götur miðborgar Búkarest og liggur brautin eins og nokkurs konar rammi um höllina miklu sem mun vera næst stærsta bygging heims, en aðeins lítill hluti hennar er ofanjarðar.

Viktor á Palli í fyrra en fjarri góðu gamni nú
Viktor Þór fremstur í fylkingu í Búkarest í fyrra en hann stóð sig þar mjög vel.

Einnig var keppt í Búkarest í fyrra og gerði Viktor Þór Jensen sér þá lítið fyrir og varð í öðru sæti í landsflokki. Hann hefur keppt í alþjóðaflokknum í ár en hætti fyrir skömmu með liði sínu og verður því ekki meðal keppenda um helgina.

Áætlað er að um 300.000 manns verði í stúkum og stæðum meðfram keppnisbrautinni og fylgist með keppni helgarinnar. Strax eftir kappaksturinn í Silverstone á laugardag hélt lest flutningabíla keppnisliðanna áleiðis til Rúmeníu með hafurtask liðanna.

Þeir voru væntanlegir til rúmensku höfuðborgarinnar í dag. Vegna tíðra árása glæpagengja á flutningabíla í Rúmeníu var ákveðið að trukkar liðanna allra færu í samfloti. Frá landamærum Rúmeníu til Búkarest var þeim heitið lögreglufylgd.

Mistök geta orðið dýrkeypt

„Megin munurinn á götukappakstri og keppni á öðrum brautum er að hver mistök í Búkarest binda enda á aksturinn. Það er hvorki gras eða möl utan brautar til að renna sér út á, heldur bara vegrið og veggir. En þetta er ótrúlega spennandi og ég get ekki beðið eftir að komast í bílinn á föstudagsæfingunni,“ segir Kristján Einar Kristjánsson um helgina framundan.
Sam Bird, félagi Kristjáns Einars, á leið til sigurs í Búkarest í fyrra. Forsetahöllin í baksýn.

Sam Bird, félagi Kristjáns Einars, á leið til sigurs í Búkarest í fyrra. Forsetahöllin í baksýn. mbl.is

„Ég hef verið í London frá því við lukum keppnishelginni á Silverstone og dagarnir farið í andlegan og líkamlegan undirbúning. Ég hef unnið í að læra brautina í Búkarest með því að keyra hana aftur og aftur á upptökum úr keppnisbílum frá í fyrra. Þess á milli hef ég verið í slökun.

Svo hafa verið ófá og löng símtöl á milli mín og Sam Bird þessa daga, en hann var akstursþjálfarinn minn í formúlu BMW í fyrra og vann kappakstur í Búkarest í fyrra þegar hann ók þar fyrir Carlin-liðinu,“ segir Kristján Einar einnig.

Keppt verður tvisvar um helgina, fyrra mótið fer fram á laugardag og hið seinna á sunnudag.

Að keppni lokinni í Búkarest verður aðeins eftir ein mótshelgi hjá Kristjáni Einari og félögum í formúlu-3. Fer hún fram í Donington í Englandi í október.

Svo jöfn er keppnin um sigur að fjórir ökumenn eiga enn möguleika á að hreppa meistaratitil bresku formúlunnar. Sá sem hampar titli að loknum kemst í hóp ökumanna á borð við Ayrton Senna, Mika Häkkinen, Nelson Piquet, Takuma Sato, Rubens Barrichello og Jackie Stewart, svo einhverjir meistarar mótaraðarinnar séu nefndir.


myndband onboard úr 911 gt3 RSR race bíl, við erum talsvert sneggri með hringinn


og svo nokkrar myndir frá keppninni í fyrra:

Image

pitturinn

Image

start finish straight, Viktor Þór endaði 2 þarna í fyrra

Image

Forsetahöllin í bakgrunni

Image
Image
Fjölmiðlasalurinn á brautinni, blaðamannafundur, inní forsetahöllinni

Image
Image

Playboy aðal sponsor keppninar um helgina 8)

Image

svo erum við að keyra með FIA GT
Image

linkur á heimasíðu keppninnar: http://www.bucharest-ring.com/

allavega, bara spenna wish me luck :)

Author:  ömmudriver [ Tue 19. Aug 2008 20:33 ]
Post subject: 

Já gangi þér vel Kristján :)

Author:  JOGA [ Tue 19. Aug 2008 20:45 ]
Post subject: 

Gaman að þessu. Örugglega gaman að fá að spretta löglega úr spori svona "innanbæjar" :lol:

Gangi þér sem allra best!

Author:  Ingsie [ Tue 19. Aug 2008 21:12 ]
Post subject: 

Gangi þér sjúklega vel Kristján, maður hefði ekkert á móti því að keyra þarna sjálf í F3 :wink:

Author:  Ingsie [ Tue 19. Aug 2008 21:12 ]
Post subject: 

oops double post

Author:  Geysir [ Tue 19. Aug 2008 21:16 ]
Post subject: 

Snilld.

Gangi þér vel :D

Author:  arnibjorn [ Tue 19. Aug 2008 21:20 ]
Post subject: 

Nice, ég treysti á að þú stendur þig! :D

Gangi þér síðan vel með gellurnar þarna, lúkka nokkuð vel.

Author:  SteiniDJ [ Tue 19. Aug 2008 21:20 ]
Post subject: 

Skemmtu þér vel. ;)

Author:  Steini B [ Tue 19. Aug 2008 21:33 ]
Post subject: 

úúú, nice... Gangi þér vel Kristján... :D

Author:  Alpina [ Tue 19. Aug 2008 22:29 ]
Post subject: 

Rúmenskar stúlkur :naughty:

Author:  Kristján Einar [ Tue 19. Aug 2008 23:29 ]
Post subject: 

ég ætla ekki að spara stóru orðinn og segji að fyrsti sigur komi um helgina! að minsta kosti einn pallur!

Author:  bimmer [ Tue 19. Aug 2008 23:30 ]
Post subject: 

Jamm ekkert annað en sigur!!!!

.... og svo fleiri myndir af gúllasgellum :wink:

Author:  Aron Andrew [ Wed 20. Aug 2008 01:04 ]
Post subject: 

Fínt að sigra eina svona keppni og kíkja svo á þessar dömur þarna 8)

Samþykkir kærastan það ekki svona eftir fyrsta sigur? :lol:

Author:  bjahja [ Wed 20. Aug 2008 09:04 ]
Post subject: 

Kristján Einar wrote:
ég ætla ekki að spara stóru orðinn og segji að fyrsti sigur komi um helgina! að minsta kosti einn pallur!

Þarna líst mér á þig, við hvetjum þig áfram :D

Author:  gstuning [ Wed 20. Aug 2008 09:12 ]
Post subject: 

Líst vel á þig.

Taka 1.sæti væri sko ekki slæmt

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/