bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Golfarar á Kraftinum? https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=31342 |
Page 1 of 4 |
Author: | Geysir [ Mon 18. Aug 2008 14:39 ] |
Post subject: | Golfarar á Kraftinum? |
Hverjir hérna inni spila golf? Ég sjálfur hef farið tvo hringi, einn fyrir ca 4 árum og svo seinni hringinn núna í sumar. Sem er nú ekki frásögu færandi nema þá kannski fyirr þá staðreynd að ég er með 9 holu golfvöll í bakgarðinum (bókstaflega) og er hann búinn að vera opinn núna í 2 og 1/2 ár. http://www.geysirgolf.is/ Var alltaf á þeirri skoðun að þetta væri hobbý fyrir snobb pakk og afsökun fyrir feitt lið sem ekki nennti í ræktina. Hafði algera óbeit á þessu öllu saman þegar byrjað var á framkvæmdunum við gerð vallarins. En núna í sumar dreif ég mig hring með móður minni og föður og ég kolféll fyrir þessu sporti og hef þurft að éta allt ofaní mig sem ég sagði um þetta sport. Allavega, eru margir kraftsmenn sem spila golf? Er áhugi fyrir því að halda BMWKraftsmót í golfi eða bara BMWKrafts golfhitting/dag? Get sett inn gott orð og eflaust fengið gott verð ef áhugi er fyrir þessu. Kjörin ástæða til að þenja tryllitækin yfir heiðina og renna austur fyrir fjall. |
Author: | Stanky [ Mon 18. Aug 2008 14:48 ] |
Post subject: | |
11,4 forgjöf. |
Author: | Geirinn [ Mon 18. Aug 2008 14:48 ] |
Post subject: | |
Þar sem könnunin gerði ráð fyrir "Nei" líka þá finnst mér ég hafa leyfi til að tjá mig neikvætt ![]() Þannig er mál með vexti að nokkrum sinnum yfir ævina hef ég tekið upp golfkylfu en aldrei farið á völl, né keppt heilan leik. Ég er bara einn af þeim sem á hroðalega erfitt með að setja mig í þessar stellingar sem ætlast er til af golfurum, sveiflan heitir örugglega eitthvað annað en sveifla og ég get ómögulega slegið boltann þannig að vel sé. Ég hef líka farið í Bása (þá sem fylgifiskur einhvers annars) og það er sama sagan, ÉG HITTI EKKI BOLTANN ![]() Sportið er eflaust fínt en það er ekki fyrir mig eins og staðan er í dag ![]() |
Author: | Stanky [ Mon 18. Aug 2008 14:49 ] |
Post subject: | |
Geirinn wrote: Þar sem könnunin gerði ráð fyrir "Nei" líka þá finnst mér ég hafa leyfi til að tjá mig neikvætt
![]() Þannig er mál með vexti að nokkrum sinnum yfir ævina hef ég tekið upp golfkylfu en aldrei farið á völl, né keppt heilan leik. Ég er bara einn af þeim sem á hroðalega erfitt með að setja mig í þessar stellingar sem ætlast er til af golfurum, sveiflan heitir örugglega eitthvað annað en sveifla og ég get ómögulega slegið boltann þannig að vel sé. Ég hef líka farið í Bása (þá sem fylgifiskur einhvers annars) og það er sama sagan, ÉG HITTI EKKI BOLTANN ![]() Sportið er eflaust fínt en það er ekki fyrir mig eins og staðan er í dag ![]() Maður fæðist ekki góður í því að drifta! ![]() |
Author: | fart [ Mon 18. Aug 2008 14:51 ] |
Post subject: | |
12.1 í forgjöf, spila slatta. |
Author: | bjahja [ Mon 18. Aug 2008 14:53 ] |
Post subject: | |
Nei, en það er gaman að kíkja uppí bása með félögunum og fíflast ![]() |
Author: | Thrullerinn [ Mon 18. Aug 2008 15:09 ] |
Post subject: | |
10.4 í forgjöf... en hef ekki spilað að viti lengi ![]() |
Author: | JOGA [ Mon 18. Aug 2008 15:11 ] |
Post subject: | |
Nei en ætla að prófa fljótlega. |
Author: | Geysir [ Mon 18. Aug 2008 15:11 ] |
Post subject: | |
fart wrote: 12.1 í forgjöf, spila slatta. Stanky wrote: 11,4 forgjöf.
Skora á ykkur að koma og taka hring. (Þ.e.a.s. ef þú ert enn á landinu Fart) Virkilega krefjandi völlur og sanngjarnt verð ásamt vinalegu viðmóti. Tala nú ekki um landslagið, þetta er staðurinn til að spila ef þið viljið spila á alvöru velli. ![]() "Völlurinn er 5812 m á gulum teigum, par 74 sem er einstakt á Íslandi. Völlurinn er nýopnaður og því eru svæðin fyrir utan brautir ótroðin þannig að boltinn sekkur auðveldlega þar og týnist. Hafa þarf því það í huga að hitta brautirnar og er betra þá að draga úr högglengd og ná þannig að spila völlinn með skynsemi.Haukadalsvöllur refsar mikið fyrir slæm högg og ónákvæm. " Sigurður Pétursson. PGA Professional |
Author: | arnibjorn [ Mon 18. Aug 2008 15:13 ] |
Post subject: | |
Spilaði aðeins golf þegar ég var yngri en aldrei neitt af viti. Núna spila ég golf kannski 1x á ári, þegar ég fer uppí sumarbústað í Húsafelli. Alltaf gaman að spila völlinn þar ![]() |
Author: | saemi [ Mon 18. Aug 2008 16:07 ] |
Post subject: | |
Ég ætla að bíða aðeins með golfið. I'm still sexually active... |
Author: | Einarsss [ Mon 18. Aug 2008 16:15 ] |
Post subject: | |
saemi wrote: Ég ætla að bíða aðeins með golfið.
I'm still sexually active... ![]() |
Author: | Kristjan [ Mon 18. Aug 2008 17:19 ] |
Post subject: | |
Ég á svona græju sem maður púttar í og hún skýtur kúlunni aftur til manns, maximum letisport. |
Author: | Húni [ Mon 18. Aug 2008 17:26 ] |
Post subject: | |
rosa gaman að bomba eitthvað út í loftið en ekki að ná í kúluna ætla mér alltaf að fara á bása get trúað því að það sé rosa gaman en fynst ekkert spess í gólfi |
Author: | Brútus [ Mon 18. Aug 2008 17:50 ] |
Post subject: | |
Hef ekki mikið spilað en það er alveg kominn tími til að dusta rikið af settinu sem maður á uppá skáp. |
Page 1 of 4 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |