bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Tatoo
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=31239
Page 1 of 3

Author:  Benzer [ Mon 11. Aug 2008 23:33 ]
Post subject:  Tatoo

Vantar einhverjar góðar hugmyndir af tatooi..ætla fá mér tatoo milli herðarblaðanna,stærðin á því skiptir ekki öllu,

hef langað lengi i Tatoo og ætla að láta verða af því núna :)

Author:  IceDev [ Mon 11. Aug 2008 23:42 ]
Post subject: 

Ef þú ert ekki sjálfur með ákveðna hugmynd um tattoo....

Ekki fá þér þannig

Case closed

Kv
Meistari í heimskulegum húðflúrum

Author:  IngóJP [ Mon 11. Aug 2008 23:43 ]
Post subject: 

Fáðu þér GAY

annars styð ég svar Óskars

Author:  aronjarl [ Tue 12. Aug 2008 00:34 ]
Post subject: 

það er svolítið til í þessu..

EF maður er ekki alveg ákveðin hvað maður ætlar að fá sér.
þá á maður ekki að fá sér.

nokkuð einfallt.

'' þú þværð ekki tattoo af þér.. ''

Author:  arnibjorn [ Tue 12. Aug 2008 00:48 ]
Post subject: 

Um að gera að hlusta á ráð um tattoo frá Icedev :lol:

Author:  IceDev [ Tue 12. Aug 2008 00:50 ]
Post subject: 

Image

Jebbs :? :lol:

Author:  bjornvil [ Tue 12. Aug 2008 00:51 ]
Post subject: 

Sammála öðrum hér. Vertu ALVEG 100% VISS á því sem þú vilt fá þér. Það er ekkert leiðinlegra en að vera með tattú sem þú fílar ekki. I know!

Endilega skoðaðu eins mikið og þú getur af tattúum, þá ættirðu að geta myndað þér skoðun á því hvað þú vilt.

http://www.bmezine.com/

Mjög góð síða um allskonar body modification. Hellingur af myndum þarna inni, og reynslusögur líka.

Author:  Dogma [ Tue 12. Aug 2008 01:12 ]
Post subject: 

IceDev wrote:
Image

Jebbs :? :lol:

við erum flottir óskar :lol:

Author:  bjahja [ Tue 12. Aug 2008 08:21 ]
Post subject: 

IceDev wrote:
Image

Jebbs :? :lol:

Var samt ekki gaman á Skeldunni :lol:

Author:  fart [ Tue 12. Aug 2008 08:58 ]
Post subject: 

láttu skrifa "TATOO" á milli herðablaðanna

Author:  BMWaff [ Tue 12. Aug 2008 09:24 ]
Post subject: 

Það er rétt hjá fyrri ræðumönnum, maður er ekki að fá sér tattoo af réttu ástæðum ef þú veist ekki hvað þú vilt, en bara langar í tattoo... Þá eru líkurnar á því að þú fáir þér eitthvað sem þú ert ekki alveg sáttur við svo fljótlega...

Að því sögðu... Þegar þú loksins ákveður hvað þér langar í og það vill svo til að myndin er í stærri kanntinum... Þá meina ég að það sé mynd sem þú ert búin að pæla í lengi... Fáðu þér hana.

Ekki gera eins og svo margir... Ætla að bíða með það sem þeim langar í og ætlar að fá þér eitthvað "lítið" til að byrja með. Þá ertu bara að reyna að fylla uppí lönguninna með eitthverju sem þér langar kanzki ekki í og átt augljóslega eftir að sjá eftir því...

Þetta er einn af þessum hlutum fynnst mér sem, ef þú ætlar að gera, farðu alla leið. Þá meina ég fyrir þig, ekki endilega stórt, ekki endilega með lit... Bara fáðu þér það sem þú villt fá þér.

Fyrir mér er þetta ekki svo heilagt lengur... Enda ágætlega flúraður. Maður getur notað líkaman þó það sé ein og ein mynd sem maður er ekki 100% með... Aðrir halda að lífið sé ónýtt ef allt er ekki 100%

Author:  Misdo [ Tue 12. Aug 2008 11:21 ]
Post subject: 

haha hversu fullur varstu þegart þú fékkst þér þetta tattoo :lol:

Author:  íbbi_ [ Tue 12. Aug 2008 11:41 ]
Post subject: 

að fá sér tattoo ekki úr eigin höfði er jafn kjánalegt og liðið sem er að óska eftir góðum einkanúmerum

Author:  gardara [ Tue 12. Aug 2008 15:49 ]
Post subject: 

bjornvil wrote:
Sammála öðrum hér. Vertu ALVEG 100% VISS á því sem þú vilt fá þér. Það er ekkert leiðinlegra en að vera með tattú sem þú fílar ekki. I know!

Endilega skoðaðu eins mikið og þú getur af tattúum, þá ættirðu að geta myndað þér skoðun á því hvað þú vilt.

http://www.bmezine.com/

Mjög góð síða um allskonar body modification. Hellingur af myndum þarna inni, og reynslusögur líka.


bme er ekkert töff http://www.bmevideo.com/

:(

Author:  Erica [ Tue 12. Aug 2008 16:20 ]
Post subject: 

getur líka prófað að tala við þá sem eru að tattoovera hérna heima og ræða þetta við þá.. þeir hljóta að geta ráðlagt þér og gefið þér hugmyndir sem þú getur síðan unnið úr.

mæli með stofunni hjá Búra og Fjölni. Fjölnir gerði tvö af þeim sem ég er með og er bara sátt.

svo er það sem er búið að koma fram í þræðinum.. vertu 100% viss um þetta og hugsaðu þetta vel.. það er ekkert verra en að sitja uppi með ljótt tattoo..

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/