bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Dekkjahöllin. NEI TAKK
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=31183
Page 1 of 2

Author:  Los Atlos [ Fri 08. Aug 2008 15:38 ]
Post subject:  Dekkjahöllin. NEI TAKK

Þannig er að ég fór með rauða 525 í Dekkjahöllina hérna á Akureyri í fyrravetur til að fá nýjan skóbúnað undir hann. Núna þegar ég er loksins búinn að kaupa sumardekk og felgur og er að fara skifta kemur í ljós að boltarnir í einni felgunni eru alveg pikk fastir. Fávitinn sem setti þetta undir hefur forskrúfað 2 bolta. Nú þarf ég að standa í veseni, kostnaði og tíma að laga þetta og ég er EKKI sáttur. Viðskiftum mínum við Dekkjahöllina er með öllu lokið og ég mæli ekki með því við nokkurn mann að versla þar.

Þegar ég fór með rauða að láta skoða þetta var mér sagt að Dekkjahallarmenn hafi verið að meðhöndla einhverjar flottar 18" felgur og ein felgan hafi dottið á andlitið þegar það var verið að færa þær, og í staðinn fyrir að taka hana upp og halda á henni þá var sparkað í hana og hún látin renna á andlitinu eftir gólfinu. Þvílík fagmennska. Einnig var minnst á að minn bíll er ekki sá fyrsti sem væri forskrúfaður þarna hjá þeim.

Author:  BMW_Owner [ Fri 08. Aug 2008 17:31 ]
Post subject: 

vá hvað ég væri svekktur ef að ég ætti 18" felgur sem væru rispaðar í rusl og ekkert hægt að sanna á þá,
en annars þá er gott að vita þetta,ég versla ekki við þá héðan í frá,
bara leiðinlegt að þú þurfir að lenda í skít til að vera öðrum til varnaðar :wink:

Author:  Alpina [ Fri 08. Aug 2008 17:41 ]
Post subject: 

:? :? Draugasögur í björtu

Author:  jon mar [ Fri 08. Aug 2008 22:30 ]
Post subject: 

Hef aldrei lent í slæmri þjónustu eða vandræðum í Dekkjahöllinni hérna á Akureyri. Hinsvegar hefur mér oft þótt sem viðmót eigandans mætti batna.

Ég hinsvegar er aldrei ánægður nema ég fái að gera hlutina sjálfur, sumsé treysti næstum engum þegar kemur að bílnum :oops:

Author:  BMWaff [ Fri 08. Aug 2008 22:48 ]
Post subject: 

Held að það væru öll fyrirtæki væru lokuð ef allir hættu að fara þangað því það klikkar eitthvað af og til...

En mér finnst góð þjónusta koma í ljós þegar eitthvað fer úrskeiðis, hverning viðkomandi fyrirtæki leysir það... Það getur ÖLLUM orðið á að gera eitthverja vitleysu, bara spurning um hverning við höndlum það þegar það gerist...

Ég myndi tala við þá og segja þeim frá þessu, þó það væri ekki nema bara til að þeir gætu "kanzki" bætt sig í þessum málum og jón jóns lendi ekki í því sama hjá þeim...

Engu að síður hef ég lent í svona og það var algjört helvíti! Vonandi leysist þetta á eins auðveldan hátt og mögulegt er...

...Eitthvað svo jákvæður í dag... aldrei slíku vant :)

Author:  Los Atlos [ Fri 08. Aug 2008 22:56 ]
Post subject: 

BMWaff wrote:

Akkúrat það sem ég er ekki þessa dagana, það er bókstaflega allt búið að ganga á afturfótunum. Fyrst forskrúfaður bmw, svo eiðilagði ég símann minn með því að æla yfir hann (ekki grín), svo áðan varð grái bmw straumlaus og stöðvaði umferð ca 5000 súpuþabmandi vitleysinga á Dalvík. hvað næst.

Author:  Bjarkih [ Fri 08. Aug 2008 23:49 ]
Post subject: 

Hef ekki góða reynslu af dekkjahöllinni. Öll mín viðskipti hvað svona hluti varðar eru hjá Höldur á glerártorgi. Bara liðlegir og þægilegir, góð verð og frábær þjónusta. Bæði þegar eru vandamál og þegar allt er í góðu lagi.

Author:  srr [ Sat 09. Aug 2008 02:34 ]
Post subject: 

jon mar wrote:
Hef aldrei lent í slæmri þjónustu eða vandræðum í Dekkjahöllinni hérna á Akureyri. Hinsvegar hefur mér oft þótt sem viðmót eigandans mætti batna.

Gunnar í Dekkjahöllinni er spes náungi.
Hann er í viðskiptum við mig í vinnunni og já...segjum bara að hann sé sérstakur :wink:

Author:  jeppakall [ Sun 10. Aug 2008 17:19 ]
Post subject: 

er það ekki gaurinn sem á 49" Ram-inn, ef svo er þá hef ég hitt hann og já hann er "spes"

Author:  jon mar [ Sun 10. Aug 2008 17:52 ]
Post subject: 

jeppakall wrote:
er það ekki gaurinn sem á 49" Ram-inn, ef svo er þá hef ég hitt hann og já hann er "spes"

passar

Author:  Los Atlos [ Wed 13. Aug 2008 00:08 ]
Post subject: 

Mig langaði bara að láta vita að það er búið að laga þetta, ég fór með bílinn á Baugsbót hér á Akureyri, þetta kostaði alls 3 tíma í vinnu og 15.000 kr. Ég er eiginlega bara mjög sáttur við þetta. Sérstaklega þjónustuna á Baugsbót, kom með bílinn á fimmtudegi og hann var búinn að klára þetta fyrir hádegi á föstudag :) jæja, ég er farinn út að keira :D

Author:  Jónas Helgi [ Thu 14. Aug 2008 18:53 ]
Post subject: 

Ég lenti nú í ekkert ósvipuðu, en ég fór með nýju 19" M6 felgurnar mínar með USA lyktinni á PITSTOP.
Var líka með spúnkuný dekk sem hafa verið inní bílskúr hjá mér í 1 ár án þess að einhver hafi sérstaklega snert þau og ég er þarna og þeir segja við mig að dekkið mitt sé ónýtt?
Stærðarinnar gat á hliðinni á einu dekkinu og þeir segja að það sé ekki hægt að laga það vegna lágs prófíls (35), þeir löguðu það nú samt en þeir sögðust ekki ætla að ábyrgjast það! (Kanski að maður hefði átt að hafa augun betur opin)
Allaveganna, ég keyri um á 2x 19" M6um að aftan og 2x 17" m3 felgum að framan í 9-10 daga og bíð eftir að PITSTOP fái dekkið sem þeir jú "sérpöntuðu" nú fyrir mig (BFGOODRICH G-force USA Týpa, bara til EURO týpa hjá þeim) og borgaði 56/8 þúsund fyrir dekkið.
NEMA HVAÐ.. 2stk (afsakið) pólverjar hamast á að taka ónýta dekkið af felgunni minni til að setja nýtt uppá, ég glugga svona með annað augað á þá því ódýrt vinnuafl er you know what. Ég greip utanum smettið á mér þegar ég sé þá með stálstaura apparatið sem þeir nota til að ná upp dekkinu vera að juða þessu í allar áttir framaná felgunni hangandi á því liggur við, ég fer strax í afgreiðsluna og næ í starfsmann og þessir tveir einstaklingar gripnir glóðvolgir og felgan í HÖNKI.. 5stk 3-5cm rispur að framanverðu lippinu, 2 ljót brot 1-3cm, meira segja rispuðu hana að framan... felgan að sjálfsögðu glæný, tók þær uppúr kössunum á verkstæðinu.
Ég er nú ekki enþá búinn að fá neitt úr þessu máli en þeir þykjast eithvað ætla að setja þetta í viðgerð hjá felgur.is.
Hvað getur maður gert í svona málum?

Author:  lulex [ Thu 14. Aug 2008 19:02 ]
Post subject: 

Astro wrote:

ertu með skotleyfi ? :lol:

Author:  Jónas Helgi [ Thu 14. Aug 2008 19:29 ]
Post subject: 

lulex wrote:
ertu með skotleyfi ? :lol:

Ég vildi að svo væri :) Spurning að senda þessa 2 einstaklinga uppá esju? :lol:

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/