bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Tryggingarviðauki https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=31176 |
Page 1 of 2 |
Author: | srr [ Fri 08. Aug 2008 11:31 ] |
Post subject: | Tryggingarviðauki |
Vá, ég var að skipta yfir í Vörð tryggingar fyrir mánuði síðan. Mun ódýrari tryggingarpakki etc....Munaði tæpum 40-50.000 kr á ári fyrir mig. Svo núna vantar mig tryggingarviðauka fyrir 535i til að komast á brautina á morgun. Þegar ég var hjá Vís þá var það ókeypis, en þeir hjá Vörð vilja 8.xxx kr fyrir það. Eru fleiri hjá Vörð og er sama saga hjá ykkur? |
Author: | arnibjorn [ Fri 08. Aug 2008 11:33 ] |
Post subject: | |
Ég er hjá Verði og þarf ekki að borga krónu. Getur prófað að vísa í mig og segja að þú viljir fá sömu kjör ![]() |
Author: | gstuning [ Fri 08. Aug 2008 11:36 ] |
Post subject: | |
Ekki gefa sig og borga 8k, Vísa í track meisterinn Árnabjörn |
Author: | ///M [ Fri 08. Aug 2008 11:37 ] |
Post subject: | |
Ég var að fá endurnýjun á trygginguna á roadsternum og þar stendur að ég þurfi engann viðauka lengur.. er hjá tm ![]() |
Author: | valdiþ [ Fri 08. Aug 2008 11:51 ] |
Post subject: | |
Sama hjá mér, var að skipta yfir í Vörð, heimta rúmar 8 þús fyrir viðaukann. |
Author: | Svezel [ Fri 08. Aug 2008 11:54 ] |
Post subject: | |
Ég hætti hjá Verði m.a. útaf þessu rugli í þeim, lenti í svaka samtali við einhvern yfirmann þarna sem var bara með kjaft og leiðindi auk þess að ljúga í opið geðið á mér. Sagðist fara með allar mínar tryggingar þaðan og þeim var alveg sama. Fór til Sjóvá þar sem þetta er bara eitt símtal og viðaukinn kominn. |
Author: | Einarsss [ Fri 08. Aug 2008 12:03 ] |
Post subject: | |
Fer aldrei til þeirra með mín viðskipti, ég er sáttur hjá TM |
Author: | maxel [ Fri 08. Aug 2008 13:02 ] |
Post subject: | |
Vís, frítt fyrir æfingar. 8k hvert skipti á keppni. |
Author: | valdiþ [ Fri 08. Aug 2008 13:07 ] |
Post subject: | |
Viðaukinn hjá Verði dugir reyndar í heilt ár og gildir í allar æfingar eða keppnir á lokuðum brautum skv. þjónustufulltrúa. Fór frá Sjóvá þar sem þeir ætluðu að hækka tryggingarnar á bílnum um 25 þúsund ![]() |
Author: | gstuning [ Fri 08. Aug 2008 13:09 ] |
Post subject: | |
Allir viðaukar eiga ALLTAF að vera ókeypis. Allstaðar. Þetta er bara dónalegasta peningaplokk EVER hjá tryggingafélögunum |
Author: | HPH [ Fri 08. Aug 2008 13:11 ] |
Post subject: | |
maxel wrote: Vís, frítt fyrir æfingar.
8k hvert skipti á keppni. WTF. Allt frítt hjá mér |
Author: | Djofullinn [ Fri 08. Aug 2008 13:53 ] |
Post subject: | |
Hringdi áðan í Vörð þar sem ég er með allt tryggt og lenti á manni sem heitir Kári, hann lét mig fá viðauka út tímabilið sem gildir allsstaðar fyrir heilar 0 kr. Fékk viðaukann sendan á emaili áðan og á honum stendur: Quote: Um ábyrgðartryggingu ökutækis, slysatryggingu ökumanns og eiganda og rúðutryggingu gilda skilmálar Varðar trygginga hf. númer B-1.
Eigin áhætta í rúðutryggingu er 15% af verðmæti nýrrar rúðu. Viðauki við ábyrgðartryggingu ökutækja, skilmála nr. B-1 Vátryggingin nær yfir æfingar- og keppni í akstursíþróttum. Bara kúl |
Author: | íbbi_ [ Fri 08. Aug 2008 14:14 ] |
Post subject: | |
hringdi í TM áðan og bað um viðauak, fékk sendan viðauka strax út árið.. bara kúl.. fyrir utan að ég sótti um þetta á deilídræverinn.. sem er ekki að fara gera neinar kúnstir þarna, |
Author: | Aron Andrew [ Fri 08. Aug 2008 15:35 ] |
Post subject: | |
Ég var á fundi í gær hjá ÍSÍ um öryggi, tryggingar og fleira í mótorsporti. Þar var mikið talað um þennann viðauka sem við þurfum alltaf að vera að sækja okkur og var meðal annars sagt að öll tryggingafélögin ætli að fara að rukka svona fyrir þetta á næstunni... Það er ekki einu sinni á hreinu í lögum eða í reglum tryggingafélagana hvort að viðaukinn sé virkilega nauðsynlegur. En Skúli, vertu bara harður á þínu og fáðu þetta frítt! |
Author: | -Siggi- [ Fri 08. Aug 2008 16:44 ] |
Post subject: | |
Ég er hjá Vís og ég fékk viðaukann á 300ZX út árið fyrir æfingar og keppnir, ekkert mál. Svo fékk ég á CTS-V út sumarið en þar er tekið fram þetta sé bara fyrir æfingar. Málið er að það er ekkert til neitt staðlað yfir þetta hjá þeim, staðfestingin er aldei eins. Þegar ég hef hringt þá vita þessir þjónustufulltrúar ekkert um þetta. |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |