Ég var á rúntinum á fimmtudagskvöldið með vinum mínum á E55 AMG '98, og við lentum meðal annars í spyrnu við þennan bíl. Þetta er E34 M5.
Mikið djöfull var ég ánægður með hvað gamli stóð sig rosalega vel á móti E55, hann hékk í okkur mesta leiðina, en það var þó alveg ljóst að togið er þónokkuð meira í E55, enda V8. Við vorum fjórir í E55 en þeir voru þrír í M5.
Það sem mig langar einna mest að vita, er, hvaða árgerð er þessi M5? Virtist voðalega heill, og sprækur, og soundaði tussuvel. En lakkið á honum var ekki nógu gott, virtist nýlegt þó.
Bara thumbs up fyrir gamla M5 segi ég, á móti Benzanum sem trackar alveg rosalega vel og togar þónokkuð meira.
