bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Hvaða síma á maður að fá sér? https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=31056 |
Page 1 of 3 |
Author: | bimmer [ Thu 31. Jul 2008 21:17 ] |
Post subject: | Hvaða síma á maður að fá sér? |
Nú er Qtekinn minn alveg að deyja og ég þarf nýjan síma. Þarf að geta komist á vefinn og líka í email (Exchange). Hverju mæla menn með og af hverju? |
Author: | Kristjan [ Thu 31. Jul 2008 21:24 ] |
Post subject: | |
N65 ef þú þolir viðmótið. |
Author: | ///M [ Thu 31. Jul 2008 21:31 ] |
Post subject: | |
iphone ![]() |
Author: | Alpina [ Thu 31. Jul 2008 21:32 ] |
Post subject: | |
Þetta er umræða sem ég ætla að halda mig utan við ![]() |
Author: | Jón Ragnar [ Thu 31. Jul 2008 21:33 ] |
Post subject: | |
iphone segi ég |
Author: | valdiþ [ Thu 31. Jul 2008 21:44 ] |
Post subject: | |
Ég fékk mér HTC Diamond um daginn. Snilldarsími, hefur reyndar hækkað svolítið síðan ég fékk minn. Gerir allt sem ég þarf og helling sem ég þarf ekki ![]() |
Author: | ///M [ Thu 31. Jul 2008 21:46 ] |
Post subject: | |
ég hef átt og klárað tvo htc síma.. algjörlega mesti viðbjóður sem ég hef þurft að nota ![]() |
Author: | Steini B [ Thu 31. Jul 2008 22:56 ] |
Post subject: | |
Ég er dáldið búinn að vera að pæla í N95, á fyrir N73 og finnst það mjög góður sími... |
Author: | BMWaff [ Thu 31. Jul 2008 22:57 ] |
Post subject: | |
Nýju HTC símarnir eru svaðalegir... Touch Dimond og hinn nýji með lyklaborðinu (held að hann sé að koma út núna)... iPhone er over-rated ![]() ...æj ok, myndi samt alveg fá mér svoleiðis ![]() ![]() |
Author: | bimmer [ Thu 31. Jul 2008 23:17 ] |
Post subject: | |
Iphone er ekki seldur hér heima eða hvað? Og er ekki að kominn ný týpa? |
Author: | Lilja [ Thu 31. Jul 2008 23:21 ] |
Post subject: | |
Steini B wrote: Ég er dáldið búinn að vera að pæla í N95, á fyrir N73 og finnst það mjög góður sími...
Ég er búin að eiga n95 núna í 1 ár. Hann er voðalega flottur og allt það, og GPSið er snilld ... EN .. batteríið endist alveg rosalega stutt, sérstaklega ef maður er að nota símann eitthvað, browsa, nota GPS osfrv .. maður horfir bara á strikin hverfa og byrjar hann að bíbba .. óþolandi! Ég veit hann eyðir minna ef maður slekkur á 3G og stillir hann á að tengjast bara UMTS, en það er bara gay. |
Author: | Alpina [ Thu 31. Jul 2008 23:31 ] |
Post subject: | |
bimmer wrote: Iphone er ekki seldur hér heima eða hvað?
Og er ekki að kominn ný týpa? en gamli góði tvær langar og ein stutt _ _ . ![]() |
Author: | gardara [ Thu 31. Jul 2008 23:32 ] |
Post subject: | |
Ég á Sony Ericsson P1i, get ekki annað en mælt með honum, með snertiskjá, qwerty lyklaborði (svo maður er svakalega snöggur að skrifa, hentugt fyrir email, kraftinn og msn ![]() Hann styður exchange eins og þú sagðist þurfa og náttúrulega netið... Ásamt ótal fleiri fídusum og niðurhalanlegum forritum sem þú getur bætt við hann... Einn frekar sniðugur innbyggður fídus fyrir business kalla er sá að þú getur tekið mynd af nafnspjaldi og síminn hendir því inn í símaskrána hjá þér, fyllir sjálfur út í rétta reiti varðandi nafn, netfang, símanúmer ofl. Batteríið er frekar gott, hef verið tengdur 3G netinu heilu dagana (tengdur msn allann daginn) og batteríið dugar alveg. ![]() Hér eru speccar: http://www.esato.com/phones/index.php/phone=273 Lætur mig bara vita ef þú hefur einhverjar spurningar, er búinn að stúdera símann frekar mikið og forrit sem hægt er að fá ![]() Annars er ég sammála einhverjum sem sagði hérna ofar að iphone er stórlega ofmetinn... |
Author: | _Halli_ [ Fri 01. Aug 2008 00:06 ] |
Post subject: | |
Ef ég væri að fá mér síma í dag þá væri það HTC Diamond, virka rosalega vel eitthvað á mig. Ekki að það segi neitt um hvort þeir eru góðir, en allavega sýnist mér þeir vera lang skástir á markaðnum í dag. |
Author: | bimmer [ Fri 01. Aug 2008 00:23 ] |
Post subject: | |
Mér líst vel á þennan HTC Diamond síma. |
Page 1 of 3 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |