bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Staðsetning hraðamyndavéla á þjóðvegi 1?
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=31016
Page 1 of 1

Author:  Svessi [ Wed 30. Jul 2008 06:41 ]
Post subject:  Staðsetning hraðamyndavéla á þjóðvegi 1?

Ég er að fara hringinn með félaga mínum um helgina, og langar að vita staðsetninguna á þessum hraðamyndavélum á þjóðvegi 1.

Ég man eftir að hafa séð þetta upptalið í fréttatíma fyrir nokkrum mánuðum og hélt að ég gæti fundið þetta nokkuð auðveldlega á netinu en nei, er búinn að vera leita en finn ekki neitt.

Ekki það að maður búist við því að staðsetning þeirra sé auglýst með augljósum hætti, en samt varla að staðsetningin sé leyndarmál ef maður er að leita þeirra upplýsinga.

Einu vélarnar sem ég veit um á þjóðvegi 1 eru þessar tvær í Hvalfjarðasveitinni, semsagt á milli Hvalfjarðar og Borgarness.
Svo þessar sem eru í Hvalfjarðagöngunum og svo eru víst komnar vélar í Fáskrúðsfjarðargöng.

Author:  elli [ Wed 30. Jul 2008 08:16 ]
Post subject:  Re: Staðsetning hraðamyndavéla á þjóðvegi 1?

Svessi wrote:
Ég er að fara hringinn með félaga mínum um helgina, og langar að vita staðsetninguna á þessum hraðamyndavélum á þjóðvegi 1.

Ég man eftir að hafa séð þetta upptalið í fréttatíma fyrir nokkrum mánuðum og hélt að ég gæti fundið þetta nokkuð auðveldlega á netinu en nei, er búinn að vera leita en finn ekki neitt.

Ekki það að maður búist við því að staðsetning þeirra sé auglýst með augljósum hætti, en samt varla að staðsetningin sé leyndarmál ef maður er að leita þeirra upplýsinga.

Einu vélarnar sem ég veit um á þjóðvegi 1 eru þessar tvær í Hvalfjarðasveitinni, semsagt á milli Hvalfjarðar og Borgarness.
Svo þessar sem eru í Hvalfjarðagöngunum og svo eru víst komnar vélar í Fáskrúðsfjarðargöng.

Þú veit að hámarkshraði á íslandi er 90 km/klst?
:lol:

Author:  Berteh [ Wed 30. Jul 2008 08:21 ]
Post subject: 

Það er ein rétt við afleggjaran hjá Akranesi á leið í Borgarnes en það er skilti rétt áður sem varar við henni ef ég man rétt, og svo er önnur á leið frá Borgarnesi, man ekki nákvæma staðsetningu á því

Author:  kelirina [ Wed 30. Jul 2008 19:36 ]
Post subject: 

Ein er á milli Akranes og Borgarnes, nánar tiltekið við bæinn Fiskalæk.
Þetta eru tvær vélar sem stilltar eru á 96km vegna skekkjumarkanna sem eru 5km.

Author:  Bjöggi [ Thu 31. Jul 2008 10:44 ]
Post subject: 

ég get alveg staðfest þessa sem er á milli borgarness og Hvalfjarðarganga.

Fékk bréf heim sem sagði að ég hefði verið á 112 km/h og fékk 30.000 króna sekt :(

Mæli með að menn keyri þarna í báðar áttir á löglegum hraða, eins og að sjálfsögðu allsstaðar annarsstaðar á þjóðvegum landsins :wink:

Author:  Ingsie [ Thu 31. Jul 2008 10:52 ]
Post subject: 

Bjöggi wrote:
ég get alveg staðfest þessa sem er á milli borgarness og Hvalfjarðarganga.

Fékk bréf heim sem sagði að ég hefði verið á 112 km/h og fékk 30.000 króna sekt :(

Mæli með að menn keyri þarna í báðar áttir á löglegum hraða, eins og að sjálfsögðu allsstaðar annarsstaðar á þjóðvegum landsins :wink:


Já eg var á 105 þar og fékk 30þús króna sket

Author:  arnibjorn [ Thu 31. Jul 2008 10:58 ]
Post subject: 

Keyra bara löglega, þá þarf maður ekki að hafa neinar áhyggjur :)

Author:  _Halli_ [ Thu 31. Jul 2008 16:20 ]
Post subject: 

Ég sendi nú einu sinni póst á einhverja konu hjá Lögreglunni þegar það stóð til þes að setja upp þessar vélar.

Ég spurði hvort staðsetningar myndavélanna yrðu ekki aðgengilegar almenningi og auglýstar sérstaklega... fékk ekkert svar :lol:

Author:  Alpina [ Thu 31. Jul 2008 18:22 ]
Post subject: 

_Halli_ wrote:
Ég sendi nú einu sinni póst á einhverja konu hjá Lögreglunni þegar það stóð til þes að setja upp þessar vélar.

Ég spurði hvort staðsetningar myndavélanna yrðu ekki aðgengilegar almenningi og auglýstar sérstaklega... fékk ekkert svar :lol:


:rollinglaugh:

Author:  Stubbur [ Thu 31. Jul 2008 22:28 ]
Post subject: 

Átt að geta fundið þetta á map24.com

Author:  Fjarki [ Fri 01. Aug 2008 01:14 ]
Post subject: 

Var að rúlla hringinn, fór á þriðjudag og kom heim núna, efast um að það sé eitthvað búið að breytast. Engar hraðamyndavélar eru á þjóðveginum, nema þá þarna í kringum borgarnes og hvalfjarðagöngin.

En löggan er allstaðar núna, og ekkert bara ein eða tvær.

Kv, Kristján

Author:  Sta [ Fri 01. Aug 2008 01:36 ]
Post subject: 

Get lofað þér því að það verður allt morandi í löggum um helgina. Svo það er kannski ekki bara nóg að vita af hraðamyndavélunum :wink:
Vona að þú sért þá með góðan radarvara líka :P

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/