bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Fnykur í miðstöðinni
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=30972
Page 1 of 1

Author:  SteiniDJ [ Sun 27. Jul 2008 23:27 ]
Post subject:  Fnykur í miðstöðinni

Sælir.

Það er eins og miðstöðin í þristinum mínum hafi gert eitthvað stórt í brækurnar þegar ég kveiki á henni, það er alltaf alveg ótrúleg skítafýla í henni. Ég er búinn að troða ilm-tásu þangað inn og ekkert virðist ætla að drepa þetta þannig ég spyr ykkur: Hvað hafið þið gert þegar þið lendið í þessu og hvernig virkaði það?

Kveðja,

Steini. :)

Author:  totihs [ Sun 27. Jul 2008 23:30 ]
Post subject: 

eitthvað dautt í frjókornasíunni þinni?

Author:  SteiniDJ [ Sun 27. Jul 2008 23:38 ]
Post subject: 

totihs wrote:
eitthvað dautt í frjókornasíunni þinni?

Heh, held ekki en það er best að tékka á því. :)

Author:  _Halli_ [ Mon 28. Jul 2008 03:17 ]
Post subject: 

Getur líka prufað að kaupa sýklaeyði og ilmgjafa frá Comma, veit ekki hvar það fæst. Skilur brúsann eftir í gangi í nokkrar mínútur með miðstöðina á fullu.

Author:  SteiniDJ [ Mon 28. Jul 2008 03:58 ]
Post subject: 

_Halli_ wrote:
Getur líka prufað að kaupa sýklaeyði og ilmgjafa frá Comma, veit ekki hvar það fæst. Skilur brúsann eftir í gangi í nokkrar mínútur með miðstöðina á fullu.

Hmm, ég tek bara bensínstöðvartjékk. Takk fyrir þetta! :)

Author:  iar [ Mon 28. Jul 2008 15:41 ]
Post subject: 

Ef þú ert með loftkælingu þá er spurning hvort þú þurfir ekki að sótthreinsa loftkælinguna hjá þér.

Kíktu á þennan þráð: http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=7070

Author:  SteiniDJ [ Mon 28. Jul 2008 18:04 ]
Post subject: 

iar wrote:
Ef þú ert með loftkælingu þá er spurning hvort þú þurfir ekki að sótthreinsa loftkælinguna hjá þér.

Kíktu á þennan þráð: http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=7070

Það er sennilega þessi blessaða frjókornasía, verst að seinni linkurinn í DIY þræðinum þínum er hættur að virka, en ég get örugglega fundið svipað annaðstaðar.

Takk takk! :)

Author:  iar [ Mon 28. Jul 2008 18:14 ]
Post subject: 

SteiniDJ wrote:
iar wrote:
Ef þú ert með loftkælingu þá er spurning hvort þú þurfir ekki að sótthreinsa loftkælinguna hjá þér.

Kíktu á þennan þráð: http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=7070

Það er sennilega þessi blessaða frjókornasía, verst að seinni linkurinn í DIY þræðinum þínum er hættur að virka, en ég get örugglega fundið svipað annaðstaðar.

Takk takk! :)

Ég var svo forsjáll á sínum tíma að taka afrit af báðum greinunum. 8)

Kíktu hingað ---> http://www.pjus.is/iar/bilar/greinar/mirror/

Author:  SteiniDJ [ Mon 28. Jul 2008 18:25 ]

Haha, þú ert algjör snillingur! En svo virðist vera að þetta sé allt gert í húddinu í E46 (ef þetta er það sama)

Author:  iar [ Mon 28. Jul 2008 18:53 ]
Post subject: 

Já auðvitað. #-o Linkarnir sem ég benti á eru fyrir E36.

En í grundvallaratriðum er þetta það sama varðandi loftkælinguna og spreyið, óháð tegund. :-)

Author:  SteiniDJ [ Mon 28. Jul 2008 18:59 ]
Post subject: 

iar wrote:
Já auðvitað. #-o Linkarnir sem ég benti á eru fyrir E36.

En í grundvallaratriðum er þetta það sama varðandi loftkælinguna og spreyið, óháð tegund. :-)

Hehe, takk. :) Ætli maður prófi ekki bara þetta alltsaman, það virkar örugglega best!

Author:  hemmih [ Mon 28. Jul 2008 23:56 ]
Post subject: 

Ekki nema einhver hefur tekið sig til og skitið hreinlega í miðstöðina þína ! :lol:

Author:  SteiniDJ [ Tue 29. Jul 2008 00:23 ]
Post subject: 

hemmih wrote:
Ekki nema einhver hefur tekið sig til og skitið hreinlega í miðstöðina þína ! :lol:

Haha, maður veit aldrei. Persónulega vona ég ekki samt. :lol:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/