http://visir.is/article/20081023/FRETTIR01/610259037/-1
Lögreglan hefur tilbúna viðbragðsáætlun komi til múgæsings eða annars ófriðar vegna efnahagsástandsins. Reiði í samfélaginu hefur orðið til þess að öryggisgæsla í kringum ráðamenn og einstaka menn í viðskipta- og bankaheiminum hefur verið efld.
Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn, segir að sér komi á óvart hve lítil breyting hefur orðið á daglegu lífi fólks, sem standi virðist ríkja ró og friður. Hann er þó viðbúin því að ýmislegt kunni að breytast þegar fleiri missa vinnu sína og harðna fer
Lögreglan hefur þegar sett saman viðbragðsáætlun, fari svo að gamanið kárni.
Fréttastofa Stöðvar 2 hefur heimildir fyrir því að sérstök öryggisgæsla hafi verið við heimili fyrrverandi háttsetts bankastarfsmanns um það leyti sem bankarnir fóru í þrot, auk þess sem gæsla hefur verið efld í kringum helstu ráðamenn þjóðarinnar að undanförnu.
Vel má álykta að hert öryggisgæsla sé til marks um að talsverð undirliggjandi ólga sé í samfélaginu.