Helgarpabbar

Posted:
Sun 20. Jul 2008 14:57
by Sumarliði M5
Jæja strákar. Við þekkjum það nú flestir að vera ungir og vitlausir. Ég hef í gegnum tíðina verið í slagtogi við nokkrar ágætar konur. Ég á semsagt tvö börn með tveimur konum.
Ég var tvítugur þegar hún Diljá Mist kom í heiminn. Hún varð 20 ára í vikunni.
Var staddur í grillveislu með nokkrum æskuvinum í gær og þegar nokkrir kaldir voru búnir að renna sína leið í gegnum kerfið þá þótti það voðalega hnyttið að kalla mig "helgarpabbann". Jú jú, ég skil svo sem alveg húmorinn í því, ég tek mig nú ekkert mjög alvarlega.
Ég á tvær yndislegar dætur og ég elska þær út af lífinu. Barnsmæður mínar eru eins og gefur skilja ekki konur mínar í dag og er ég þ.a.l. "helgarpabbi".
Því langaði mig að kanna, eru margir "helgarpabbar" á kraftinum?

Posted:
Sun 20. Jul 2008 15:00
by Aron Andrew
Diljá mist er ekkert 18 ára, hún er 20 ára, bara rétt yngri en þið félagarnir


Posted:
Sun 20. Jul 2008 16:20
by Sumarliði M5
Aron Andrew wrote:Diljá mist er ekkert 18 ára, hún er 20 ára, bara rétt yngri en þið félagarnir

Hvað segirðu Aron, varstu að gúgla dóttur mína

Já smá "typo" hjá mér.

Posted:
Sun 20. Jul 2008 16:22
by Henbjon
Sumarliði M5 wrote:Aron Andrew wrote:Diljá mist er ekkert 18 ára, hún er 20 ára, bara rétt yngri en þið félagarnir

Hvað segirðu Aron, varstu að gúgla dóttur mína

Já smá "typo" hjá mér.
fyrrum verzlunarskólamær með meiru!


Posted:
Sun 20. Jul 2008 20:49
by Lindemann
Sumarliði M5 wrote:Aron Andrew wrote:Diljá mist er ekkert 18 ára, hún er 20 ára, bara rétt yngri en þið félagarnir

Hvað segirðu Aron, varstu að gúgla dóttur mína

Já smá "typo" hjá mér.
suss.,.....þú vilt ekki vita hvað Aron veit um dóttur þína


Posted:
Sun 20. Jul 2008 21:06
by ValliFudd
Furðulegur þráður já..
http://profile.myspace.com/index.cfm?fuseaction=user.viewprofile&friendID=124783029
Hún virðist samt eiga afmæli í Desember en ekki "í vikunni" samkvæmt þessu og íslendingabók


Posted:
Sun 20. Jul 2008 21:17
by srr
Ég er víst helgarpabbi núna.
Skildi í febrúar eftir 10 ára samvistir með minni fyrrverandi.
Ég á tvær stelpur, Birgittu 7 ára og Margréti 5 ára....sem búa hjá móður sinni en koma til mín aðra hvora helgi.

Posted:
Sun 20. Jul 2008 21:17
by Sumarliði M5
Hvaða orðhengilsháttur er þetta alltaf hreint í þér Valli minn


Posted:
Sun 20. Jul 2008 22:33
by Phoenix
Sumarliði M5 wrote:Hvaða orðhengilsháttur er þetta alltaf hreint í þér Valli minn

könnun á hverjir eru helgar pabbar eða könnun á hver veit mest um dóttur sumarliða?


Posted:
Sun 20. Jul 2008 22:40
by Lindemann
Phoenix wrote:Sumarliði M5 wrote:Hvaða orðhengilsháttur er þetta alltaf hreint í þér Valli minn

könnun á hverjir eru helgar pabbar eða könnun á hver veit mest um dóttur sumarliða?

og hann sjálfur er búinn að tapa


Posted:
Mon 21. Jul 2008 00:29
by Aron Andrew
Lágmark að vinna undirbúningsvinnuna vel Sumarliði


Posted:
Mon 21. Jul 2008 00:44
by Sumarliði M5
Aron Andrew wrote:Lágmark að vinna undirbúningsvinnuna vel Sumarliði

Það er auðvitað BARA fáránleg tilviljun að skulir þekkja Diljá Mist


Posted:
Mon 21. Jul 2008 02:22
by Aron Andrew
Sumarliði M5 wrote:Aron Andrew wrote:Lágmark að vinna undirbúningsvinnuna vel Sumarliði

Það er auðvitað BARA fáránleg tilviljun að skulir þekkja Diljá Mist

Hefðir nú alveg getað valið algengara nafn


Posted:
Mon 21. Jul 2008 17:46
by Vargur
Ég á 3 helgarviðhengi.
Elsti er 14 ára.