bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Nú var það tæpt https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=30803 |
Page 1 of 2 |
Author: | bimmer [ Fri 18. Jul 2008 02:07 ] |
Post subject: | Nú var það tæpt |
Var að lenda í frekar scary uppákomu áðan - hefði getað farið verulega illa. Var að keyra heim á bláa eftir smá prufurúnt með nýjan lausagangsventil. Er á gatnamótum Reykjanesbrautar og Vífilstaðavegar, ég er að koma frá Smáralind og ætla að beygja til vinstri upp hjá Vífilsstöðum. Bíð á ljósunum eftir beygjuljósi, nokkrir bílar búnir að fara í gagnstæða átt og svo enginn bíll. Kemur grænt á beygju ég búinn að líta eftir bíl en ákvað svona rétt áður en ég fer yfir akreinarnar á móti að kíkja aftur (byggingakrani og eitthvað drasl þarna fyrir núna). Ég næ rétt að negla niður til að forða því að fara fyrir Lexus jeppa sem kom á hrikalegri siglingu og fór yfir á rauðu. Það munaði svo litlu að ég hefði farið fyrir hann og hann átti ekki breik í að stoppa bílinn á þessari ferð - við erum að tala um 150-200km hraða. Allavega, fauk í mig og ég hendist á eftir honum - hann er búinn að ná bílunum sem voru á undan og ég næ honum á næstu gatnamótum og blikka hann til að reyna að fá hann til að stoppa. Hann reynir að stinga mig af en sér fljótlega að það er ekki að fara að gerast. Vippa mér framfyrir hann og reyni að hægja á honum en hann fer til hliðar og framúr. Ákvað að vera ekkert að taka neina svona sénsa og fylgi honum eftir í smá fjarlægð. Hann rúntar aðeins um bæinn en stoppar loks við Hótel Nordica þar sem ég messaði yfir honum. Þetta var gaur milli 25-30 og bíllinn var Lexus RX300 með númerið PD-8XX. Þetta er held ég það næsta sem ég hef komist því að drepast í umferðinni hér á klakanum ![]() |
Author: | fart [ Fri 18. Jul 2008 02:10 ] |
Post subject: | |
Damn!!! En hrikalega var hann óheppinn með bíl til að reyna að stinga af ![]() |
Author: | Mánisnær [ Fri 18. Jul 2008 02:15 ] |
Post subject: | |
Haha ég hugsaði það sama, ekki fræðilegur fyrir hann að stinga af. |
Author: | birkire [ Fri 18. Jul 2008 03:03 ] |
Post subject: | |
Maður ætti að fara að temja sér svona siði, borgar sig greinilega að líta tvisvar í sumum tilvikum ![]() Hafði maðurinn einhverja ástæðu fyrir fávitaskapnum ? |
Author: | SteiniDJ [ Fri 18. Jul 2008 03:08 ] |
Post subject: | |
Hvað sagði félaginn svo þegar þú fórst að tala við hann? |
Author: | bebecar [ Fri 18. Jul 2008 07:04 ] |
Post subject: | |
Var maðurinn í annarlegu ástandi eða bara svona vitlaus? |
Author: | gunnar [ Fri 18. Jul 2008 08:24 ] |
Post subject: | |
Úff, maður skilur stundum ekki hvað svona himpigimpi eru að hugsa.. Gott hjá þér samt að elta hann í staðinn fyrir að blóta honum í sand og ösku svona eins og við flestir gerum. En já, sammála hinum að gaurinn hefði ekki getað verið óheppnari með bíl til að stinga af ![]() ![]() |
Author: | íbbi_ [ Fri 18. Jul 2008 10:09 ] |
Post subject: | |
ég var einmitt að lenda í svipuðu atviki, er að keyra upp götuna frá rauðarárstígnum framhjá kjarvalsstöðum, það fyndna er að ég sá að það var grænt ljós en var alveg hmmm er ekki grænt.. og fer yfir og þá kermur ljósblár getz á jólagjöfini yfir á rauðu og bombar næstum því beint inní hliðina hjá mér, mér hefur sjaldan brugðið sona mikið |
Author: | gunnar [ Fri 18. Jul 2008 10:11 ] |
Post subject: | |
Ég er líka sífellt að lenda í því að fólk er næstum því búið að skipta inn í hliðina á mér á miklubrautinni. Kann fólk ekki á speglana hjá sér eða er það bara svona blint? Gerðist þrisvar í gær hjá mér. Óþolandi anskoti. ![]() |
Author: | Chrome [ Fri 18. Jul 2008 10:25 ] |
Post subject: | |
gunnar wrote: Ég er líka sífellt að lenda í því að fólk er næstum því búið að skipta inn í hliðina á mér á miklubrautinni. Kann fólk ekki á speglana hjá sér eða er það bara svona blint?
Gerðist þrisvar í gær hjá mér. Óþolandi anskoti. ![]() Segðu ![]() ![]() |
Author: | ömmudriver [ Fri 18. Jul 2008 12:59 ] |
Post subject: | |
Já djöfull hefði ég apeshittað ef ég hefði verið í þinum sporum Þórður ![]() En það kemur nú mjög reglulega fyrir að það sé svínað fyrir mig á trukknum og ég verð alveg hoppandi reiður en neeeiii ég á ekki séns á því að ná ökumanninum og messa yfir honum ![]() |
Author: | ///M [ Fri 18. Jul 2008 13:05 ] |
Post subject: | |
Það er nánast að maður keyri með aðra hönd á flautunni þegar ég er úti á roadsternum.. náttúrulega frekar lítill og svartur og sést illa + fólk kann almennt ekki að keyra... þetta var samt minnsta mál á 4runnernum.. reyndi enginn að keyra yfir mig á honum ![]() |
Author: | bimmer [ Fri 18. Jul 2008 14:01 ] |
Post subject: | |
Kappinn hafði litlar skýringar á þessum fávitaskap og virtist ekki vera undir áhrifum. En já hann hefði getað verið heppnari með bíl til að stinga af ![]() |
Author: | Örvar A [ Fri 18. Jul 2008 16:47 ] |
Post subject: | |
Ótrúlegt, bara heppni að ekki fór verr. Gott að þú náðir að tala við hann án þess að hann keyrði í hliðina á þér eða eitthvað verra. Auðvita ekki fræðilegur séns að stinga þennan bíl af ![]() |
Author: | Gunnar H [ Fri 18. Jul 2008 17:39 ] |
Post subject: | |
En hvernig virkaði lausagangsventillinn ![]() |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |