bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Pedobear þráður farinn?
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=30717
Page 1 of 1

Author:  Henbjon [ Mon 14. Jul 2008 11:52 ]
Post subject:  Pedobear þráður farinn?

Lét stjórn bmwkraftsins undan femínistunum? :o Hvar getum við talað um pedobear þá? :cry:

Author:  fart [ Mon 14. Jul 2008 11:54 ]
Post subject:  Re: Pedobear þráður farinn?

BmwNerd wrote:
Lét stjórn bmwkraftsins undan femínistunum? :o Hvar getum við talað um pedobear þá? :cry:


Hvernig væri bara a sleppa því?

Sumt af þessu finnst mér lúmskt fyndið, en þið hljótið að átta ykkur á því að MÖRGUM finnst þetta ömurlega ósmekklegur húmor, hugsanlega vegna þess að pedófílíumál hafa komið upp í þeirra nánustu fjölskyldum, jafnvel gagnvart börnum þeirra.

Author:  arnibjorn [ Mon 14. Jul 2008 11:55 ]
Post subject: 

Bmwkraftur hefur ekki áhuga á að dragast inní einhverja barnaníðings umræðu.

Þetta er bílaspjall og ef menn vilja ræða pedobear þá skulu þeir gera það annarsstaðar en hér :)

Author:  Jónatan [ Mon 14. Jul 2008 13:08 ]
Post subject: 

Vissuð þið að margir barnaníðingar nota pedobear sem avatar eða stofna umræður um pedobear til að komast í samband við aðra barnaníðinga til að skiptast á efni og upplýsingum?

Vissuð þið að í mörgum löndum eru hópar lögreglumanna sem hafa meðal annars það verkefni að fylgjast með spjallborðum til að finna barnaníðinga? Eitt af því sem leitað er að eru notendur sem sýna pedobear mjög mikinn áhuga og stofna jafnvel umræður um hann aftur og aftur, oft finnast þeir út frá ábendingum almennings. Þannig hafa margir barnaníðingar verið gripnir.

Að lokum, það er ekkert fyndið við barnamisnotkun né neitt efni sem vísar í það, sama hvort það er photoshoppað eða ekki. Þannig efni og húmor fyrir honum gefur til kynna mjög brenglaða siðferðisvitund svo ekki sé vægar til orða tekið.

Author:  Einarsss [ Mon 14. Jul 2008 13:13 ]
Post subject: 

gott mál ... ógeðslegur þráður

Author:  arnibjorn [ Mon 14. Jul 2008 13:16 ]
Post subject: 

Það er greinilegt að það eru MJÖG skiptar skoðanir á þessu. Sumum finnst þetta fyndið öðrum greinilega ekki.

Það sem að skiptir máli er að þráðurinn var tekinn út og ef menn hafa áhuga á að röfla yfir þessu þá bið ég þá um að gera það á er.is eða barnalandi og ekki vera að skrá sig á kraftinn til að ræða þetta mál.

Þetta er bílaspjall og reynum að halda því þannig.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/