bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Virðisaukanúmer og gjöld tengd því ?
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=30630
Page 1 of 1

Author:  krullih [ Wed 09. Jul 2008 21:11 ]
Post subject:  Virðisaukanúmer og gjöld tengd því ?

Sælir kraftsmenn / konur,

Er að íhuga að byrja sem verktaki í vinnunni og sækja um virðisaukanúmer.

Hef farið á www.rsk.is og fleiri síður en finn hvergi almennilega útlistum á þeim gjöldum sem leggjast ofaná tekjur!

Getur einhver útlistað þetta fyrir mig eða bent á góðar upplýsingar?

mkv,
Jonni

Author:  JOGA [ Wed 09. Jul 2008 21:24 ]
Post subject: 

Sæll,

Passaðu bara að þú látir ekki snuða þig og að þetta sé ekki bara venjulegt starf þar sem þú ættir í raun að vera launamaður. Það er margt sem þú þarft að greiða og margir sem gera þetta til að útvega sér ódýrara vinnuafl.
En ef allt er í standi er þetta í lagi ef þú ert sáttur við þá auka "vinnu" sem þetta krefst.

Upplýsingar hér:

http://www.asi.is/desktopdefault.aspx/tabid-123/
Ágætis leiðbeiningar á ensku
Ágætis umræða á Málefniin.com

Vonandi að þetta hjálpi eitthvað :wink:

Author:  98.OKT [ Wed 09. Jul 2008 21:40 ]
Post subject: 

Fyrir utan þá miklu vinnu sem þarf til að halda utan um svona eða kostnaðinn við að láta endurskoðanda sjá um pappírsmálin, að þá má taka rúmlega helminginn af tímakaupinu af til að sjá hver raunveruleg laun þín eru. Þannig að ég mundi segja að 5000.kr á tímann sem verktaki sé lágmarkið til að það borgi sig.......

Author:  krullih [ Wed 09. Jul 2008 21:44 ]
Post subject: 

5000 kr yrðu þá 2500 ca útborguð ?

Author:  @li e30 [ Thu 10. Jul 2008 00:33 ]
Post subject: 

Ef þetta er full vinna sem þú ert að sækjast eftir þá þarftu virðisaukanúmer en ef þetta er aukavinna er mjög líklegt að þú verður undir lágmörkum í árstekjum sem verktaki, það er nýlega búið að hækka þessi mörk að ég held til að skatturinn sé ekki að útdeila virðisaukanúmerum hægri vinstri. Ég mæli eindregið með að þú reynir að starfa sem launþegi ef þú getur því þetta er svolítil vinna að halda utan um bókhaldið sem fylgir þessu. Þú þarft að greiða allann launaskatt sjálfur, skila virðisaukaskatt sem þú getur að sjálfsögðu nýtt þér til kaupa á atvinnutækjum, þú þarft að borga sjálfur í lífeyrissjóð og önnur tekjutengt gjöld. Nú kann ég ekki full skil á þessu en var samt með virðisaukanúmer vegna aukavinnu þar sem árstekjur fóru yfir gömlu mörkin. Að mínu mati er þetta bara vesen nema að þú sért með bókhald og skattaskýrslugerð á hreinu og telur þig geta nýtt þér þetta á annann hátt, svo sem nýting á virðisaukaskatti.

Author:  gstuning [ Thu 10. Jul 2008 00:35 ]
Post subject: 

Verktaka dæmið er ekki að gera sig þegar þú ert að vinna í vinnu þar sem að þú ættir að vera launamaður,

engir uppsafnaðir frídagar, veikindadagar og svo framvegis.
Þú þarft að borga þér orlof, borga öll gjöld(skatt, lífeyrir, vsk) og svo framvegis. Einnig enginn réttur gagnvart fyrirtækinu, þar sem að þú ert að vinna hjá þér og því átt bara rétt gagnvart sjálfum þér.


Þetta er sniðugt ef þú ferð að vinna sem VERKTAKI hjá mörgum fyrirtækjum eins og venjulegt company myndi gera.

Þetta er allaveganna mitt ráð

Author:  BjarkiHS [ Sat 12. Jul 2008 12:39 ]
Post subject: 

Og ekki gleyma að TRYGGING launþega gildir ekki um verktaka.
Þannig að þú þyrftir að slysa/líftryggja þig sjálfur.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/