bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

95, 98 og 100oct
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=30606
Page 1 of 4

Author:  bErio [ Tue 08. Jul 2008 14:02 ]
Post subject:  95, 98 og 100oct

Ég veit að það má eða er mælt með að nota 98 á turbovélar sem búið er að leika við og fleira.

En ég var með einhverja spurninguna í kollinum um hvort að vernjuleg vél gæti mögulega skemmst ef notað er 100 oct eða ofar

:oops:

Author:  gstuning [ Tue 08. Jul 2008 14:09 ]
Post subject: 

það væri tilgangslaust.

því að oktan talann inniheldur ekki afl.

Glænýjir bílar eru oft tjúnaðir original á 100oktan og svo er knock control sem endurtjúnar þá eftir hvaða bensín er svo verið að nota.

oktane tala sem á að nota fer eftir uppsetningunni á vélinni. Oft á tíðum verður uppsetningunni ýtt út fyrir hönnuð mörk og þá verður að fara í annað bensín.

Author:  íbbi_ [ Tue 08. Jul 2008 15:59 ]
Post subject: 

það er virkilega útbreiddur miskilningur hjá fólki að hærri octantala þýði einhvernveginn meira power, því hærra því betra.. NOT

að setja V/power/98/98+ á normal bíl er eins og ætla sér að hlaupa hraðar með því að fara í of stóra skó..

Author:  Einsii [ Tue 08. Jul 2008 16:03 ]
Post subject: 

En veit einhver afhverju Alpina menn vilja að ég noti 98 okt á Cabrioinn. (Miði við bensínmælinn sem stendur á 98blabla)
Sjálfur tek ég reindar alltaf á hann V-Power því ég er með betri kjör hjá Shell.

Author:  íbbi_ [ Tue 08. Jul 2008 16:28 ]
Post subject: 

alpina mótorarnir eru nánast alltaf með þryktum mahle stimplum og þjöppu í hærri kantinum, það er ein ástæðan,

Author:  bebecar [ Tue 08. Jul 2008 16:46 ]
Post subject: 

íbbi_ wrote:
það er virkilega útbreiddur miskilningur hjá fólki að hærri octantala þýði einhvernveginn meira power, því hærra því betra.. NOT

að setja V/power/98/98+ á normal bíl er eins og ætla sér að hlaupa hraðar með því að fara í of stóra skó..

Þetta er nú ekki alveg rétt: "It allows the engine to run with the ignition timing as far advanced as possible. The computer will continue to advance the timing until the knock sensor detects pinging. At that point the computer retards the ignition timing just enough for the pinging to stop.

A knock sensor assures that you're getting as much power and fuel economy as is possible from your engine...

The knock sensor responds to spark knock caused by over advanced timing. A knock is a sudden increase in cylinder pressure caused by preignition of the air fuel mixture as the flame front moves out from the spark plug ignition point. pressure waves in the chamber crash into the piston or cylinder walls resulting in a sound known as a knock or ping. this is caused by using a fuel with a low octane rating, overheating, or over advanced timing. sometimes it can be caused by hot carbon deposits on the piston or cylinder head that raise compression."

Þetta þýðir í raun að fyrir vélar með knock sensor þá getur verið hagur í því að kaupa bensín með hærri oktan tölu.

Með V-Powerið þá er eitt sem vill oft gleymast og það eru hreinsiefnin í eldsneytinu sem er sennilega eitt það mikilvægasta fyrir nútíma vélar og ein helsta ástæðan fyrir verðmun á þjónustu bensínstöðvum og ódýru bensínstöðvunum.

Normal bílar í dag hafa allir knock sensora og því hefur það áhrif að setja hærri oktantölu á bílinn leyfir því að kveikjunni sé flýtt. Þetta þýðir hinsvegar í raun bara að þú færð hámarksnýtingu eftir því hvaða eldsneyti þú notar. Ef bíll hefði ekki knock sensor þá myndi há oktan tala ekki nýtast ef bíllinn væri stilltur fyrir 92 okt.

Author:  gstuning [ Tue 08. Jul 2008 17:29 ]
Post subject: 

það er ekki nóg að vera með knock sensor,

heldur þarf að vera closed loop knock control, það er ALLT annað apparat.

Nýjar tölvur flýta líka ekki ALLTAF að pingi/knock heldur þær reyna að viðhalda ákveðni flýtingu sem er í kveikjutöflunni þeirra. Þær fara ekki lengra, nema þegar Mr.X kemur og segir þeim að þær megi fara aðeins lengra hér og þar og svona, þaðan koma hestöflin t.d

Það er enginn munur afl lega séð á venjulegu dælubensíni.

Eini sénsin á að fá meira power er þegar tölvan getur tjúnað sig sjálf.
Og það er EKKI í öllum tölvum með knock skynjara svo að sú saga fari nú ekki útum allt

Author:  Alpina [ Tue 08. Jul 2008 18:28 ]
Post subject: 

oct tala segir til um ... forsprengingu og ekkert annað..

því hærri oct tala því minni hætta á forsprengingu í normal uppsetn,,

T.D. turbo osfrv

Author:  bebecar [ Tue 08. Jul 2008 19:02 ]
Post subject: 

Ég ætla ekki að fara að rengja GStuning :lol:

Ein spurning samt, hvað gerist t.d. ef að maður á að nota 95 okt á bílinn sinn og maður fær ekkert nema 92 okt?

Author:  bebecar [ Tue 08. Jul 2008 19:03 ]
Post subject: 

Alpina wrote:
oct tala segir til um ... forsprengingu og ekkert annað..

því hærri oct tala því minni hætta á forsprengingu í normal uppsetn,,

T.D. turbo osfrv

Sem er það sem ég var að pósta :)

Author:  Lindemann [ Tue 08. Jul 2008 19:07 ]
Post subject: 

bebecar wrote:
Ég ætla ekki að fara að rengja GStuning :lol:

Ein spurning samt, hvað gerist t.d. ef að maður á að nota 95 okt á bílinn sinn og maður fær ekkert nema 92 okt?

það er það sem knock sensorinn snýst um, að seinka kveikjunni til að hindra forkveikju. Það er ekkert verið að eltast við að flýta kveikjunni eins mikið og bensínið leyfir, heldur er vélin tjúnuð með eitthvað ákveðið í huga og svo er kveikjunni bara seinkað eftir því bensíni sem er notað.
Semsagt ef vélin er tjúnuð fyrir 95okt þá getur maður ekki mögulega grætt neitt á hærri oktantölu.

Author:  gstuning [ Tue 08. Jul 2008 19:09 ]
Post subject: 

bebecar wrote:
Ég ætla ekki að fara að rengja GStuning :lol:

Ein spurning samt, hvað gerist t.d. ef að maður á að nota 95 okt á bílinn sinn og maður fær ekkert nema 92 okt?

að öllum líkindum þá verður ekkert vesen nema þegar vélin er undir mikilli gjöf, annars er bensín í dag aðeins öðruvísi enn í gamla daga hvort eð er.
það eru ýmis aukaefni í bensíni og gefur betri forsprengingar vörn þar af leiðandi.

hvaða bíll er hannaður fyrir 92okt?
Sláttuvélin sem ég á dugar fyrir 72oktan rusl :)

Author:  bebecar [ Tue 08. Jul 2008 19:10 ]
Post subject: 

Lindemann wrote:
bebecar wrote:
Ég ætla ekki að fara að rengja GStuning :lol:

Ein spurning samt, hvað gerist t.d. ef að maður á að nota 95 okt á bílinn sinn og maður fær ekkert nema 92 okt?

það er það sem knock sensorinn snýst um, að seinka kveikjunni til að hindra forkveikju. Það er ekkert verið að eltast við að flýta kveikjunni eins mikið og bensínið leyfir, heldur er vélin tjúnuð með eitthvað ákveðið í huga og svo er kveikjunni bara seinkað eftir því bensíni sem er notað.
Semsagt ef vélin er tjúnuð fyrir 95okt þá getur maður ekki mögulega grætt neitt á hærri oktantölu.

En hann ef hann flýtir kveikjunni þá ætti það að vera bót.

Author:  gstuning [ Tue 08. Jul 2008 19:18 ]

þarna endar skilningur almenns bílaáhugamans á virkni véla :)

það þarf ekki að vera að aukin flýting búi til power.

Kveikjutími ræðst af samblöndu af loftmagni(álag/load) við þjöppun blöndu sem og snúning vélarinnar,

minna load = meiri flýting
meira load = minni flýting
hærri snúningar = meiri flýting
flýting er lægst við hámarks tog og fullt load.

tilgangur með kveikjutíma er að mynda hámarks þrýsting frá brunanum á mixtúrunni við cirka 15-20gráður eftir TDC (top dead center)

minna load = minni brunahraði og því þarf að kveikja fyrr á mixtúrunni
meiri snúningar = minni tími til að brenna , aftur þarf að flýta kveikjunni.

Author:  bebecar [ Tue 08. Jul 2008 19:53 ]
Post subject: 

Þarna endar áhuginn :wink: að segja að skilningur einhvers takmarkist við þetta er ansi grobbið af þér að segja.

Ég var reyndar búin að læra þetta allt þegar V-Powerið var sett á markað. Það er bara svo langt síðan að ég er eiginlega búin að gleyma þessu öllu.

Mig rámar í myndband sem útskýrði þetta allt saman - ég man þó ekki betur en verkfræðingarnir þar hafi viljað meina að hærri oktan tala ykji afköst vélarinnar, svo lengi sem hún hefði knock sensora.

Fínt að ræða þetta samt á þessum nótum. Ég er algjör græningi í svona málum enda hef ég takmarkaðan áhuga á þeim og því er bara gott ef einhver getur útskýrt þetta á mannamáli.

En þetta vekur eiginlega bara fleiri spurningar hjá mér...

Sem dæmi:

BMW 1150GS Adventure hjólið getur notað 87 oktana bensín en skilar fleiri hestöflum á 95 okt. Maður myndi halda að þetta hefði eitthvað með það að gera að há-oktan eldsneyti hefur hærri megajoules en venjulegt bensín, þ.e. orku innihald bensíns er hærra eftir því sem það hefur hærri oktantölu, alveg eins og að dísil hefur hærra orku innihald en bensín (þetta á ekki við um allt eldsneyti, en allavega um bensín).

t.d hefur 91 okt (ron) 34,7 megajoules, en 95 hefur 39,4. Dísil hefur svo eitthvað þar á milli þessara tveggja. Þetta eru reyndar breytilegar tölur en sýna samt bilið þarna á milli.

Maður hefði því ályktað, að ef það er knock sensor, sem leyfir að kveikjunni sé flýtt þá sé verið að nýta þetta aukna orku innihald þar sem komið er í veg fyrir að það kvikni í blöndunni áður en neistinn kemur.

Hærri oktan tala, hærri þjappa (ef það er hægt að flýta kveikjunni) = meira afl eða í það minnsta betri nýting?

Bara pæling hjá mér, ég man þetta ekki en mig rámar svona í eitt og annað í þessu. Ég kunni þetta þó ágætlega á sínum tíma enda hef ég ekki eitt litlum tíma með efnafræðingum og verkfræðingum sem útskýra þessi fyrirbæri, þó langt sé síðan.

Page 1 of 4 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/