bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Rallycross æfing 12 júlí.
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=30561
Page 1 of 2

Author:  Gunnar H [ Sat 05. Jul 2008 10:08 ]
Post subject:  Rallycross æfing 12 júlí.

Image

Það verður Rallycross æfing á brautinni við Krýsuvíkurveg Laugardaginn 12 júlí. Æfingin byrjar kl 12:00 og líkur kl 16:00. æfingargjald verður 5000kr. Við munum ræða fyrirhugað fyrirkomulag á æfingum og keppnum í sumar. Allir Rallycross áhugamenn velkomnir. Æfingin er í umsjá Rallycrossdeildar AÍH.

ATH. Einungis slikkar eða sumardekk leyfileg, Vetrar og rallydekk ekki leyfð.

Brautin

Author:  GunniT [ Sat 05. Jul 2008 16:29 ]
Post subject: 

Verða leikdagar eins og hér áður????

Author:  SteiniDJ [ Sat 05. Jul 2008 17:14 ]
Post subject: 

5000kr :shock:

Author:  maxel [ Sat 05. Jul 2008 17:26 ]
Post subject: 

Þetta verður fjölmennt

Author:  finnbogi [ Sat 05. Jul 2008 17:34 ]
Post subject: 

er rallycross ekki búið að vera dautt sport á íslandi ára raðir :hmm:

Author:  KFC [ Sat 05. Jul 2008 17:51 ]
Post subject: 

Djöfull á eftir að vera góð mæting :roll:

Author:  ///M [ Sat 05. Jul 2008 18:02 ]
Post subject: 

finnbogi wrote:
er rallycross ekki búið að vera dautt sport á íslandi ára raðir :hmm:


Og nú á að endurvekja það aftur.

Ég væri alveg til í að eiga bíl í svona sport

Author:  maxel [ Sat 05. Jul 2008 18:18 ]
Post subject: 

Já , vá ég væri líka alveg til í að eiga bíl í rallið....
En þetta er dýrt og fáir nenna að standa í þessu.
Sjáum bara hversu mikil mæting verður.

Ps. og ekki hjálpar verðið.

Author:  Alpina [ Sat 05. Jul 2008 18:52 ]
Post subject: 

TÖFF.......

gaman að sjá þetta

Author:  HK RACING [ Sat 05. Jul 2008 22:51 ]
Post subject: 

Við erum ekki að búast við neinni mætingu að ráði,en það verður einhvernveginn að byrja þetta og ef það verður bara með einum bíl þá verður það að hafa sig,þetta er fljótt að vinda upp á sig þegar þetta er komið af stað,hvað varðar verðið þá er þetta keyrt á mölinni líka og það er kostnaður við að lagfæra hana.Allt sem keyrt er á malbikinu eingöngu er ódýrara.

Hilmar B Þ

Author:  BjarkiHS [ Sat 05. Jul 2008 23:19 ]
Post subject: 

Mér er andskotans sama um mölina.... 5000 kr ísl er bara Rán .

Author:  HK RACING [ Sat 05. Jul 2008 23:23 ]
Post subject: 

BjarkiHS wrote:
Mér er andskotans sama um mölina.... 5000 kr ísl er bara Rán .
Það er þitt mat,ég borga það glaður......

Author:  GunniT [ Sun 06. Jul 2008 00:47 ]
Post subject: 

HK RACING wrote:
Við erum ekki að búast við neinni mætingu að ráði,en það verður einhvernveginn að byrja þetta og ef það verður bara með einum bíl þá verður það að hafa sig,þetta er fljótt að vinda upp á sig þegar þetta er komið af stað,hvað varðar verðið þá er þetta keyrt á mölinni líka og það er kostnaður við að lagfæra hana.Allt sem keyrt er á malbikinu eingöngu er ódýrara.

Hilmar B Þ



Hvernig væri þá að sleppa því að keyra á mölini svo það þurfi ekki alltaf að sópa brautina fyrir já t.d. gokartið eða það sem við hérna erum búnir að vera að nota brautina í ??? Og spara kostnað???

Author:  saemi [ Sun 06. Jul 2008 08:54 ]
Post subject: 

Eða bara keyra líka á mölinni og rukka 5000 kall fyrir :D

Hvaða sýra er í gangi, má ekki rukka skitinn 5000 kall fyrir að leyfa fólki að spæna möl út um allt? Ég sé ekki mikið að því, það er ekki eins og það sé verið að skikka fólk til að mæta og borga þetta.

Það er ekki eins og það þurfi að hafa opið á malbikinu fyrir drift hvert einasta sinn. Ekki hefur mætingin verið þannig að það sé verið að taka tíma frá neinum sem kemst ekki að til að drifta með þessu.

Ekker að því að auka fjölbreytnina í þessu.

Author:  HK RACING [ Sun 06. Jul 2008 09:30 ]
Post subject: 

GunniT wrote:
HK RACING wrote:
Við erum ekki að búast við neinni mætingu að ráði,en það verður einhvernveginn að byrja þetta og ef það verður bara með einum bíl þá verður það að hafa sig,þetta er fljótt að vinda upp á sig þegar þetta er komið af stað,hvað varðar verðið þá er þetta keyrt á mölinni líka og það er kostnaður við að lagfæra hana.Allt sem keyrt er á malbikinu eingöngu er ódýrara.

Hilmar B Þ



Hvernig væri þá að sleppa því að keyra á mölini svo það þurfi ekki alltaf að sópa brautina fyrir já t.d. gokartið eða það sem við hérna erum búnir að vera að nota brautina í ??? Og spara kostnað???
Útaf því að það er ekki rallycross að keyra gokart braut,ef þú hefur prófað að keyra rallycrossbrautina á rallycrossbíl þá er verður þessi gokart braut bara prump við hliðina á henni,þetta er ekkert flókið,við sem viljum keyra rallýcrossbrautina gerum það og borgum fyrir það,þeir sem vilja keyra malbikið gera það og borga bara fyrir það.

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/