bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Grill https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=30540 |
Page 1 of 2 |
Author: | bjornvil [ Fri 04. Jul 2008 14:58 ] |
Post subject: | Grill |
Jæja, nú á ég afmæli á næstu dögum, og ég fæ að kaupa mér gasgrill í afmælisgjöf ![]() Nú er ég ekki mjög fróður um grill, þannig að ég spyr ykkur. Hvar er best að fara, hvernig grillum mælið þið með og afhverju? Budget er 40-50 þúsund kall. Takk fyrir ![]() |
Author: | Jss [ Fri 04. Jul 2008 15:18 ] |
Post subject: | Re: Grill |
bjornvil wrote: Jæja, nú á ég afmæli á næstu dögum, og ég fæ að kaupa mér gasgrill í afmælisgjöf
![]() Nú er ég ekki mjög fróður um grill, þannig að ég spyr ykkur. Hvar er best að fara, hvernig grillum mælið þið með og afhverju? Budget er 40-50 þúsund kall. Takk fyrir ![]() Foreldrar mínir skoðuðu þetta mikið um daginn og enduðu á að kaupa sér svona: http://www.byko.is/vorur/?ew_7_cat_id=11&ew_7_p_id=35177&product_category_id=569 ![]() Og eru mjög ánægð með það, búið að grilla mjög oft á þessu síðan það var keypt. ![]() Að vísu aðeins yfir budgetinu, 59.900 kr. |
Author: | Þórir [ Fri 04. Jul 2008 15:21 ] |
Post subject: | |
Sælir, JSS, ég sá þetta á tilboði í nýja Byko bæklingnum, minnir að verðið sé núna 39 þús. kr. Þi |
Author: | UnnarÓ [ Fri 04. Jul 2008 15:37 ] |
Post subject: | |
www.grillbudin.is er með mjög góð gasgrill frá Landmann og á góðu verði í þokkabót. |
Author: | _Halli_ [ Fri 04. Jul 2008 15:39 ] |
Post subject: | |
GAS: ![]() KOL: ![]() http://www.weber.is SOLID GRILL!! Þetta er BMW grillanna... |
Author: | Aron Andrew [ Fri 04. Jul 2008 16:11 ] |
Post subject: | |
Mæli líka með Weber, bara góð grill! |
Author: | Erica [ Fri 04. Jul 2008 16:15 ] |
Post subject: | |
er ekki hægt að fá kúlugrill með gasi? hef bara séð með kolum ![]() séríúsly vantar grill til að grilla í góða veðrinu |
Author: | Kristjan [ Fri 04. Jul 2008 16:18 ] |
Post subject: | |
Fáðu þér bara kúlugrill kona, miklu betra bragð sem kemur með kolunum, mundu bara að hafa grillið í skjóli og nóg af kolum, ef þér finnst vera komið nóg settu þá smá slurk í viðbót. |
Author: | Aron Andrew [ Fri 04. Jul 2008 16:20 ] |
Post subject: | |
Kristjan wrote: Fáðu þér bara kúlugrill kona, miklu betra bragð sem kemur með kolunum, mundu bara að hafa grillið í skjóli og nóg af kolum, ef þér finnst vera komið nóg settu þá smá slurk í viðbót.
Kolagrillið sem Halli póstaði er td. algjör snilld varðandi svona. Hólkurinn undir er fyrir kolin og svo þegar þú ert búinn að grilla þá lokaru bara hólkinum og kæfir eldinn, og svo geturu notað kolin aftur nokkrum sinnum ![]() |
Author: | totihs [ Fri 04. Jul 2008 18:03 ] |
Post subject: | |
Ekkert sem jafnast á við Weber, þetta er heima, uppi í bústað og hjá öllum í familíunni. Best bara. |
Author: | bebecar [ Fri 04. Jul 2008 18:16 ] |
Post subject: | |
Kemur ekkert í stað Weber og þá að sjálfsögðu klassíska kúlugrillið. ![]() Ég á 4 Weber grill (öll kúlu, tvö stór og tvö lferða) og myndi aldrei kaupa neitt annað og búin að grilla á þessu síðan 1997. Það er ekkert grill sem fer jafn vel með steikurnar og kúlu- kolagrillið. Galdurinn liggur í því að það er nægt flæði súrefnis til að næra kolin, en of lítið til að næra loga. Þessvegna kviknar aldrei í ef þú ert með lokið á og allt vesen með grillbakka, læri í álpappír og slíkt er úr sögunni. |
Author: | Alpina [ Fri 04. Jul 2008 18:28 ] |
Post subject: | |
ÉG vil ekkert weber grill... heldur WEBER ................. blöndunga ![]() |
Author: | Steini B [ Fri 04. Jul 2008 18:46 ] |
Post subject: | |
Ég hef ekki góða reynslu á kúlugrilli... ![]() ![]() |
Author: | Bjarkih [ Fri 04. Jul 2008 18:47 ] |
Post subject: | |
Steini B wrote: Ég hef ekki góða reynslu á kúlugrilli...
![]() ![]() Það er nú held ég hægt að skrifa það á annað en grillið sjálft... ![]() ![]() |
Author: | Steini B [ Fri 04. Jul 2008 18:50 ] |
Post subject: | |
Bjarkih wrote: Steini B wrote: Ég hef ekki góða reynslu á kúlugrilli... ![]() ![]() Það er nú held ég hægt að skrifa það á annað en grillið sjálft... ![]() ![]() Reyndar... ![]() Ég ætlaði þó að vera sniðugur núna í ár og kaupa mér ofnhanska, en það voru bara ekki til neinir í bónus á Akureyri... [OT off] það er greinilegt að maður verður að kaupa sér Weber grill þegar maður fer í þann pakkann... |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |