bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Hjólafólk
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=30412
Page 1 of 2

Author:  Jónas [ Sat 28. Jun 2008 18:28 ]
Post subject:  Hjólafólk

Er að skoða galla..

Leður VS Goretex!

Maður heyrir ENDALAUST blablabla Goretex virkar ekki í krassi etc..

Goretexið er náttúrulega vatnshelt, hvernig er leður í rigningu?

Maður er náttúrulega ekkert að hjóla í regni.. :P

Hvað segið þið?

Author:  Doror [ Sat 28. Jun 2008 21:14 ]
Post subject: 

Ef þú hjólar útá land og ætlar heim um kvöldið sleppiru því þá ef það er rigning? :)
Ég held að leður þoli rigningu ágætlega ef þú berð á það.

Ég sjálfur átti ódýran Gore Tex galla sem reynist mér mjög vel, alveg vatnsheldur og með góður hlífum á hnjám, baki, öxlum og olnbogum. Datt í honum og sakaði ekki en var reyndar ekki á mikilli ferð.

Author:  IngóJP [ Sat 28. Jun 2008 21:18 ]
Post subject: 

Goretex ftw .... Þetta er sterkt

Hentar mikið betur fyrir aðstæður á þessu landi.

Ert alveg góður í svona galla ef hann er með viðeigandi hlífum.

Author:  Jónas [ Sat 28. Jun 2008 22:19 ]
Post subject: 

Held að ég sé einmitt hreinlega dottinn á goretexið þótt leðrið sé töluvert svalara ;)

Author:  IngóJP [ Sat 28. Jun 2008 22:33 ]
Post subject: 

Já leðrið lookar helvíti flott því er ekki hægt að neita..

Er að safna fyrir racer og er búinn að vera að skoða þetta helvíti mikið

fann flotta goretex galla í Hjólabúðinni á gatnamótunum laugavegur nóatúns og þar við ská á móti ruby tuesday

Author:  Jónas [ Sat 28. Jun 2008 22:39 ]
Post subject: 

IngóJP wrote:
Já leðrið lookar helvíti flott því er ekki hægt að neita..

Er að safna fyrir racer og er búinn að vera að skoða þetta helvíti mikið

fann flotta goretex galla í Hjólabúðinni á gatnamótunum laugavegur nóatúns og þar við ská á móti ruby tuesday


whútt,,

Hvaða búð er það?

Hef aldrei rekist á hana, mannstu nafnið á henni?

Author:  IngóJP [ Sat 28. Jun 2008 22:45 ]
Post subject: 

www.motors.is

kíktu bara á þau. Þau munu aðstoða þig að fullu var bara hissa þegar ég kom þarna inn fékk þvílíka þjónunstu og góð verð líka

Author:  Jónas [ Sat 28. Jun 2008 23:03 ]
Post subject: 

Hvað kallaru góð verð :)

Author:  BjarkiHS [ Sun 29. Jun 2008 13:25 ]
Post subject: 

Ég heyrði að goretexið virkar ekki við krass yfir 100mílum

Author:  Jónas [ Sun 29. Jun 2008 13:35 ]
Post subject: 

BjarkiHS wrote:
Ég heyrði að goretexið virkar ekki við krass yfir 100mílum


Enda er ekki planið að fara oft í 160+ km/h

Author:  Jónas Helgi [ Sun 29. Jun 2008 13:57 ]
Post subject: 

Ekki sniðugt að vera í goretex á racer. Ef þú dettur og slædar þá étur malbikið af þér húðina.
Kunningi minn er krossarakappi og hann keypti sér racer síðasta sumar og hann endaði með að selja hjólið, henda gallanum og hálfa rasskinn :? Vafasamt.

Author:  ValliFudd [ Sun 29. Jun 2008 14:22 ]
Post subject: 

Öryggisreglur í kvartmílu segja mér nóg..

ef þú ferð yfir 100 km hraða máttu ekki vera í goretex. Leður er skylda ef þú ferð yfir 100 km... Semsagt goretex dugar hjá okkur eingöngu fyrir óbreyttar skellinöðrur, sem já, taka kvartmíluna á 50+ sek :lol:

Author:  HelgiPalli [ Sun 29. Jun 2008 14:50 ]
Post subject: 

Mér sýndist nú einn vera í GoreTex á Hayabusu þarna um daginn, á æfingunni, og hann fór nú eitthvað yfir 100km/h :?

Rauð busa með fullt af krómi

Author:  Bjarkih [ Sun 29. Jun 2008 14:56 ]
Post subject: 

Þeir eru nú helvíti margir á hraðbrautum evrópu í goreTex og ég efast um að þeir fari hægt yfir.

Author:  bebecar [ Sun 29. Jun 2008 15:08 ]
Post subject: 

Þeir hjá BMW vilja allavega meina að tau sé ekki síðra en leður og það er búið að þrautprófa þessa galla hjá þeim, ég var reyndar að leita að þessu á netinu en fann ekki en einhversstaðar á ég bækling sem sýnir að tauið þoli lengri rennslu og á meiri hraða en leðrið. Ég hef aldrei heyrt talað um að leður sé öruggara í þeirri kreðsu. Snýst örugglega í flestum tilfellum um lúkk annarsvegar og hinsvegar þá staðreynd að leðurgallarnir eru oftast mun þrengri og gefa minni loftmótsstöðu o.s.frv.

Það þarf auðvitað ekki að vera algilt. Held að aðal atriðið sé að kaupa vandaðann galla.

Á Íslandi myndi ég samt aldrei velja mér annað en Gore Tex ef maður á bara einn galla.

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/