bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Skráning hafin í fyrstu kvartmílu sumarsins! :)
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=30346
Page 1 of 1

Author:  ValliFudd [ Wed 25. Jun 2008 12:08 ]
Post subject:  Skráning hafin í fyrstu kvartmílu sumarsins! :)

Fyrsta keppni sumarsins (2. keppni samkvæmt dagatali)

Laugardaginn 28. Júní!!!

Skráning er hafin!
Nafn, Kt., Tæki, flokk og GSM á vallifudd@msn.com , einkapósti á kvartmíluspjallinu eða 899-7110 (milli 20-22 á kvöldin)!
Helst email eða einkapóst.

Dagskrá:
9:00 Pittur opnar
10:00 Pittur lokar
10:15 Æfingar hefjast fyrir bíla sem búið er að skoða
10:55 Æfingum lokið
11:00 Tímatökur hefjast
12:00 Tímatökum lokið (3 ferðir max á mann)

13:00 Keppni hefst!

Enginn fer niður í pitt fyrr en búið er að láta merkja við sig og borga keppnisgjöld. Sem verður gert í klúbbhúsinu héðan af.

ATH! Ef allt gengur eftir verður keyrt nýja leið upp að braut! 8)
Hef ekki keyrt hana sjálfur en hún liggur úr nýja iðnaðarhverfinu sem er örlítið áleiðis upp að Kleifarvatni. Munum henda upp skiltum til að merkja það.


SKRÁNINGU LÝKUR Á FÖSTUDAGSÆFINGU! (sem verður eingöngu fyrir skráða keppendur í þetta skiptið) SÍÐUSTU MAIL TEKIN GILD 23:59 Á FÖSTUDAGSKVÖLD.

Author:  Einarsss [ Wed 25. Jun 2008 12:12 ]
Post subject: 

hvað kostar að keppa?

Author:  ValliFudd [ Wed 25. Jun 2008 12:17 ]
Post subject: 

einarsss wrote:
hvað kostar að keppa?

Get svarað því í kvöld..

Author:  arnibjorn [ Wed 25. Jun 2008 13:08 ]
Post subject: 

Maður á að skrá sig í flokk.... hvaða flokkar eru eiginlega?

Author:  ValliFudd [ Wed 25. Jun 2008 13:16 ]
Post subject: 

Sekúnduflokkar frá 10.90 - 15.90..
RS er vélastærð að 4,0 eða 2,3 með túrbó..
GT er stærra

Hugsa að fyrir þig Árni væri það einhver af sekúnduflokkunum..

http://www.kvartmila.is/wiki/index.php/Flokkar

Author:  ValliFudd [ Thu 26. Jun 2008 02:30 ]
Post subject: 

2500 kjell keppnisgjald.. Sama og í fyrra.. engin verðbólga á því 8)

Og koma svo drengir.. Á ekki að sýna að E30 geti keyrt en ekki bara setið í skúrum eða stopp í Öxnárdal? :lol:

Author:  arnibjorn [ Thu 26. Jun 2008 08:32 ]
Post subject: 

Verð ekki á landinu :)

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/