bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

bensínverð
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=30344
Page 1 of 2

Author:  Misdo [ Wed 25. Jun 2008 10:25 ]
Post subject:  bensínverð

þetta er að berast í emailum núna


Bensin –og olíuverð



Góðan daginn,


Ég hef frétt,

Að bensinverðið

geti í nánustu framtíð

Komist í

200 kr.líterinn




Villt þú að verðið lækki í staðinn?

Það er hægt!




En þá verðum við að framkvæma núna!

Og gera það af skynsemi!



Erlendis reyndu menn að hafa áhrif og kaupa bara bensín virka daga.

Forstjórar olíufélagana hlógu .Þeir vissu að ef þú keyptir ekki bensín á mánudögum, keyptir þú það bara á þriðjudögum

Vonlaus aðgerð.





Einhver fékk hugmynd sem getur virkað,


Ef vilji er fyrir hendi.


Lesið áfram og verið með!



Bensínið kostar í dag ca.

175,00 Kr/literinn


Við vitum öll að olíufyrirtækin græða óhemju á þessu háa heimsmarkaðsverði og geta lækkað umtalsvert verðið hér heima.





Munið eftir því þegar verðið fór yfir 100 kr.

Þá var talað um að olíubirgðir í jörðu væru á þrotum.

Í dag er ekki svo mikið rætt um að olíubirgðir í jörðu sé á þrotum

Það er til meiri olía í dag en fyrir 35 árum síðan- Miklu meiri olía og ekki sér fyrir endan á því í dag..


OG ÞÁ KOSTAÐI LÍTERINN CA 25 KR. GAMLAR







Við verðum að taka til okkar ráða,

Og sýna olíufélögunum að neytendur geta haft áhrif og rétt fyrir sér.

Eina ráðið er að slá þar sem sárast bítur:

Peningaveskið!

Það getum við gert!



HVERNIG?




Við þurfum öll okkar bíla og þurfum að kaupa á þá bensín og olíu,

En við getum haft áhrif á verðið:

Þegar við tökum höndum saman

getum við komið af stað verðstríði

VERÐSTRÍÐ!!!




Við leggjum til:


Að við

Kaupum ekki bensín

Af tveimur stærstu olíufélögunum:


N 1

og

Shell.



Hugsið ykkur!

Þegar tvö stærstu olíufélögin selja ekki lengur bensín og olíu neyðast þau til að lækka verðið til þess að fá viðskiptavinina til baka.Þetta leiðir til verðstríðs og hin olíufélögin neyðast líka til að lækka og fylgja með

En til að ná árangri verðum við að ná flestöllum N1 og Shell viðskiptavinum með. Og allir verða að taka þátt í þessari samvinnu.



Svona gerum við!

Líka bílar fyrirtækjanna!



Ég sendi þetta til 10 aðila.Þegar þeir síðan senda þetta til sinna tíu, höfum við náð 100 og þegar þessir 100 senda sínum 1000 kunningjum.......…


Höfum við fljótt náð 300 000 o.s.v.…

Þú skilur hvað ég meina?




Þegar allir hafa sent þetta daginn eftir, höfum við náð

Á einni viku til

300 þúsund

manns,

Í verðstríð við olíufélögin




Já,

Við getum unnið, en...





En það er MJÖG

Mikilvægt

Að við kaupum ekki bensín og olíu hjá

N1 eða Shell

Fyrr en verðstríðið er hafið

Til þess að komast áfram með þetta og ná takmarkinu.

Bið ég þig,

Sendu þetta áfram til 10 kunningja

Getum við reiknað með þér?


Bensin –og olíuverð

Author:  maxel [ Wed 25. Jun 2008 10:53 ]
Post subject: 

Á ekki N1 og Shell eikker smábensinstöðvar?

Author:  ///M [ Wed 25. Jun 2008 10:55 ]
Post subject: 

Image

Author:  Misdo [ Wed 25. Jun 2008 10:56 ]
Post subject: 

n1 er m,eð ego enn ég er ekki viss hvort shell sé með einhverja kanski orkuna ?

Author:  bebecar [ Wed 25. Jun 2008 10:59 ]
Post subject: 

Er þetta frá markaðsdeild Atlantsolíu :lol:

Author:  Stanky [ Wed 25. Jun 2008 11:14 ]
Post subject: 

Þetta er svoooo heimskulegt powerpoint skjal sem er að dreyfast allstaðar.

Shell á Orkuna.
Olís á ÓB
N1 á Egó

Þetta er ekkert ríkinu að kenna að að olíuverð sé svona dýrt.

Tek undir með ///M... i see dumb people.

Author:  Spiderman [ Wed 25. Jun 2008 11:49 ]
Post subject: 

Þvílíka bullið, hvet menn til þess að skoða fréttablaðið í dag. Þar er fjallað um úttekt fjármálaráðuneytisins á bensínverði, skv. henni hefur framlegð olíufélaganna lækkað mikið.

Þetta er svona svipað dæmi og að kenna Avant um að lánið á 3 milljón króna RR sé orðið 6 milljónir.

Author:  _Halli_ [ Wed 25. Jun 2008 15:53 ]
Post subject: 

Spiderman wrote:
Þvílíka bullið, hvet menn til þess að skoða fréttablaðið í dag. Þar er fjallað um úttekt fjármálaráðuneytisins á bensínverði, skv. henni hefur framlegð olíufélaganna lækkað mikið.

Þetta er svona svipað dæmi og að kenna Avant um að lánið á 3 milljón króna RR sé orðið 6 milljónir.


Frá því í fyrrahaust hefur innkaupsverð á hvern lítra af bensíni og dísilolíu hækkað mjög. Í október 2007 var reiknað innkaupsverð á bensíni 33,63 kr/l og 38,22 kr/l á dísilolíu. Fram til apríl í ár hefur innkaupsverðið
á bensíni hækkað um næstum 20 kr á lítra, sem er 59%. Innkaupsverð á dísilolíu hefur hækkað um nærri 30 kr á lítra, um 76%. Á sama tíma hefur útsöluverð á bensíni hækkað um 17% en á dísilolíu um 25%. Hlutur olíufélaganna í endanlegu verði hefur því dregist saman að undanförnu. Framlegð olíufélaganna (endanlegt söluverð að frádregnum sköttum og vörugjaldi ásamt reiknuðu innkaupsverði, sem hlutfall af innkaupsverði) af dísilolíu var yfir 60% í október í fyrra en er nú 29%. Framlegð í bensínsölu var 78% en er nú 46%. Olíufélögin virðast þannig ekki hafa fært alla hækkun innkaupsverðsins yfir á neytendur þótt mjög hafi verið kvartað yfir verðinu. Mismunurinn er meiri á dísilolíu en bensíni að þessu leyti.


Edit: http://www.fjarmalaraduneyti.is/media/vefrit/Vefrit_fjarmalaraduneytisins_19._juni_2008.pdf

Author:  Einsii [ Wed 25. Jun 2008 16:22 ]
Post subject: 

Ég var einmitt að þræta við konuna um þetta í dag.. Þetta er að ráðast á rangann aðila..
Annað sem ég fór svo að spá í, ef stóru félögin yrðu tekin svona í gegn og enginn myndi versla við þau í lengri tíma myndu þau ekki bara draga saman í rekstri frekar en að lækka sína álagningu einsog tildæmis að fækka litlu afgreiðslustöðunum út á landi.
Þannig að þetta myndi sennilega frekar skila sér í verri þjónustu heldur en lægra verði...

Author:  gunnar [ Wed 25. Jun 2008 16:25 ]
Post subject: 

Einsii wrote:
Ég var einmitt að þræta við konuna um þetta í dag.. Þetta er að ráðast á rangann aðila..
Annað sem ég fór svo að spá í, ef stóru félögin yrðu tekin svona í gegn og enginn myndi versla við þau í lengri tíma myndu þau ekki bara draga saman í rekstri frekar en að lækka sína álagningu einsog tildæmis að fækka litlu afgreiðslustöðunum út á landi.
Þannig að þetta myndi sennilega frekar skila sér í verri þjónustu heldur en lægra verði...


Jú þeir myndi sjálfsagt hætta að þjónusta fólk sem notar 98 okt bensín og V-Power. Svo myndu þeir draga úr starfsemi utan höfuðborgarsvæðisins og hætta með þá þjónustu sem margir nýta sér. Til dæmis eins og rúðuþurkuskipti, frostlögsmælingu og annað sem þeir rukka sáralítið ef eitthvað fyrir.

Þetta myndi nú bara á endanum bitna á okkur sjálfum myndi ég halda...

:roll:

Author:  ///M [ Wed 25. Jun 2008 16:26 ]
Post subject: 

Klárlega besta lausnin að hætta að selja bensín utan höfuðborgasvæðisins

Author:  zazou [ Wed 25. Jun 2008 16:31 ]
Post subject: 

Ég gerði amk reply to all þegar þetta spam kom í mínu fyrirtæki.

Þar skýrði ég út fyrir fólki hverjir væru í raun 'vondu aðilarnur' - bull gengi + stórhækkað innkaupsverð og síðast en ekki síst sá sem getur gert eitthvað í málinu: ríkið.

Author:  arnibjorn [ Wed 25. Jun 2008 16:35 ]
Post subject: 

Mér fannst þetta svo fyndið að ég áframsendi þetta á fullt af fólki! :D

Gaman að fá svona brandara í meili :lol:

Author:  Einsii [ Wed 25. Jun 2008 16:42 ]
Post subject: 

Svo skil ég ekki þessa Atlantsolíu dýrkun sem er hjá mörgum.
Þeir eru að þjóna litlum hluta landsins, eru bara með stöðvar þar sem er von á þúsundum bíla lámark daglega framhjá og einsog hér fyrir norðan ekki einusinni með þak yfir dælunum, þannig að ef það rignir þá stendur maður úti og þarf meira að seigja að halda um ´"byssuna" allann tímann því þeir taka alltaf úr sjálfvirka haldarann.
Þeir eru semsagtmeð sennilega ódýrasta rekstur sem svona dæmi komast upp með, og selja bensínið ekkert ódýrara en aðrir á markaðnum.

Ég hringdi bara í shell.. bað um tilboð í viðskipti og er ekki að borga 185kr á líter að v-power í dag :D

Author:  gunnar [ Wed 25. Jun 2008 16:59 ]
Post subject: 

Ég er reyndar alveg sammála Einsa með þetta. AO fara alveg að brenna undan sér viðskiptarvinina. Maður studdi þetta mikið hér áður af því að maður vildi stuðla að samkeppni. Nú orðið tek ég oftast bensín hjá Orkunni.

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/