bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

áts hjá Icelandair
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=30291
Page 1 of 2

Author:  Bjarkih [ Mon 23. Jun 2008 00:05 ]
Post subject:  áts hjá Icelandair

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/06/22/utlit_fyrir_fjoldauppsagnir_hja_icelandair/

Útlit fyrir fjöldauppsagnir hjá Icelandair

Um sextíu flugmönnum hjá Icelandair og allt að hundrað og fimmtíu flugfreyjum, verður sagt upp eftir helgi. Lausráðnir starfsmenn fá ekki endurráðningu, og eins missa fastráðnir vinnuna. Þetta kom fram í fréttum Sjónvarpsins í kvöld.

Dregið verður úr áætlunarflugi í vetur og áhöfnum fækkað. Boðað hefur verið til starfsmannafundar á þriðjudagsmorgun þar sem fara á yfir framtíðarhorfur fyrirtækisins.

Viðbúið er að einnig verði fækkað í öðrum deildum. Að minnsta kosti 200 manns missa því vinnuna. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, vildi ekki tjá sig um fyrirhugaðar uppsagnir í dag við fréttastofu Sjónvarps.

Author:  srr [ Mon 23. Jun 2008 00:06 ]
Post subject: 

Vonum að Sæmi haldi vinnunni sinni!

Author:  Fjarki [ Mon 23. Jun 2008 00:47 ]
Post subject: 

Hann gæti þá bara farið að vinna í teppasöluni í Ármúlanum á sömu launum, eða var það parkett?? :wink:

Neinei segi svona, þetta er ömurlegt hvernig er komið á mörgum stöðum og þurfa að taka svona á hlutunum er ennþá leiðinlegra.

Author:  íbbi_ [ Mon 23. Jun 2008 07:00 ]
Post subject: 

þetta er hart þessa dagana, ég labbaði út af vinnustað í byrjun kreppunar, og það er meira en að segja það að fá vinnu í dag, ég reyndar fékk ljómandi djobb, en ég líka veit hversu heppin ég er

Author:  bimmer [ Mon 23. Jun 2008 12:18 ]
Post subject: 

Það er ekki gaman að reka fyrirtæki í dag - ömurlegt að þurfa að
rífa niður það sem búið er að eyða mikilli orku í að byggja upp :cry:

Author:  Fjarki [ Mon 23. Jun 2008 18:23 ]
Post subject: 

fleirri, :(

Í Fréttablaðinu í dag kemur fram að um 300 starfsmenn Icelandair Group, móðurfélags Icelandair, verði sagt upp. Er um að ræða flugmenn, flugfreyjur og starfsfólk í fyrirtækjum sem þjónusta flugvélar Icelandair á Keflavíkurflugvelli. Á síðastnefnda staðnum verður 80-100 manns sagt upp samkvæmt tilkynningu til Vinnumálastofnunar.

http://www.visir.is/article/20080623/FRETTIR01/483339369

Author:  saemi [ Mon 23. Jun 2008 20:38 ]
Post subject: 

Jamm þetta er frekar leiðinlegt að horfa upp á.

Maður hefur horft á stjórnendur í fyrirtækjum hér á landi raka að sér seðlum og rúa fyrirtækin inn að skinni. Svo þegar kólnar aðeins þá skelfur allt og nötrar því ekki er stingandi strá á grindhoruðum, nauðrökuðum kroppnum. Þegar kreppir að þá er ekkert eftir í varasjóð til að taka höggið því allt er farið í vasa stjórnandanna.

Hannes nokkur Smárason sá til þess að allt fé Icelandair gamla, félaginu sem maður vinnur hjá, það fór í FL-group sem síðan allir vita hvernig fór með. Við erum ekki að tala um neina skiptimynt þar. Ásamt því að forstjórar og yfirmenn þessa félags hafa sett vel í vasa sína undanfarin misseri og gera enn!

Svo er allt brjálað þegar maurarnir vilja líka fá launahækkun, þá standa allir upp og segja að það muni keyra fyrirtækið í þrot ef það þarf að fara að borga hærri laun. Fyrirtækið hafi einfaldlega ekki efni á því. Það er samt sorglegt, að eins og staðan er í dag, er það sennilega satt!

Það hafa allir þá samúð með stjórnendunum í dag og finnst þessi krafa launafólks með ólíkindum. En það hefur alveg gleymst að þessir stórnendur blessaðir hafa rokið upp í launum um þúsundir prósenta. Ekki eru þeir að bjóðast til að lækka laun sín og koma þannig til móts við harnandi ár.

Sú var tíðin að forstjóri Icelandair var með tvöföld flugstjóralaun á mánuði. Ekki er lengra en svona 10 ár síðan þetta var. Laun síðasta forstjóra voru 16.6 milljónir á mánuði. Ágætis hækkun á 10 árum þar!

Ég á nú sem betur fer ekki hættu á því að missa vinnuna mína í þessum uppsögnum núna. Ég mun að vísu lækka töluvert í launum í haust, en það eru margir félagar sem eru að missa vinnuna og hafa gert áður hjá þessu félagi.

Ég kann vel við félagið sem ég vinn hjá, en það er sorglega margt þar sem mætti betur fara í stórnun mannauðs.

Author:  srr [ Tue 24. Jun 2008 09:34 ]
Post subject: 

saemi wrote:
Ég á nú sem betur fer ekki hættu á því að missa vinnuna mína í þessum uppsögnum núna.


Gott að heyra :wink:

Author:  grettir [ Tue 24. Jun 2008 11:26 ]
Post subject: 

Já, þetta er sorglegt. Icelandair er það stórt fyrirtæki að flestir þekkja einn eða fleiri sem vinna þar.

En það er magnað með marga af þessum stjórnendum. Poppa upp á hárréttum tíma, mjólka fyrirtækin alveg þurr og láta sig svo hverfa með himinháa starfslokasamninga fyrir "vel unnin störf".

Time travelers?

Author:  Viggóhelgi [ Tue 24. Jun 2008 14:10 ]
Post subject: 

Enga öfundsýki strákar, þeir eiga þessa peninga vel skilið!








:shock:

Author:  finnbogi [ Tue 24. Jun 2008 18:44 ]
Post subject: 

Viggóhelgi wrote:
Enga öfundsýki strákar, þeir eiga þessa peninga vel skilið!








:shock:



GLÆPONAR ! :shock: :evil:

Author:  Jet [ Tue 24. Jun 2008 21:00 ]
Post subject: 

Samfara þessum fréttum hef ég skv. áreiðanlegum heimildum fréttir af því að nokkrir svakalegir BMW-ar fara á sölu bráðlega.
Jafnvel einn e39 M5 í mjög góðu ástandi. :-s

Author:  saemi [ Tue 24. Jun 2008 21:11 ]
Post subject: 

Jet wrote:
Samfara þessum fréttum hef ég skv. áreiðanlegum heimildum fréttir af því að nokkrir svakalegir BMW-ar fara á sölu bráðlega.
Jafnvel einn e39 M5 í mjög góðu ástandi. :-s


:?

Author:  bebecar [ Wed 25. Jun 2008 09:44 ]
Post subject: 

16,6 á mánuði :shock:

Fyrir hvað? Þetta er nú ljóta ruglið.

Author:  fart [ Wed 25. Jun 2008 09:52 ]
Post subject: 

bebecar wrote:
16,6 á mánuði :shock:

Fyrir hvað? Þetta er nú ljóta ruglið.

starfslokasamningur /12?

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/